Mosfellingur - 28.04.2022, Síða 44

Mosfellingur - 28.04.2022, Síða 44
 - Aðsendar greinar44 Í heimi þar sem tækninni fleygir fram á ógnarhraða er mikilvægt að stuðla að tækniþróun skólanna og undirbúa nemendur fyrir framtíð- ina með því að gera starfsumhverfi skólanna enn betra. Einn þáttur í því er að halda áfram að stuðla að snjöllum skólum og skapa vettvang til nýsköpunar. Skólasamfélagið kallar eftir nýjum leiðum í kennslu þar sem samþætting námsgreina og fjöl- breyttir kennsluhættir geti meðal annars mæst á vettvangi tækni og nýsköpunar. Okkur þykir mikilvægt að svara þessu ákalli. Annars vegar teljum við að það yrði frábært fyrir skólasamfélagið okkar hér í Mosfellsbæ að hafa aðgang að Fab Lab smiðju, en Fab Lab smiðja er sköpunar- og tæknismiðja útbúin tækjum og tólum til að búa til nánast hvað sem er, þar sem ein- staklingum eru gefin tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni. Að fá hugmynd, setja sér markmið og sjá hana verða að veruleika er geggjuð tilfinn- ing. Að fylgjast með nemendum sínum fá hugmynd, hvetja þá til að setja sér mark- mið og fylgjast með þeim þróa og skapa sína hugmynd þar til hún verður að veru- leika en enn betri tilfinning. Tilfinningin er eins og heimurinn sé ósigrandi og hindranir verða bara eitthvað sem við lærum að finna lausn á. Við Sjálfstæðismenn ætlum því, á næsta kjörtímabili, að opna Fab Lab smiðju með stafrænum tækj- um og tólum sem gefur ungum sem öldnum, einstaklingum og fyrirtækjum, tækifæri til að þjálfa sköpunargáfuna og hrinda hug- myndum sínum í framkvæmd. Hinn þátturinn er að halda áfram að stuðla að snjöllum skól- um, en það er áframhaldandi átak í upplýsingatæknimálum skól- anna þar sem áherslan verður að styðja áfram við upplýsingateymi kennara og stjórnenda innan skólanna. Við viljum sjá til að þess að þeir hafi áframhaldandi aðgang að verkefnastjóra til að hafa umsjón með upplýsingatæknimál- um og búnaði innan skólanna. Við teljum það góða leið til að styðja við kennarann í starfi og styrkja hann þannig til að nýta tækin og tæknina í kennslu. Við viljum gera betur í að undirbúa nemendur fyrir framtíðina og stuðla að því að þau verði ekki bara neytendur tækninnar heldur líka notendur. Arna Hagalíns og Elín María Jónsdóttir, frambjóðendur á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kosningar 14. maí. Fab Lab smiðja, skapandi vettvangur nýsköpunar fyrir skólasamfélagið Það er öllum hollt að hreyfa sig. Hjá flestum er það hluti af almennri heilsubót. Hreyfing getur verið alls konar og kallar á mismunandi að- stæður. Mörgum dugar að ganga um eða hlaupa í okkar fallegu náttúru eða bara á gangstéttum og göngustíg- um bæjarins. Fyrir aðra þarf að byggja upp aðstöðu. Það er ekki lögbundið verkefni sveitarfélaga að byggja og reka íþróttamannvirki en hins vegar teljum við það vera sjálfsagt verk- efni þeirra til að styðja við gott og blómlegt mannlíf. Borðaklippingar Það hefur þótt gott nesti fyrir stjórn- málamenn að fara í kosningar með loforð um metnaðarfull íþróttamannvirki eða að taka í notkun eitt eða fleiri slík korteri fyrir kosningar. En þegar búið er að byggja þá tekur hversdagurinn við, rekstur mannvirkjanna og líka viðhald sem verður þeim mun kostnaðarsamara eftir því sem þau eld- ast. Það er hins vegar ekki jafn líklegt til vinsælda að skipuleggja viðhald. Því fylgja engar skóflustungur eða borðaklippingar að viðstöddum ljósmyndurum. Stefnuleysi Það dregur verulega úr notkunarmögu- leikum og öryggi notenda þessara dýru mannvirkja ef viðhaldi er ábótavant. Því miður er þetta orðin staðan hjá okkur víða þrátt fyrir að margt sé í góðu lagi. Á fundi sem Öryrkjabandalagið og Landssamtökin Þroskahjálp boðuðu ný- verið til hér í bæ og