Mosfellingur - 07.04.2022, Blaðsíða 44
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Í eldhúsinu
gervi
vor
Það er nú spurning um hvaða ósköp
maður ætti nú að skrifa um núna, það er
að vanda af mörgu að taka.
Það virðist nú svona á yfirborðinu
að þessi Covid fjandi sé nú horfinn en
það er nú aldeilis ekki, takmörkunum
var bara aflétt (sem betur fer... en sitt
sýnist hverjum) og Covidinu var nú bara
sópað undir teppið af ráðamönnum
svona af ramm íslenskum sið. Covid
hættir þó ekki að greinast og enn er
fólk að veikjast og jafnvel deyja þó svo
að ráðamenn hafi strokað hann út úr
fundargerðum og skjölum. En mikið
er ég nú feginn að geta loksins knúsað
og kysst ókunnugt fólk út í Bónus eða
Krónunni svona einsog maður var vanur
að gera áður en þessi fjandi lokaði öllu.
Meira að segja var undirritaður bitinn
hressilega í rassinn af Covid fjandanum
og þurfti að dúsa heima í Hulduhlíðinni
undir teppi í heila viku, en í góðum
félagsskap... það skal tekið fram.
En hann fór ekki alveg með mig og sit
ég enn hér og tuða.
Svona eftir á að hyggja hefði ég
sloppið við fjandann ef ég hefði ekki
tekið upp á því að kyssa og knúsa allt
þetta ókunnuga fólk. En það er auðvelt
að vera vitur eftir á.
En haldið ekki hvað , eftir snjóþungan
vetur í sveitinni fögru þá vaknaði ég
upp einn daginn og blessaður snjórinn
og klakinn var horfinn, þá fer maður nú
sjálfkrafa að detta í vorfíling sem kemur
bara sjálfkrafa þegar klakinn hverfur og
sólartímum fjölgar á daginn.
Þið þekkið þetta flest, það er ein-
hvernvegin allt betra þegar myrkrið
minnkar eða hverfur.
Meira að segja helvítis VISA reikn-
ingurinn lýtur jafnvel ágætlega út þegar
maður er með sól í hjarta og komin í
vorfíling. Og þó kannski ekki.
En alltaf er maður jafn vitlaus... á
hverju ári. Ég var ekki fyrr búin að grafa
úr skúrnum sólstólana og vindsængina
þegar að hann lét sjá sig aftur. Jú maður
gleymir alltaf blessaða Páskahretinu.
Þetta var bara gervivor.
Theódóra og Anton skora á Birnu og Einar að deila næstu uppskrift í Mosfellingi
Theódóra Kjartansdóttir og Anton Sigur-
jónsson deila að þessu sinni uppskrift af
humarrétti sem rífur í bragðlaukana. Þessi
uppskrift passar vel fyrir sex í aðalrétt en
einnig er hægt að stilla hana af sem forrétt.
Gott að fara sparlega með Tabasco en þá
bjóða uppá að hver bæti við fyrir sig við
borðhald.
Hráefni
• 1,5kg skelflettur og hreinsaður humar,
lítill eða stór, stærðin skiptir ekki máli
• 1 stk stórt kínakálhöfuð
• 10 ferskir tómatar
• 2 rauðar paprikur
• 2 msk karrý
• 1 msk paprikuduft
• hvítlaukssalt, svartur pipar og salt
• 4 góðar skvettur af tabasco
• 5dl rjómi
• 3cl Koníak/brandí
Aðferð
Eldunartími er mjög skammur á réttinum
sjálfum, 10-15 mínútur, svo hér er mjög
mikilvægt að undirbúa allt hráefni fyrst.
Saxa allt kínakálið, hvíta hlutan meira en
græna. Paprika í bita og tómatar í báta. Hita
stóra pönnu með loki vel með örlítið af olíu.
Humarinn og kryddið sett á. Þegar allt er
vel heitt er koníakinu bætt við og kveikt í
því (humarinn flamberaður). Tómatar, hvíta
hlutanum af kínakálinu og papriku bætt við
ásamt tabasco og hrært létt saman, hér er
rjómanum blandað við og suða kemur upp.
