Mosfellingur - 07.04.2022, Qupperneq 42
Heilsumolar gaua
- Aðsendar greinar42
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
Hlaupagleði
Ég fór út að hlaupa í gær. Er farinn
að hafa gaman af því að hlaupa
(án bolta), nokkuð sem ég hélt að
myndi aldrei gerast. Ég man mjög
vel eftir því að hlaupa Stífluhringinn
fræga í Árbænum á undirbúnings-
tímabilinu fyrir fótboltann. Það var
aldrei gaman. Ég man líka eftir því
að hlaupa hálfmaraþon í Reykjavík-
urmaraþoninu. Það var hugsanlega
eitt það leiðinlegasta sem ég hef
nokkurn tíma gert á ævinni. Og ég
hef aldrei gert það aftur.
Leiðinlegast fannst mér þegar
hópur eldri kvenna (ég var
sjálfur um þrítugt) hljóp brosandi
og hlæjandi fram úr mér – þær
svifu hreinlega yfir malbikinu af
hlaupaorku og lífsgleði. Ég hló
ekki með þeim, var mjög langt frá
því hamrandi grjóthart malbikið á
Sæbrautinni með lúnum löppum.
En svo lenti ég í því að melda mig
í 21km þrautahlaup sem verður í
júní og ákvað að undirbúa mig betur
en fyrir hálfmaraþonið forðum.
Ég hef verið í hlaupaprógrammi
frá Polar sem er sniðið að mér og
mínum markmiðum. Það hefur verið
hressandi að fara út að hlaupa í
vetrartíðinni og enn meira hressandi
núna þegar það er að byrja að vora.
Ég hljóp fyrst í snjónum – ekki annað
í boði – en er núna byrjaður að
þræða alla malarstígana okkar hér
í nánasta umhverfi Mosfellsbæjar.
Það er af mörgu að taka og gaman að
prófa nýjar leiðir.
Ígær fór ég til dæmis upp í
Skammadal og þræddi hann áður
en ég hljóp niður með Varmánni að
Álafosskvosinni þar sem ég sneri
við. Ég heyrði í fuglunum og ánni, sá
rjúpur, lenti í allskonar undirlagsæv-
intýrum á leiðinni – sökk sumstaðar
vel yfir ökkla, fann lyktina af vorinu
og upplifði mikla
ánægju við það að
vera hlaupandi
úti í ferskri
náttúrunni. Gott
ef mér varð ekki
hugsað til eldri
kvennanna sem
hlupu brosandi
fram úr mér
forðum. Áfram
veginn!
Við erum sjálfsagt öll orðin lang-
þreytt á þeim umferðarteppum
sem myndast á álagstímum til og
frá Mosfellsbæ.
Það er fátt leiðinlegra en að þurfa
að bíða í endalausri bílaröð þegar
hægt væri að nýta tímann í eitthvað
annað. Samgönguframkvæmdir á
höfuðborgarsvæðinu hafa verið of
litlar í langan tíma og afleiðingin er þessi.
Við þurfum að hanga í bílum til þess að
komast til vinnu og svo aftur heim. Það
var fyrirséð að umferð myndi aukast með
auknum fólksfjölda og tilraunir með að fá
fólk til þess að nota almenningssamgöngur
hafa verið veikburða og ekki skilað tilætl-
uðum árangri.
Nú er hins vegar farið að hylla undir
breytingar. Verið er að hrinda í
framkvæmd samgöngusáttmála
höfuðborgarsvæðisins þar sem
ríki og bæjarfélög sameinast um
að leysa þennan vanda.
Fjármagnið skiptist c.a. 50/50
á milli almenningssamgangna
og umferðarmannvirkja annars
vegar og göngu- og hjólastíga hins
vegar.
Við í Viðreisn leggjum áherslu á að
jafnframt verði hafist handa við lagningu
Sundabrautar sem allra fyrst. Það mun
létta á umferð um Mosfellsbæ og minnka
umferðartafir í Ártúnsbrekku, sem hefur
bein áhrif á umferð úr Mosfellsbæ.
En af hverju ekki að nota allt fé í að bæta
samgöngur fyrir bíla? Svarið við þessu er
að það einfaldlega ekki hægt.
Því er spáð að umferð ökutækja, að öllu
óbreyttu, muni aukast um 40% á næstu 15
árum. Það gefur því auga leið að það mun
ekki vera hægt að anna þeirri aukningu
með fjölgun vega eða akreina þannig að við
verðum að beina hluta af umferð annað.
Svo er það hreinlega krafa stórs hluta íbúa
að boðið sé upp á valkost við einkabílinn.
Bættar almenningssamgöngur og fjölg-
un á göngu- og hjólreiðastígum mun leiða
til þess að fólk hafi meira val um að velja
sér ferðamáta. Viðreisn styður áform um
fjölbreyttari ferðamáta á höfuðborgar-
svæðinu.
Valdimar Birgisson
Fjölbreyttari ferðamáti er allra hagur
Sem íbúar í bæjarfélagi þá höfum
við öll skoðanir á einhverjum mál-
efnum er varða bæinn okkar. Hvort
sem það tengist skipulaginu á nýj-
um stíg í hverfinu eða útdeilingu á
leikskólaplássi fyrir barnið þitt.
Ef þú sem íbúi hefur skoðun sem
þú telur að geti komið að gagni þá
skaltu láta í þér heyra. Eins frá
sjónarhóli þess frábæra fólks sem starfa hjá
sveitarfélaginu og sinna daglegri starfsemi í
bænum okkar má gera ráð fyrir að þau hafi
skoðanir á ýmsu sem hægt væri að gera
betur. Það sama gildir um aðra hagsmuna-
aðila sem sjá tækifæri til úrbóta. Látið rödd
ykkar heyrast.