buðu fulltrúum allra framboða í Mosfellsbæ til, kom fram að lyfta ætluð fötluðum í íþróttamiðstöðinni að Varmá hafi verið biluð í mjög langan tíma. Fólki sem bundið er við hjólastól og á erindi í íþróttamiðstöðina er rennt inn um neyðarútgang til að komast inn í húsið. Það er ekki mikil virðing sem fötluðu fólki er sýnd með því. Mosfellsbær státar af mörgu framúrskarandi íþróttafólki í ýms- um íþróttagreinum, þar á meðal í frjálsum íþróttum. Árið 1989 var tekinn í notkun í Mosfellsbæ fullkomnasti frjálsíþróttavöllur landsins. Í kjölfarið varð mikill uppgang- ur í íþróttinni hér í bæ og blómlegt starf. Því er það þyngra en tárum taki að síðan 2011 hafi þessi glæsi- legi völlur ekki uppfyllt kröfur til að halda stærri mót, s.s. Íslands- eða landsmót. Vegna hvers var það, jú vegna skorts á viðhaldi! Margt af okkar fremsta frjálsíþróttafólki æfir nú og keppir með félögum í öðrum sveitarfélögum. Því miður er þetta ekki eina dæmið. Fjölmörg dæmi eru líka um að ekki hafi verið fjárfest í búnaði til nota í íþróttamannvirkjum okkar, búnaði sem myndi auka notagildi þeirra. Það er mikill ábyrgðarhluti að eigur okk- ar íbúanna séu látnar grotna niður vegna skorts á eðlilegu viðhaldi og endurbótum. Stefna til framtíðar Þróttmikið íþróttastarf fyrir alla, óháð aldri, efnahag og félagslegum aðstæðum eflir og auðgar samfélagið og hefur jákvæð áhrif á lýðheilsu. Öflugt starf byggir á góðri aðstöðu og það er hlutverk bæjaryfirvalda að sjá til þess að sú aðstaða sé fjölbreytt, góð og mæti þörfum. Aðstöðunni þarf síðan að halda við og bæta jafnt og þétt svo hún haldi gildi sínu. Nauðsynlegt er að móta stefnu til fram- tíðar um uppbyggingu íþróttasvæða í bænum, þar með talið viðhald, stefnu sem unnið er eftir. Það mun Samfylkingin gera fái hún til þess afl eftir kosningar. Settu x við S á kjördag. Ólafur Ingi Óskarsson, skipar 2. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar Sunna Arnardóttir, skipar 6. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar Viðhalds er þörf Þegar þetta er ritað eru rúmar tvær vikur til sveitarstjórnarkosninga, kjörfundur fer fram í Lágafellsskóla laugardaginn 14. maí. Sjö listar eru í framboði og verður kosið um 11 sæti í bæjarstjórn Mosfellsbæjar, fulltrúum verður fjölgað um tvo í samræmi við aukinn íbúafjölda bæjarins. Kosningabaráttan er að komast í algleym- ing, framboð og frambjóðendur keppast við að kynna sig og sín stefnumál. Þetta er um margt áhugaverður tími, kosningar eru tímamót og við horfum í senn til baka og fram í tímann, um leið og við nýtum okkur þann lýðræðislega rétt að velja þá sem við treystum best til að stjórna bæjarfélaginu næstu fjögur árin. Sjö málaflokkar Hér í Mosfellsbæ hafa vinstri-græn boðið fram undir eigin merkjum frá árinu 2006 og allar götur síðan hefur hreyfingin sett mark sitt á stjórn sveitarfélagsins. Á framboðs- lista VG eru 22 Mosfellingar með ólíkan bakgrunn en hafa áþekka sýn á samfélagið. Við viljum stuðla að því að samfélag okkar hér í Mosfellsbæ sé fjölskylduvænt, um- hverfisvænt og byggist á félagslegu rétt- læti og samfélagslegri ábyrgð. Stefnuskrá V-listans hvílir á þessum grunni og skiptist í sjö hluta sem eru: Fræðslumál. Íþrótta- og tómstundamál. Velferðarmál. Jafnréttis- og lýðræðismál. Menningar- og ferðamál. Skipulags-, atvinnu- og umhverfismál. Fjármál. Meðal stefnumála V-listans er að lengja opnunartímann í sund- laugum bæjarins, auka framboð á félagslegum íbúðum, gera leikskól- ann gjaldfrjálsan, vinna aðgerðar- áætlun í loftslagsmálum og skipuleggja Hafravatnssvæðið fyrir aukna útivist. Menningarmál eru okkur einnig ofarlega í huga og vill V-listinn láta vinna heildar- stefnu um rekstur á mannvirkjum sem tengjast menningarstarfsemi