Hitinn lækkaður svo það varla sjóði. Græni
hlutinn af kínakálinu sett yfir og lokið sett á
og leyft að malla rólega þannig í svona 5-8
mínútur. Borið fram með hrísgrjónum og
smábrauði eða öðru góðu brauði.
Verðiykkuraðgóðu!
högni snær
Humarréttur
hjá theódóru og ANtoNI
Elimar Ágúst Birkisson fæddist á Lsh
þann 10. desember 2021. Hann var
tæpar 16 merkur og 51 cm.
Foreldrar: Birkir Ágústsson
og Ása Guðrún Guðmundsdóttir.
Systkini eru Gabríel sem er á sjötta ári
og Tanja Björk sem er á þriðja ári.
- Heyrst hefur...44
Það er hann Stefán Rökkvi Magnús-
son. Fæddur 19. janúar, 3560 g og
53 cm. Foreldrar: Magnús Hrafn
Hafliðason Kjerulf og Aníta Björk
Bóasdóttir en fjölskyldan flutti
nýverið í Mosfellsbæ.
heyrst hefur...
...að Íbúahreyfingin ætli ekki að bjóða
fram lista í sveitarstjórnarkosning-
unum í vor.
...að Tríóið Kókos haldi uppi stemning-
unni á Barion á laugardagskvöldið.
...að mögulega verði nafni Fagverks-
vallarins að Varmá brátt breytt í
Malbikstöðin.
...að Stefán Ómar ætli ekki að leiða
lista Vina Mosfellsbæjar heldur
Dagný Kristinsdóttir, fyrrum
formaður Aftureldingar.
...að vel yfir 150 manns séu skráðir í
Vínklúbb Mosfellsbæjar á Blik en
smökkun fer fram á miðvikudögum.
...að verslunin Vorverk sé að fara færa
sig innan Kjarnans, í bilið þar sem
Vínbúðin var áður.
...að Mosfellingurinn Magnús Þór
hafi verið valinn hljómborðsleikari
Músíktilrauna annað árið í röð.
...að það séu 37 dagar til kosninga.
...að Jökull í Kaleo sé búinn að kaupa
sér hús í Leirvogstungu.
...að sex einstaklingar hafi sótt um
starf framkvæmdastjóra Aftureld-
ingar.
...að Steinar Ægisson verði þrítugur
um helgina.
...að Eiður Ívars og Karen hafi verið að
trúlofa sig.
...að mosfellski færeyingurinn Jógvan
Hansen sé kominn á lista Vina
Mosfellsbæjar.
...að Spánverjinn Esteve Pena verði í
marki Aftureldingar í Lengjudeild-
inni í sumar.
...að líklegast verði sjö framboð sem
bjóði fram í sveitarstjórnarkosning-
unum í vor en skilafrestur framboðs-
lista er á föstudaginn.
...að Ragnhildur Hjartar og Jón Andri
eigi von á barni í sumar.
...að kylfingurinn Sverrir Haraldsson
sé að koma Mosfellsbæ á kortið
vestanhafs.
...að Kammerkór Mosfellsbæjar sé að
hætta og muni syngja sitt síðasta á
lokatónleikum 28. apríl.
...að Liverpool-skólinn verði haldinn í
Mosó 4.-6. júní.
...að GDRN feti nú í fótspor Kaleo og
styrki Aftureldingu sem muni bera
merki söngkonunnar á klæðnaði
meistaraflokks kvenna í fótbolta.
...að Hlégarður sé kominn í gagnið
eftir endurbætur og Mosfellingum
sé boðið í opið hús á sunnudaginn
kl. 13-16.
...að Mosfellingar hafi fengið tvær til-
nefningar til Grammy-verðlaunanna,
þau Dísella og Ólafur Arnalds.
...að páskabingó fullorðna fólksins fari
fram á Barion kvöldið fyrir skírdag.
...að Sólveig á Pílus sé fimmtug
í dag.
...að Blómasmiðjan sé með fría
heimsendingu í Mosó í apríl.
mosfellingur@mosfellingur.is
Það viðraði oft vel á Tungubakkaflugvelli í vetur og gátu flugmenn skellt undir
snjóskíðunum og nýtt snæviþakinn flugvöllinn til hins ýtrasta.
Vetur kemur og Vetur fer