Fréttablaðið - 07.09.2022, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 07.09.2022, Blaðsíða 32
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, Stefán Ingi Hermannsson (Bói) rafvirkjameistari, lést á Landspítalanum þann 5. september síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Guðríðarkirkju í Grafarholti þann 12. september kl. 13. Hrafnhildur Björg Gunnarsdóttir Hlynur Stefánsson Sindri Stefánsson Sigrún Ben Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Unnur Svandís Magnúsdóttir Melbæ 7, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 8. september kl. 13. Athöfninni verður streymt á: https://youtu.be/V113NURdzpE Magnús G. Benediktsson Birgitta Thorsteinson Hólmfríður Benediktsdóttir Þorgils Ingvarsson barnabörn og barnabarnabörn. arnartomas@frettabladid.is Gunnar Lárus Hjálmarsson, einnig þekktur sem Dr. Gunni, leiðir svokallaða pönkgöngu í Kópavoginum í hádeginu í dag. Gangan hefst á Bókasafni Kópavogs og liggur um Hamraborgina sem varð einhver helsti pönkvettvangur Íslands við upphaf níunda áratugarins. „Við byrjum á bókasafninu korter yfir tólf og þaðan verður stefnan sett inn í steinsteypufrumskóginn Hamraborg,“ segir Gunni. „Ég byrja söguna á Félags- heimilinu í Kópavogi sem má segja að sé vagga pönksins á Íslandi.“ Félagsheimilið var byggt í Hamra- borginni, að Fannborg 2, árið 1959. Þar voru salir þar sem haldnar voru kvik- mynda- og leiksýningar en líka fjöl- margir tónleikar. Aðstaðan varð að mið- stöð fyrir íslenska pönkara og léku þar meðal annars sveitir á borð við Fræbbbl- ana og Utangarðsmenn. „Kópavogur var yngsta sveitarfélagið, þar var mikill uppgangur og stuð. Það var mikið af ungum krökkum og allir til í þetta.“ Það voru ákveðin kaf laskil þegar Bubbi Morthens kom fram með Utan- garðsmönnum 1980 en Gunni spilaði á gítar á þeim sömu tónleikum með sveit- inni Dordinglum. „Ég bjó þarna rétt hjá og frelsaðist þarna til pönksins,“ segir hann. „Þetta voru fyrstu tónleikarnir sem ég spilaði á.“ Skammlíf gróska Gríðarleg stemningin í pönkinu var meðal annars tilkomin af langvarandi þreytu nýrrar kynslóðar á poppi og rokki á Íslandi á þeim tíma. „Þetta var búið að vera sama fólkið meira og minna allan áratuginn á undan – HLH f lokkurinn, Brimkló, Nína og Geiri, og hvað þetta hét allt. Það voru margir sem fundu sig ekki í þessu poppi og voru að bíða eftir einhverju,“ segir Gunnar. „Það gerðist svo þegar Fræbbbl- arnir voru þarna að pönka og Bubbi sló í gegn sem það koma þessi skörpu kafla- skil í íslenska rokksögu. Það kemur ný kynslóð inn og það myndast svaka rígur þar á milli.“ Sá rígur speglast ansi vel í línu Utan- garðsmanna í laginu Rækjureggae: „Ég er löggiltur öryrki, hlusta á HLH og Brimkló.“ „Þetta tímabil, sem hefur síðan verið kallað Rokk í Reykjavík-tímabilið, var þó ansi stutt,“ segir Gunnar. „Friðrik Þór skaut heimildarmyndina þegar þetta allt var að gerast og það má segja að tíma- bilið hafi eiginlega dáið þegar hann frumsýndi þá mynd 1982. Þetta eru ekki nema tvö ár, en það var gríðarleg gróska sem átti sér stað þarna.“ Pönkgangan hefst klukkan 12.15 og er þátttaka ókeypis. n Gengið um vöggu pönksins Dr. Gunni leiðir gönguna í myrkviði stein- steypu-frumskógar Hamraborgar. MYND/AÐSEND Fulltrúar frá Landvarðafélagi Íslands munu fræða gesti Ljós- myndasafns Reykjavíkur um áskoranir í landvörslu og deila skemmtilegum sögum úr starfi. arnartomas@frettabladid.is Í tengslum við sýninguna Landvörður sem stendur yfir á Ljósmyndasafni Reykjavíkur munu fulltrúar Landvarða- félags Íslands f lytja erindi á safninu á fimmtudag klukkan 16. Þar munu þær Nína Aradóttir, formaður Landvarða- félagsins, og Júlía Björnsdóttir, land- vörður í Öskju, fjalla um mikilvægi nátt- úrutúlkunar, segja skemmtilegar sögur úr starfinu og fjalla um áskoranir sem stéttin stendur frammi fyrir. „Það var bara brennandi áhugi á nátt- úrunni og náttúruvernd,“ svarar Nína aðspurð hvað laðaði hana að starfinu en hún er einnig í doktorsnámi í jökla- jarðfræði. „Þetta vinnur vel saman.