Mosfellingur - 07.04.2022, Side 41
verslum í heimabyggð
Aðsendar greinar - 41
Opnunartími
sundlauga
lágafellslaug
Virkir dagar: 06.30 - 21.30
Helgar: 08:00 - 19:00
Varmárlaug
Virkir dagar: 06.30-08:00 og 15:00-21:00
Laugard. kl. 08:00-17:00 og sunnud. kl. 08:00-16:00
Bíldshöfða 14 | Reykjavík | s. 520 3200
www.artpro.is
Við sinnum öllum alhliða garðyrkjustörfum s.s
jarðvegsvinnu, hellulögnum, steinhleðslum,
timburverki, gróðursetningu, trjáklippingum.
Garðmenn leggja áherslu á fagleg vinnu-
brögð, vandvirkni og skjóta þjónustu.
Sími 893 5788
Sendið okkur myndir af nýjum Mosfellingum ásamt
helstu upplýsingum á mosfellingur@mosfellingur.is
www.bmarkan.is
Í Úkraínu geisar stríð. Stríð sem fylgir
eyðilegging, hörmungar, sorg, dauði
og fólksflótti. Flóttafólk streymir inn í
nágrannaríkin í Evrópu, aðallega konur
og börn.
Samkvæmt upplýsingum frá Rauða
krossinum koma að meðaltali 20
flóttamenn á dag hingað til lands frá
stríðshrjáðri Úkraínu. Nú þegar eru
komin vel á sjötta hundrað manns og þann 31.
mars höfðu 520 sótt um vernd á Íslandi. Sam-
kvæmt upplýsingum UNICEF, hafa 60% barna í
Úkraínu flúið heimili sitt, 60 prósent!
Tillagan
Undirrituð lagði fram tillögu í bæjarráði Mos-
fellsbæjar í byrjun marsmánaðar um að bærinn
snéri sér til Flóttamannanefndar og byðist til að
taka þátt í að taka á móti flóttamönnum frá Úkr-
aínu enda hafði nefndin biðlað til sveitarfélaga
í fjölmiðlum.
Með þessari tillögu vildi ég gera mitt til að
Mosfellsbær skipaði sér í fremstu röð sveit-
arfélaga í landinu þegar kemur að varðstöðu
um mannúð og mannréttindi. Að Mosfellsbær
axlaði sína samfélagslegu ábyrgð þegar þjóðin
stendur frammi fyrir stórum úrlausnarefnum á
sviði mannúðar og mannréttinda.
Afgreiðslan
Afgreiðsla bæjarráðs fólst í að óska eftir minn-
isblaði um málið. Svar meirihlutans við þessari
tillögu var að fá minnisblað um að Mosfellsbær
sé að móta sér stefnu í málaflokknum. Engin
leið er að skilja þessa afgreiðslu öðru vísi en svo
að flóttafólk, stríðshrjáð heimilislaust fólk, kon-
ur og börn verði bara að bíða eftir að
þeirri stefnumótun ljúki áður en Mos-
fellsbær getur ákveðið hvort, hvernig
eða hvenær hann tekur þátt.
Það er verst að rússneska innrásar-
liðið veit ekki af þessari stefnumótun-
arvinnu svo það geti hægt á árásarað-
gerðum sínum.
Nágrannasveitarfélög
Nokkur fjöldi íslenskra sveitarfélaga hafa
lýst sig viljug til að taka við fólki, til lengri og
skemmri tíma, og standa viðræður yfir milli
þeirra og ríkisvaldsins og Rauða krossins um
fyrirkomulag.
Þegar þessi grein er skrifuð eru tvö sveitarfé-
lög á höfuðborgarsvæðinu sem skera sig úr og
eru ekki í þessum hópi sem er verið að semja
við. Annað þeirra er heimabær okkar.
Af hverju?
Hvað veldur þessari afstöðu Vinstri grænna
og Sjálfstæðisflokksins? Tvær skýringar koma
upp í hugann. Fyrri er sú að það sé hvaðan þessi
tillaga kom sem valdi þessu sinnuleysi Vinstri
grænna og Sjálfstæðisflokksins.
