Mosfellingur - 28.04.2022, Qupperneq 38
- Íþróttir og ungmenni38
Friðbjörn Bragi Hlynsson varð Íslands-
meistari í klassískum kraftlyftingum á dög-
unum. Hann setti einnig tvö Íslandsmet í
réttstöðulyftu og samanlögðu.
Friðbjörn lyfti 252.5 kg í hnébeygjum,
162,5 kg í bekkressu og 278 kg í réttstöðu-
lyftu eða samanlgt 693 kg. Friðbjörn varð
annar stighæstur keppenda og er með fast
sæti í landsliðinu hann keppir fyrir Lyft-
ingafélag Mosfellsbæjar.
Kristín Dóra Sigurðardóttir, Lyftingafélagi
Mosfellsbæja, varð Íslandsmeistari í 76 kg
flokki í Ólympískum lyftingum, eftir harða
keppni um gullið.
Kristín lyfti 77 kg í snörun og 96 kg í jafn-
hendingu. Samanlagt lyfti Kristín 171 kg.
Kristín er búin að vera mjög dugleg að æfa
undir handleiðslu Guðmundar Sigurðsson-
ar Ólympíufara.
Mótið fór fram að Varmá í mars.
Friðbjörn Bragi og Kristín Dóra urðu Íslandsmeistarar
Frábær árangur
Lyftingafélagsins
Friðbjörn bragi
kristín dóra
Taekwondodeild Aftureldingar var í
skemmtilegu samstarfi á dögunum með
Borgarholtsskóla, á þemadögum skólans,
Skóhlífadögum. Þá var nemendum boðið
upp á að taka þátt ýmsum viðburðum og
námskeiðum.
Taekwondodeildin hélt sjálfsvarnarnám-
skeið fyrir stúlkur í Borgarholtsskóla. María
Guðrún kenndi stelpunum helstu viðbrögð
og tækni til að nota lendi þær í ógnandi að-
stæðum og naut aðstoðar Aþenu Kolbeins,
en hún er einmitt nemandi á listnámsbraut
í Borgaholtsskóla og æfir Taekwondo með
Aftureldingu af krafti.
Góð þátttaka var á námskeiðinu, en á
þriðja tug stúlkna voru skráðar og voru þær
mjög ánægðar með námskeiðið. Vonandi
verður unnt að halda samstarfinu áfram,
enda virðist þörfin og eftirspurnin á slíkri
fræðslu vera til staðar.
Taekwondodeildin í samsarfi með Borgarholtsskóla
Sjálfsvarnarnámskeið
á Skóhlífardögum
stelpurnar
læra tæknina