í bæjarfélag- inu. VG-stofan og fjölskylduskemmtun Vinstri-græn hafa opnað VG-stofuna í miðrýminu í Kjarna, þar er tekið á móti gestum þriðjudaga - föstudaga kl. 16- 18 og kl. 13-16 laugardaginn 7. maí. Og næstkomandi laugardag, 30. apríl, verður efnt til mikillar fjölskylduhátíðar í Álafoss- kvos, meðal annars verður farið í ratleik, spilað bingó og kynt undir grillinu. Þangað er að sjálfsögðu allir velkomnir. Hér að framan var getið um þau tímamót sem kosningar eru. Við erum stöðugt „að meta stöðuna“ eins og tekið er til orða, horfa um öxl og fram á veginn. Gleymum því þó ekki að njóta andar- taksins og dagsins - gleðilegt sumar, kæru Mosfellingar! Bjarki Bjarnason, skipar 1. sæti V-listans í kosningunum 14. maí. Kjósum V-listann! Undanfarin ár hefur gengið á ýmsu í lífi okkar allra. Margir upplifðu stóran skell þegar heimsfaraldur Covid 19 skall á af miklum þunga. Fólk er í eðli sínu missterkt til að takast á við erfiðleika í lífinu en ég þori að fullyrða að Covid hefur haft áhrif okkur öll, ekki síst börn- in okkar. Það hlýtur að vera erfitt að vera barn á þessum tímum og taka þátt í umræðum um hluti sem börn eiga ekki að þurfa að taka þátt í og hafa áhyggjur af hlutum sem börn eiga heldur ekki að þurfa að hafa áhyggjur af. Mörg þeirra hafa haft áhyggjur af sínu nánasta fólki, verið hrædd um að smita afa sína og ömmur eða aðra nátengda. Mikil umræða hefur verið um bólusetn- ingar barna og maður heyrir þau tala um kosti og galla bólusetninga eins og þau heyra fullorðna fólkið gera. Börn hafa ítrek- að verið send í sóttkví, smitgát, sýnatökur, þau smitast, þau orðið veik ásamt því að þurfa að þola annað álag þessum faraldri samfara. Við verðum nú sem aldrei fyrr að leggja við hlustir og heyra hvað börnin hafa að segja. Hvernig líður börnunum okkar? Samhliða því að hlusta á raddir barna gefst tækifæri til að efla umræður um hag barna og tryggja að sú umræða byggist í grunninn á öryggi barna, velferð þeirra og menntun. Mikilvægt er að skólakerfið taki vel í óskir barna en samhliða tryggi að gæði náms séu ávallt í fyrirrúmi, að öll umgjörð skóla taki vel á móti öllum börnum. Þannig getum við bæði átt gott og gefandi samtal um skóla framtíðar. Hvers vegna eru börn hér á landi látin bíða í marga mánuði eftir greiningu á fjölþættum vanda sínum? Hvers vegna er börnum og aðstandenum þeirra ekki tryggður greiður aðgangur að þeirri þjón- ustu sem þeim ber að fá? Ótal skýrslur hafa verið unnar um mikilvægi málaflokks barna með fjölþættan vanda en lítið hefur áork- ast. Við mjökumst í rétta átt en enn er langt í land og börn á mikilvægum ferli í þroska sínum geta ekki beðið. Nýleg skýrsla um stöðu barna með fjölþættan vanda, unnin af stjórnendum í barnavernd á höfuðborgarsvæðinu, fjallar m.a. um hve óskaplega lengi mála- flokkurinn hefur verið vanræktur. Margt hefur áunnist en einhvern veginn virðast stjórnvöld vera bæði of sein, á eftir og oftar en ekki illa undirbúin undir að taka við börnum með fjölþættan vanda. Getið er í skýrslunni um fundi með þáverandi vel- ferðarráðherra 2012 en nú eru liðin 10 ár. Árið 2020 er málið enn í brennidepli með tilliti til þarfa og þjónustu við þessi börn. Enn liggur þó ekki ljóst fyrir hvar kostnaður vegna þjónustu við börn með fjölþættan vanda skuli liggja og ekki eru enn fyrir hendi þau fjölbreyttu úrræði sem ljóst er að þurfa að vera til staðar. Skýrslan er góð en er þetta nóg? Bætum hag allra barna óháð stétt og stöðu. Lára Þorgeirsdóttir, kennari við Varmárskóla. Skipar 7. sæti á M-lista Miðflokksins fyrir komandi sveitastjórnarkosningar Hvernig líður börnunum okkar? Bíldshöfða 14 | Reykjavík | s. 520 3200 www.artpro.is

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.