Hin skýringin er að meirihlutinn telji sér bara
ekki koma við hvað verður um konur og börn
sem flúið hafa grimmdarlega innrás í heimaland
sitt og leitað hingað til Íslands eftir skjóli.
Ég held að það sé fyrri skýringin en mikið
ósköp er hún fáfengileg.
Anna Sigríður Guðnadóttir,
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
Lítur Mosfellsbær undan?
Það eru forréttindi að búa í Mosfellsbæ,
hér eru falleg græn svæði sem bæta lífs-
gæði bæjarbúa.
Það er VG ofarlega í huga að vernda
og viðhalda bæjarbragnum og nátt-
úrunni hér en það þarf jafnframt að
horfa á grænu svæðin sem velferðar- og
heilbrigðismál. Aðgengismál þurfa að
vera í forgangi og tryggja þarf að allir
bæjarbúar hafi aðgang að grænum svæðum,
enda lýðheilsubætandi. Bæta þarf hjólastóla-
aðgengi og sjá til þess að aðgengi ólíkra hópa
sé í fyrirrúmi.
Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag, hér er
gott að búa með börn. Á síðastliðnu kjörtímabili
hafa miklar framfarir orðið í bænum, leikskóla-
plássum var fjölgað, börn frá 12 mánaða aldri fá
leikskólapláss ásamt því að leikskólagjöld hafa
lækkað umtalsvert síðustu árin.
Vinstri græn vilja styðja enn betur við
foreldra sem bíða eftir leikskólaplássi,
við leggjum til að styrkur sem nemur
brú milli dagforeldris og leikskóla geti
farið beint til foreldra á meðan beðið er
eftir plássi. Jafnframt viljum við halda
áfram að lækka leikskólagjöld og að
endingu verði leikskólar í Mosfellsbæ
gjaldfrjálst skólastig.
Við viljum stuðla að því að öll börn sitji efna-
hagslega við sama borð, meðal annars með
gjaldfrjálsum skólamáltíðum og hærri frístunda-
styrk. VG vill bæta velferðarkerfi Mosfellsbæjar
og setja velferð barna í forgang.
Kolbrún Ýr Oddgeirsdóttir,
skipar 2. sæti V-listans í kosningunum 14. maí
Setjum börnin í forgang
Framboðslisti Vina Mosfellsbæjar var
samþykktur á fundi félagsins þann 28.
mars síðastliðinn.
Kynslóðaskipti verða í forrystusveit
Vina Mosfellsbæjar þar sem undirritað-
ur oddviti listans síðustu fjögur ár færir
sig lítið eitt aftar á framboðslistanum að
eigin ósk. Reynsla mín í sveitarstjórnar-
málum hverfur ekki á braut heldur mun
ég veita nýjum Vinum Mosfellsbæjar stuðning
og tryggja yfirfærslu þekkingar.
Það er nauðsynlegt að þeir sem gegna forystu
í pólitísku starfi þekki hvenær tími er kominn
til endurnýjunar. Breytingar á forrystusveit Vina
Mosfellsbæjar á þessum tímapunkti eru að mínu
viti skynsamlegar og liður í því að Vinir Mos-
fellsbæjar verði góður valkostur til framtíðar.
Ólafur heitinn Jóhannesson fyrrum
forsætirráðherra var inntur eftir því
við myndun sinnar fyrstu ríkistjórnar
hverju það sætti að innan borðs í ríkis-
stjórninni væru nýir og ungir ráðherrar.
Svar Ólafs var á þessa leið „Nýir vendir
sópa best”. Það voru orð að sönnu og
nýju ráðherrarnir stóðu sig með prýði.
Vinir Mosfellsbæjar ganga nú til
sveitarstjórnarkosninga með sterkan og endur-
nýjaðan lista. Vinir Mosfellsbæjar munu kapp-
kosta að reka kosningabaráttuna nú sem fyrr af
heiðarleika þar sem farið verður í boltann en
ekki manninn.
Erum við ekki öll Vinir?
Stefán Ómar Jónsson,
bæjarfulltrúi vina Mosfellsbæjar
Nýir vendir sópa best