Fréttablaðið - 07.09.2022, Blaðsíða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Í lok ágústmánaðar tók Halldóra
Gyða Matthíasdóttir Proppé þátt
í UTMB-hlaupinu í Ultra Trail du
Mont Blanc-hlaupaseríunni, þar
sem hlaupið er hringinn í kringum
Mt. Blanc-fjallið sem liggur við
landamæri Frakklands, Ítalíu og
Sviss. Hlaupið er oft kallað „mekka
fjallahlaupanna“ en það er 100
mílur (172 kílómetrar) með rúm-
lega 10.000 metra samanlagðri
hækkun. Hlaupið byrjar í Frakk-
landi í bænum Chamonix og fer í
gegnum Ítalíu og Sviss og þaðan
aftur til Frakklands.
„Ég reyndi við þetta hlaup árið
2017 en náði ekki að klára þar sem
ég fékk áreynsluastma, sem ég vissi
ekki að ég væri með og þurfti því
að hætta eftir rúmlega 80 kíló-
metra. Síðan þá hef ég glímt áfram
við astmann, en er núna með
astmalyf sem hjálpa mér þegar
köstin koma. Ég æfði mjög vel fyrir
hlaupið og fór auk þess út sem
annar tveggja fararstjóra á vegum
Náttúruhlaupa með tvo hlaupa-
hópa sem hlupu á sex dögum hluta
úr hring sem kallast TMB (Tour
du Mont Blanc), samtals um 130
kílómetrar. Ég náði því samtals 300
kílómetra fjallahlaupaæfingum
í Ölpunum í sumar með rúmlega
20.000 metra hækkun.“
Ólýsanleg tilfinning
Það eru krefjandi tímamörk í
UTMB og í ár var 32% brottfall hjá
þátttakendum, þar af 43% brott-
fall hjá konum, segir hún. „Ég var
aldrei buguð í hlaupinu, var alltaf
glöð og ákveðin að klára, þótt ég
hefði áhyggjur af astmanum sem
tafði mig í bröttustu brekkunum
og ég fékk aðeins í magann eins og
algengt er í fjallahlaupum.“
Hún segir tilfinninguna að klára
þetta hlaup vera einstaka og eigin-
lega ólýsanlega. „Ég er alltaf með
þrjú til fjögur markmið þegar ég
fer í krefjandi hlaup. Númer eitt er
að komast að ráslínu, sem er ekki
sjálfsagt. Það var einstök tilfinning
að vera við ráslínuna fyrir framan
kirkjuna í Chamonix þegar lagið
Conquest of Paradise eftir Vangelis
var spilað. Þá komu tár á hvarma.
Að vera þarna ásamt rúmlega
2.600 öðrum hlaupurum, þar sem
konur voru einungis um 9% hlaup-
ara, var algjörlega magnþrungið.“
Markmið númer tvö er að hafa
gaman alla leið sem hún gerði svo
sannarlega. „Enda er það hugarfar
sem þú stjórnar þrátt fyrir áföll.
Markmið númer þrjú er að komast
í mark, sem er alls ekki sjálfsagt,
enda mikið brottfall og það var
stórkostlegt að klára hlaupið.“
Hún segir sér hafa liðið eins
og sigurvegara á lokametrunum
þegar hún hlustaði á fagnaðarlæti
og hvatningu allra sem tóku á móti
henni á göngugötunni í Chamonix
um miðjan dag á sunnudeginum.
