Mosfellingur - 28.04.2022, Síða 12

Mosfellingur - 28.04.2022, Síða 12
 - Fréttir úr bæjarlífinu12 Veitur og Mosfellsbær hafa gert með sér samkomulag um uppbyggingu innviða fyrir hleðslu rafbíla í bænum. Markmiðið er að koma upp hleðslubúnaði fyrir rafbíla þeim til afnota sem síður geta komið slíkum búnaði upp heima fyrir. Innviðir fyrir hleðslubúnaðinn verða byggðir upp á nokkrum stöðum í landi bæjarins eða á lóðum tengdum stofnunum sveitarfélagsins. Þeir staðir sem um ræðir eru miðbær við bæjarskrifstofur, Helgafellsskóli, Krikaskóli, golfskálinn og aðstaða skógræktarfélagsins við Úlfarsfell. Í upphafi verður settur upp einn hleðslubúnaður á hverj- um stað sem annar tveimur hleðslustæðum en gert er ráð fyrir að hleðslustæðum geti fjölgað í fjögur til átta, mismik- ið eftir aðstæðum. Þjónustuaðilar munu selja hleðsluþjón- ustu til rafbílaeigenda, reka viðskiptakerfi, greiða dreifing- arkostnað rafmagns og annast rekstur búnaðarins. Horft til fyrri orkuskipta við undirritun Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar og Jóhannes Þorleiksson, forstöðumaður rafveitu Veitna, undirrituðu samkomulagið við útilistaverkið Hundraðþús- undmilljón tonn af sjóðheitu vatni á torginu við Þverholt í Mosfellsbæ. Verkið, sem er eftir Kristin E. Hrafnsson, var reist í til- efni 100 ára hitaveitu á Íslandi árið 2008. Það er við hæfi að horfa til fyrri orkuskipta, þegar snúið var frá kolum og olíu yfir í hitaveitu, og þess hversu mikið þau bættu lífsgæði þegar unnið er að orkuskiptum dagsins í dag, frá jarðefna- eldsneyti yfir í umhverfisvænt rafmagn. Auðvelda bæjarbúum að draga úr losun Bæði Veitur og Mosfellsbær hafa sett sér metnaðarfull og nauðsynleg loftslagsmarkmið og aðgerðaáætlanir til að ná þeim. Auk eigin starfsemi ná áætlanir þeirra til að sporna við hlýnun jarðar einnig til þess að auðvelda almenningi að draga úr sinni losun. Umhverfisvænni samgöngur – að hjóla, ganga, nýta almenningssamgöngur eða aka á bílum sem ganga fyrir hreinni orku – eru þar lykilatriði. Veitur og Mosfellsbær koma upp hleðslubúnaði fyrir rafbíla • Metnaðarfull loftslagsmarkmið og aðgerðaáætlun Innviðir fyrir hleðslu rafbíla byggðir upp haraldur sverrisson bæjarstjóri og jóhannes Þorleiksson forstöðumaður rafveitu veitna Orlofsnefnd húsmæðra í Gullbringu- og Kjós fyrir sveitarfélögin Garðabæ, Kjós, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes auglýsa hér með orlofsferðir fyrir árið 2022. 28. ágúst – 4. september 2022 Toskana m.a. sigling um strendur Cinque Terre 5. - 12. október 2022 Króatískar strendur og Alpafjöll 23. – 27. nóvember 2022 Aðventuævintýri í Trier Rétt til að sækja um orlofsferð hefur sérhver kona sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf. Upplýsingar um ferðirnar og skráning er á vefsíðunni www.orlofgk.is eða með þvi að senda tölvupóst á orlofgk@gmail.com HÚSMÆÐRAORLOF 2022 Orlofsnefnd húsmæðra í Gullbringu- og Kjós fyrir sveitarfélögin Garðabæ, Kjós, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes auglýsa hér með orlofsferðir fyrir árið 2022. 28. ágúst – 4. september 2022 Toskana m.a. sigling um strendur Cinque Terre 5. - 12. október 2022 Króatískar strendur og Alpafjöll 23. – 27. nóvember 2022 Aðventuævintýri í Trier Rétt til að sækja um orlofsferð hefur sérhver kona sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf. Upplýsingar um ferðirnar og skráning er á vefsíðunni www.orlofgk.is eða með þvi að senda tölvupóst á orlofgk@gmail.com HÚSMÆÐRAORLOF 2022 Orlofsnefnd húsmæðra í Gullbringu- og Kjós fyrir sveitarfélögin Garðabæ, Kjós, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes auglýsa hér með orlofsferðir fyrir árið 2022. 28. ágúst – 4. ept ber 2022 Toskana m.a. sigling um strendur Cinque Terre 5. - 12. október 2022 Króatískar strendur og Alpafjöll 23. – 27. nóvember 2022 Aðventuævintýri í Trier Rétt til að sækja um orlofsferð hef r sérhver kona em veitir eða hefur veitt heimili f rstöðu án launagreiðslu fyrir það starf. Upplýsingar um ferðirnar og skráning er á vefsíðunni www.orlofgk.is eða með þvi að senda tölvupóst á orlofgk@gmail.com HÚSMÆÐRAORLOF 2022 Eva Rún hlaut hljóð­ bókaverðlaun Íslensku hljóðbókaverðlaunin, Storytel Awards, voru veitt í þriðja sinn þann 20. apríl. Veitt voru verðlaun fyrir bestu hljóðbókina í flokkum barna- og ungmennabóka, glæpasagna, skáldsagna, róman- tískra bóka og óskáldaðs efnis. Mosfellingurinn Eva Rún Þorgeirs- dóttir hlaut verðlaun í flokki barna- og ungmennabóka fyrir Sögur fyrir svefnin sem lesnar eru af Sölku Sól. Verðlaunahátíðin fór fram í Hörpu og segist Eva Rún alveg svakalega stolt af þessari hljóðbók og mjög þakklát fyrir verðlaunin.

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.