Við viljum að á okkur sé hlustað og að við
upplifum okkur sem mikilvæg. Við
búum öll saman í bæjarfélaginu og
viljum auðvitað að okkur og öðrum
íbúum líði vel og allir þrífist eins og
best verður á kosið. Við þurfum að
eiga samskipti og stuðla að því að
þau séu uppbyggileg og jákvæð og
til þess fallin að gera bæinn okkar
að enn betri stað til að búa á.
Þegar kemur að góðri stjórnun, sam-
starfi og samvinnu almennt eru markviss
og uppbyggileg samskipti lykilatriði. Í
sumum málum getur það beinlínis hamlað
framþróun að hunsa eða leitast ekki eftir
skoðunum hagsmunaaðila. Það getur oft á
tíðum fært mál í verri farveg og jafnvel sett
þau aftur á byrjunarreit.
Það er til að mynda ekki skynsamleg
ákvörðun að leggja hjólastíg og reiðstíg hlið
við hlið, það er ekkert sjálfsagt mál að allir
sjái vandamálið við það en þeir sem stunda
hestamennsku væru fljótir að benda á það
væri ekki ákjósanlegt.
Bæjarfulltrúar starfa jú í umboði kjós-
enda, sem eru íbúar bæjarins. Þeim ber
því skylda til að vinna ætíð með hagsmuni
íbúa að leiðarjósi. Til þess að það geti geng-
ið sem best þurfum við að vera dugleg að
taka samtalið.
Sævar Birgisson
3. sæti á lista Framsóknar í Mosfellsbæ
Tökum samtalið
Ég heiti Katarzyna Krystyna Króli-
kowska og skipa 3. sæti á lista Vina
Mosfellsbæjar.
Ég er kölluð Kata og er af pólsk-
um uppruna, flutti til Íslands og í
Mosfellsbæ 2006 og fékk íslenskan
ríkisborgararétt 2013.
Ég er gift Piotr Kólikowski, sem
er smiður, og við eigum við eitt
barn og búum í Grundartanga.
Ég er verkfræðingur að mennt og starfa
sem þjónustustjóri hjá Sólar ehf. en
var áður starfsmaður hjá íslenskum
textíliðnaði, Ístex hf., í Mosfellsbæ
í 13 ár.
Áhugamálin eru að ganga á fjöll,
og tek ég hundinn minn iðulega
með í þær ferðir, og svo spila ég
blak með Aftureldingu.
Mín helstu áherslumál í sveit-
arstjórnarmálum eru félags- og velferðar-
mál.
Saman getum við gert meira. Erum við
ekki öll Vinir?
Nazywam sie Katarzyna Krystyna Krolik-
owska i jestem 3 na liscie w Przyjaciolach
Mosfellsbær do samorzadu w Mosfellsbær.
Moimi zamierzeniami sa kwestie socjalne
spolecznosci obcego pochodzenia w
naszym miescie.
Razem mozemy zrobic duzo wiecej.
Katarzyna Krystyna Królikowska
Erum við ekki öll Vinir?
Eitt af mest spennandi svæðum
í Mosfellsbænum er Leiruvogur-
inn. Í hann renna 4 ár: Leirvogsá,
Kaldakvísl, Varmá og Úlfarsá. Þetta
svæði býður upp á skemmtilega
útivist við allra hæfi: göngu, skokk,
hjólreiðar, golf og hestamennsku.
Góðir stígar gera fólki með
hreyfihömlum einnig kleift að njóta útiver-
unnar. Áhugamenn um fuglalíf finna varla
betri stað til skoðunar því þar eru fuglar
allan ársins hring, bæði mismunandi stórir
hópar og sjaldgæfar tegundir. Leirurnar eru
mikilvæg fæðuuppspretta fyrir staðfugla,
farfugla og umferðafugla sérlega vor og
haust.
Svona náttúruperlur ber að varðveita og
vernda fyrir ágengi manna sem
kann að valda raski og mengun.
Núna liggja fyrir drög að friðlýs-
ingu Leiruvogs sem nær bæði yfir
landið í Mosfellsbæ og Reykjavík.
Samstarfshópur um friðlýsingu
Blikastaðakróar og Leiruvogs
fundaði þann 1. mars. Vonandi
er að koma skrið á þetta ferli og sátt um
útfærslu þess. Í fundargerð Umhverfis-
nefndar Mos. frá 24. mars 2022 má fræðast
um þetta nánar.
Og svo að fyrirhugaða friðlýsta svæði
er að mestu leyti fjara og sjávarbotn þá
ber einnig að gæta þess að mengun berst
ekki í voginn utan frá. Sem dæmi ætla ég
að nefna hrauka af efni sem féllu til við
götusópun að vori til sem einu sinni voru
sturtað niður mjög nálægt friðlandinu að
Varmárósum.
Hestaskítur á ekki að fara í grennd
við fjöruna heldur frekar á landsvæði
sem menn ætla að græða upp og nota til
skógræktar. Og fjúkandi plasttætlur frá
heyböggunum ættu að heyra sögunni til.
Auðvitað á að vakta reglulega árnar sem
renna í voginn.
Ég vona að Mosfellsbær muni bera gæfu
til þess að vinna með heilum hug í sam-
starfi við Reykjavíkurborg að friðlýsingu
Leiruvogsins.
Úrsúla Jünemann
Friðlýsing Leiruvogsins