„Ég var svo sem sigurvegari í
mínum huga þar sem ég hafði náð
öllum markmiðum mínum og
þetta var þvílíkur sigur. Svo var
skálað í ísköldu Egils appelsíni í
markinu og ég knúsaði mömmu og
alla vini mína.“
Leiddist út í þríþrautina
Halldóra starfaði á árum áður hjá
Íslandsbanka þar sem starfsfólk
var hvatt til að taka þátt í Reykja-
víkurmaraþoni og styðja um
leið gott málefni. „Ég byrjaði að
hlaupa 2009 meðan ég starfaði þar
og hljóp mitt fyrsta maraþon og
Laugavegshlaup árið 2011. Síðan þá
hef ég hlaupið átta maraþon og sjö
Laugavegshlaup. Hlaupin þróuðust
svo í þríþrautina, þar sem ég keppti
fimm sinnum í Ironman-keppnum
í Evrópu og Bandaríkjunum.“
Samhliða þríþrautinni færði hún
sig meira yfir í utanvegahlaupin og
hefur verið þjálfari hjá Náttúru-
hlaupum frá 2014. „Ég lauk fyrsta
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Halldóra var í skýjunum eftir 172 kílómetra hlaupið. Skömmu síðar var skálað í ísköldu Egils appelsíni. MYNDIR/MAINDRU PHOTO
Útsýnið var oft
stórkostlegt á
hlaupaleiðinni
þar sem falleg
fjöllin blöstu við
hvert sem horft
var.
Hlauparar þurftu að takast á við brattar brekkur.
Aðstæður voru
með ýmsu
móti á leiðinni
og stundum
þurfti að hlaupa
varlega í stór-
grýtinu.
Að upplifa fegurð-
ina, jörðina, sólina,
tunglið, lyktina og fugla-
sönginn á hlaupum er
svo magnað.
Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé
100 kílómetra hlaupinu mínu 2014
en ég hef klárað tíu hlaup sem eru
100 kílómetrar eða lengri. Árið
2018 kláraði ég fyrsta 100 mílna
(170 kílómetra) hlaupið mitt en
ég hef hlaupið fjögur hlaup sem
eru lengri en 100 mílur. Í ágúst á
síðasta ári hljóp ég svo 330 kíló-
metra hlaup sem heitir Tor des
Geants 330, en þá hljóp ég í 145
tíma og 55 mínútur á Ítalíu hring-
inn í kringum Ávaxtadalinn.“
Veita gleði og orku
Hún segir hlaupin færa sér mikla
gleði og orku. „Það er fátt sem
toppar það að hlaupa úti í nátt-
úrunni í góðum félagsskap yndis-
legra félaga og vina. Að upplifa
fegurðina, jörðina, sólina, tunglið,
lyktina og fuglasönginn á hlaupum
er svo magnað. Maður kemst líka
yfir ótrúlega langa vegalengd og
líðanin eftir hlaupin er góð. Það er
notalega tilfinning að vera þreytt
líkamlega en úthvíld andlega og
með aukna orku til að njóta vinnu-
dagsins eða kvöldsins,“ segir Hall-
dóra en hún starfar á velferðarsviði
Reykjavíkurborgar.
Styður konur í fjarlægum löndum
Halldóra er einnig sendiherra fyrir
samtök sem heita Free to Run og
ganga út á að gera konum kleift að
fá að fara út og hreyfa sig sem og
styðja þær til mennta og sjálfs-
styrkingar. „Okkur finnst sjálfsagt
að geta farið út að hlaupa en á
mörgum stöðum í heiminum er
það alls ekki sjálfsagt eins og til
dæmis í stríðshrjáðum löndum
eins og Írak og Afganistan. Þar
mega konur ekki fara út að hlaupa
og eru líklegri til að verða fyrir
ofbeldi. Það er hægt að fá frekari
upplýsingar um samtökin á free-
torun.org og heita á mig og styðja
þannig þetta góða málefni.“
Viðburðaríkt ár fram undan
Það er ekki langt í næstu keppni
hjá Halldóru en hún er að fara
sem hópstjóri með hóp á vegum
Bændaferða í Berlínarmaraþonið
í lok þessa mánaðar. „Á næsta ári
erum við í Náttúruhlaupunum að
fara með hóp til Nepal, þar sem við
ætlum að hlaupa hæsta maraþon
í heimi. Þá er hlaupið frá grunn-
búðum Everest niður til Namche
Bazaar. Maraþonið byrjar í 5.356
metra hæð og endar í 3.440 metra
hæð. Einnig ætlum við að fara
með hóp á vegum Náttúruhlaupa
í Landvættaferðalag sem er alltaf
mjög skemmtilegt.“ n
2 kynningarblað A L LT 7. september 2022 MIÐVIKUDAGUR