Mosfellingur - 28.04.2022, Qupperneq 50

Mosfellingur - 28.04.2022, Qupperneq 50
Heilsumolar gaua - Aðsendar greinar50 Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is mikilvægi leiðtoga Ég hef verið stuðningsmaður Nottingham Forest síðan ég man eftir mér. Það er búið að vera sér- staklega áhugavert að fylgjast með liðinu á núverandi tímabili en liðið spilar í næstefstu deild á Englandi. Eftir fyrstu 7 umferðirnar var liðið með 1 stig í neðsta sæti. Þáverandi knattspyrnustjóri var varfærinn og varnarsinnaður og liðið lagði mesta áherslu á að reyna að tapa ekki (sem það gerði samt) og að fá ekki á sig mörk (sem það gerði). Hann breytti aldrei um aðferð, sama hvað illa gekk og á endanum fengu eigendur félagsins nóg, ráku hann og fengu Steve nokkurn Cooper til að taka við. Aðdáendur liðsins voru himinlif- andi að losna við áhættufælna knattspyrnustjórann en flestir vildu fá reynslumeiri og þekktari stjóra en Steve Cooper. Staðan í dag, þegar örfáar umferðir eru eftir af deildinni, er sú að Forest er í toppbaráttu. Liðið er öruggt um sæti í úrslitakeppni um að komast upp í úrvalsdeildina og á, þegar þetta er skrifað, möguleika á því að enda í öðru sæti deildarinnar og komast þar með beint upp. Viðsnúningurinn hefur verið ótrúlegur frá því að varfærni stjórinn sem engu vildi breyta kvaddi klúbbinn. Í dag ríkir bjartsýni og gleði. Menn þora, trúa og fram- kvæma samkvæmt því. Samstaða innan liðs og utan er mögnuð, allir stefna í sömu átt. Leikmenn njóta þess að spila jákvæðan fótbolta og að vera hluti af öflugri liðsheild. Og þetta smitar, Nottingham er eins og Akranes, þegar vel gengur í boltan- um eru allir brosandi og kátir. Allt verður auðveldara og einfaldara. Steve Cooper fær fólk til að trúa, til að vinna saman, til að vera stolt af fortíðinni og til að gera nútíð og framtíð betri. Hann tengir við leikmenn, stjórnarmenn, eigendur og stuðningsmenn. Allir skipta máli hjá honum. Það er stutt í kosningar. Það skiptir máli hver stjórnar. Við þurfum ekki öll að sigra heim- inn. Margt smátt gerir eitt stórt og þannig ber okkur að hugsa þegar kemur að aðgengi. Við skulum fyrst og fremst huga að okkar nærumhverfi og þeim verkefnum sem við sjálf vinnum að og standa okkur nærri. Hér koma nokkrar hugmyndir um hluti sem ég tel mikilvæga og ættu allir að geta fundið eitthvað sem þeir geta gert: Stofnanir og fyrirtæki þurfa að innleiða aðgengi í alla sína vinnuferla og hafa að- gengi til hliðsjónar í öllum ákvörðunum sem teknar eru. Aðgengismál eiga að vera hluti af fyrirtækjamenningu. Hér koma nokkur dæmi um aðgengi innan stofnana og fyrirtækja: • Aðgengi hjólastóla, rampar, skábrautir o.s.frv. • Skýrar og góðar umhverfismerkingar. • Gæta þess að handrið sé á öllum tröppum og þær merktar með afgerandi lit, þ.e. tröppunef. • Engar hindranir á gangvegi. Leiðarlínur og áherslusvæði fyrir blinda og sjónskerta. • Huga að hljóðvist. Er mikill kliður eða bergmál? • Hafa þægilega og góða lýsingu. • Aðgengi að salernum fyrir fatlaða. • Góðar og skýrar merkingar á lyftuhnöppum. Talandi lyftur. • Aðgengileg heimasíða. • Ekki aðeins huga að aðgengi fyr- ir viðskiptavini. Starfsfólk nýtur einnig góðs af góðu aðgengi. • Bjóða upp á að hafa samband í síma, spjallglugga og tölvupósti eða að koma á staðinn. Sami samskiptamátinn hentar ekki öllum. • Huga þarf að aðgengi þegar kemur að lausnum á borð við sjálfsafgreiðslukassa, hraðbanka, innskráningarskjái o.fl. • Huga að aðgengi utandyra sem og innandyra. • Vera með augljósar og opnar sam- skiptaleiðir þar sem almenningur getur komið ábendingum til skila, t.d. varðandi aðgengismál. Þegar verið er að byggja, breyta eða endurnýja húsnæði skal huga að aðgeng- ismálum frá upphafi. Kröfur um aðgengi og algilda hönnun má m.a. finna í núgildandi byggingarreglugerð. Einnig þarf við hönn- un, breytingu eða skipulagningu á svæði utandyra að huga að aðgengi og má þar nýta sér nýlegar leiðbeiningar um „Hönn- un fyrir alla – algild hönnun utandyra“ sem nálgast má á vef Vegagerðarinnar. Við smíði á nýju vefsvæði eða smáforriti er brýnt að huga að aðgengismálum frá upphafi og í gegnum allt ferlið. Notast skal við WCAG aðgengisstaðalinn þegar kemur að stafrænu aðgengi, gera notendaprófanir o.s.frv. Einstaklingar sem vilja láta gott af sér leiða og stuðla að auknu sjálfstæði blindra og sjónskertra geta t.d. sótt smáforritið Be My Eyes og skráð sig sem sjálfboðaliða. Almenningur getur einnig sent ábend- ingar á sveitarfélög í gegnum heimasíður þeirra, komi þeir auga á eitthvað sem