“ Þær áskoranir sem landverðir á Íslandi standa frammi fyrir í dag eru að sögn Nínu að miklu leyti tilkomnar vegna samspils þess að við viljum vernda nátt- úruna á sama tíma og við viljum bjóða fólki inn á svæðin og sýna því hana. „Við erum enn þá að vinna úr því að eftir að ferðamannastraumurinn á Íslandi jókst þá hefur landvarslan að mínu mati verið undirfjármögnuð,“ segir hún. „Það eru ekki nógu margir að sinna störfunum sem við eigum að vera að sinna.“ Sem dæmi um svæði sem hefur orðið fyrir barðinu á auknum ágangi ferða- manna nefnir Nína Friðland að Fjalla- baki þar sem hún hefur unnið á undan- förnum árum. „Þótt það hafi margt gott gerst þar síðastliðin sumur þá höfum við ekki náð að standa straum af öllum þeim verkefnum sem eru þar miðað við fjölda ferðamanna,“ útskýrir hún. „Þetta snýst bæði um að halda svæðinu snyrtilegu en líka að fræða og tryggja öryggi gesta. Við verðum að þekkja færð og aðstæður á leiðum sem fólk gengur og keyrir og að halda þeim í góðu ástandi.“ Nína segir að verkefnin geti verið tímafrek, til dæmis í Landmannalaugum þar sem mikið er um langar gönguleiðir. Nýlegt dæmi um ágang á náttúruna var utanvegaakstur í Vatnajökulsþjóðgarði sem rataði í fjölmiðla á dögunum. „Þótt lífríkið á þessum stöðum sé ekki augljóst þá er það mjög mikilvægt. Förin sem bílarnir skilja eftir geta breytt svo miklu því þeir geta skilið eftir rás sem breytir farvegi vatns sem getur haft keðjuverkandi áhrif á svæðinu, segir Nína. „Þegar keyrt er á grónum svæðum, að ég tali nú ekki um á mosavöxnum svæðum, þá geta áhrifin verið enn alvar- legri. Svo hefur þetta líka sjónræn áhrif sem getur skemmt upplifun fólks af svæðinu. Mikilvægasta forvörnin þegar kemur að utanvegaakstri er í rauninni fræðsla.“ n Áskoranir í landvörslu Erindið tengist yfirstandandi sýningu Jessicu Auer landvarðar. MYND/JESSICA AUER Merkisatburðir 1191 Ríkharður ljónshjarta sigrar Saladín í orrustunni við Arsuf. 1533 Elísabet 1. Englandsdrottning fæðist. 1812 Frakkar ráðast inn í Rússland og baráttan um Borodino hefst. Sú barátta reynist sú blóðugasta á ferli Napóleons hershöfðingja. 1821 Simón Bólivar stofnar lýðveldið Stór-Kólumbíu. 1822 Brasilía lýsir yfir sjálfstæði frá Portúgölum. 1895 Fyrsti rúgbí-leikurinn er spilaður á Englandi. 1921 Fyrsta keppnin um Ungfrú Ameríku er haldin í Atlanta. 1927 Fyrsta sjónvarpið sem er algjörlega rafrænt kemur á markað. 1936 Bandaríski söngvarinn Buddy Holly fæðist. 1940 Þýskar sprengjuflug- vélar hefja árásir á Lundúnir. 1947 Ísland gerist aðili að Bernarsáttmálanum. 1959 Alfreð Gíslason hand- boltamaður fæðist. 1973 Mósaíkmynd Gerðar Helgadóttur er afhjúpuð á vegg Tollstöðvarhússins í Reykjavík. 1986 Desmond Tutu verður fyrsti svarti maðurinn sem leiðir evangelíska kirkju í Suður-Afríku. 1987 Leikkonan Evan Rachel Wood fæðist. 1992 Haraldur 5. og Sonja, konungshjón Noregs, heim- sækja Ísland í þrjá daga. 1996 Rapparinn og leikarinn Tupac Amaru Shakur er skotinn fjórum sinnum. Hann deyr af sárum sínum sex dögum síðar. 1999 Yfir 140 farast í jarðskjálfta í Aþenu. TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 7. september 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.