betur má fara, t.d. bilaða ljósastaura, illa farna göngustíga, óaðgengilegar byggingar eða vefsíður o.s.frv. Komum ábendingum áleiðis frekar en að bölva í hljóði. Listinn hér að ofan er langt frá því tæmandi og það er fjölmargt sem við sem einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir getum gert, auk ríkis og sveitarfélaga. Ef þú hefur einhverjar spurningar, vilt óska eftir ráðgjöf eða fá frekari upplýs- ingar, hvet ég þig til að hafa samband við okkur hjá Blindrafélaginu í síma 525 0000 eða senda tölvupóst á netfangið adgengi@ blind.is. Hlynur Þór Agnarsson, aðgengisfulltrúi Blindrafélagsins Hvað geta einstaklingar og fyrirtæki gert til að bæta aðgengi? Það er ljóst að Borgarlínan komi ekki upp í Mosfellsbæ fyrr en um eða upp úr árinu 2030. Eigum við að bíða eftir umbótum á almenningssamgöngum eða eigum við gera eitthvað strax? Við hjá Vinum Mosfellsbæjar viljum kasta fram þeirri hugmynd hvort ekki væri hagkvæmara að stóru dísel strætisvagnarnir sem nú ganga á milli Reykjavíkur og Mos- fellsbæjar fari eingöngu um Vesturlandsveg í Háholt og til baka um Vesturlandsveg. Í stað þess að þræða þröngar íbúðagötur með tilheyrandi mengun og sliti á götum. Í innanbæjarakstri verði þess í stað notast við litla, umhverfisvæna söfnunarvagna sem verði í stanslausum ferðum um hverf- in, safni saman farþegum og skili í Háholt þar sem stærri vagnar taka við og flytji fólk áfram til Reykjavíkur. Þessa söfnunarvagna má svo nýta áfram þegar Borgarlínan kemur. Við fyrstu sýn gæti þessi aðferð lækkað kostnað Mos- fellsbæjar til almenningssamgangna, aukið þjónustustig og síðast en ekki síst minnkað kolefnisspor þessarar þjónustu. Vinir Mosfellsbæjar vilja beita sér fyrir því að hugmyndin verði skoðuð í samráði við notendur þjónustunnar og íbúa alla í anda íbúalýðræðis. Viljum við ekki öll vera vinir – umhverf- isins? Guðmundur Hreinsson skipar 2. sætið hjá Vinum Mosfellsbæjar Strætóleiðir og almenningssamgöngur Skannið QR kóða til að sjá skýringarmyndband. Hvernig er Mosfellsbær að standa sig á landsvísu við að veita nem- endum, foreldrum og skólum þann stuðning sem þarf svo að almenn vellíðan og námsframvinda sé í hávegum höfð? Þann 28. maí 2019 tók gildi ný reglugerð um skólaþjónustu sveit- arfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum nr. 444/2019. Þar er kveðið á að skólaþjónust- an eigi að vera stuðningur við nemendur og foreldra í leik- og grunnskólum. Skóla- þjónustu ber að veita fjölbreytta ráðgjöf og stuðning til foreldra og þeirra nemenda sem glíma við sálfræðilegan, þroskafræði- legan, félagsfæðilegan eða hreyfifræðilegan vanda. Oft birtist þessi vandi í formi virkni, félagslegri færni, hegðun, tilfinningavanda, samskipta- eða einbeitingarvanda svo eitt- hvað sé nefnt Seinni liðurinn í reglugerðinni snýr að því að veita beri skólum og starfsmönnum þeirra stuðning og ráðgjöf eftir því sem við á í formi kennslufræðilegra leiðbeininga og aðstoðar. Á skólaskrifstofunni í Mosfells- bæ starfar mjög öflugur hópur fag- fólks hvert á sínu sviði en því miður of fáliðuð miðað við fólksfjölgun í bæjarfélaginu síðustu ár. Markvisst þarf að finna leiðir til að stytta greiningartímann, hafa greiðan aðgang að meðferðarúrræðum og fagaðilum svo hægt sé að vinna strax á þeim þáttum sem einstaklingurinn þarfn- ast hverju sinni. Æskilegast væri að hafa þjónustuna sem mest í nærumhverfi. Svo að efla megi skólaþjónustuna enn frekar er mikilvægt að ráða sérhæfðan verkefnastjóra sem myndi skipuleggja og klára innleiðinguna sem byrjað var á við að tölvu- og tæknivæða leik- og grunnskólana í formi kennslu á hugbúnað og þeim mögu- leikum sem hægt er að nýta við kennslu. Einnig þyrfti að ráða annan verkefn- isstjóra sem myndi sjá um að efla lestur, fjölbreytta kennsluhætti, fjölbreyttara samskólaval á eldri stigum grunnskóla í Mosfellsbæ og vera stuðningur í að byggja upp og innleiða öflugt tengslanet fyrir at- vinnutengt nám svo eitthvað sé nefnt. Við höfum því kjörið tækifæri til að gera enn betur í þessum málum í Mosfellsbæ. Að auki má velta þeirri spurningu upp hvað er verið að gera fyrir afburðarnem- endur? Er það nægjanlegt sem gert er? Við þurfum fleira sérhæft fagfólk inn í skólaþjónustuna til að aðstoða nemendur og aðstandendur þeirra sem og að vera kennslufræðilegur stuðningur við skólana inn í langa framtíð. Örlygur Þór Helgason Sérkennari við Kvíslarskóla Skipar 2. sæti á M-lista Miðflokksins í Mosfellsbæ Eflum skólaþjónustuna í Mosfellsbæ

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.