Fréttablaðið - 07.09.2022, Blaðsíða 16
njall@frettabladid.is
Toyota áætlar að fjölga mikið raf-
bílum sínum á næstunni og meðal
þeirra er nýr bZ3 sem hingað til
hefur verið haldið leyndum. Þökk
sé myndum sem lekið var af kín-
verskri einkaleyfisstofu er hægt
að sjá hvernig nýi bíllinn mun líta
út. Eins og búist var við líkist hann
talsvert bZ SDN-tilraunabílnum
sem kynntur var í fyrra ásamt 10
öðrum tilraunaraf bílum Toyota.
Þótt Toyota hafi ekkert gefið
upp um tæknibúnað bZ3 má
fastlega búast við því að hann
noti sama eTNGA-undirvagn og
bZ4X. Það þýðir að hann verður
með sömu 71,4 kWst rafhlöðu og
systurbíllinn. Þá verður einnig
möguleiki á fjórhjóladrifi með
samtals 215 hestöflum og 337 Nm
togi. Búast má við meira drægi en
í bZ4X vegna minni loftmótstöðu
bZ3. Bíllinn er 4.725 mm langur og
1.835 mm breiður sem eru mjög
svipaðar stærðartölur og í Toyota
Camry. n
Myndum af Toyota bZ3 lekið á netið
Að framan verður ljósalína á milli aðalljósanna og afturrúðan nær langt aftur
sem gefur bílnum sportlegra hlaðbaksútlit.
Brabus-útgáfa smart #1 verður sportleg með rauðum lit á þaki og 19 tommu
felgum sem fer vel við þau 422 hestöfl sem bíllinn hefur úr að moða.
njall@frettabladid.is
Ekki er langt síðan smart #1
var frumsýndur en nú þegar er
Brabus- breytingafyrirtækið
búið að fá að setja mark sitt á
bílinn, líkt og á Mercedes EQS.
Brabus-útgáfan verður á sama
Geely SEA-undirvagninum en
fær tvo mótora, hvorn á sinn
öxul. Þess vegna verður bíllinn
með fjórhjóladrifi og samtals 422
hestöflum ásamt 543 Nm togi.
Það þýðir að þessi létti bíll verður
aðeins 3,9 sekúndur í hundraðið.
Eins og sjá má verður bíllinn með
endurhönnuðum stuðurum og
kæliraufum undir húddinu.
Brabus-útgáfan fær 19 tommu
felgur og rauðan lit á móti matt-
gráum aðallit. Engar tölur eru
komnar yfir verð á bílnum en
hann verður frumsýndur hér-
lendis samhliða smart #1 um mitt
næsta ár, að sögn Jónasar Kára
Eiríkssonar hjá Öskju. Hefst for-
sala á bílunum næsta vor og mun
þá verð þeirra liggja fyrir. n
Brabus-útgáfa smart #1 fær 422 hestöfl
Skoda hefur átt velgengni
að fagna með fyrsta raf-
bíl sínum Enyaq og áætlar
merkið að frumsýna þrjá
nýja rafbíla fyrir árið 2026.
Skoda Vision 7S tilrauna-
bíllinn er forsmekkurinn
af nýjum og ferskum hug-
myndabíl sem verður enn
stærri en Enyaq.
njall@frettabladid.is
Um er að ræða sjö sæta bíl en það
sem er sérkennilegt við hann er að
hann verður með sex sætum fyrir
fullorðna. Sjöunda sætið er barna-
sæti sem er fest við hryggjarstykk-
ið í bílnum ef svo má segja en það
er eftir endilangri miðju bílsins.
Um nýtt útlit er líka að ræða
með Vision 7S. Munar þar mest
um breytingar á framenda sem
er nú ekki lengur með lóðréttu
Skoda-grillinu. Þess í stað eru sjö
lóðréttar innfellingar sem geyma
tæknibúnað og skynjara sem þarf
fyrir sjálfkeyrandi bíla. Ljósin
eru líka ný af nálinni, með T-laga
aðalljósum með ljósarák á milli.
Loks er merki Skoda ekki lengur
sýnilegt og er það nú einfaldlega
sýnt með stöfum.
Innandyra er 14,8 tommu
snertiskjár milli sætaraðanna en
hægt er að snúa fremstu sætunum
tveimur í áttinni að skjánum.
Stýrið er í áttina að sporöskjulagi
og einungis tveggja arma, en fyrir
aftan það er 8,8 tommu upplýs-
ingaskjár. Meðal sniðugra lausna
hjá Skoda eru bakpokar sem búið
er að fella inn í bak framsætanna
auk segla sem komið er fyrir víða
um bílinn til að halda farsímum
eða járnflöskum á sínum stað.
Tilraunabíllinn er með 89 kWst
rafhlöðu og drægi upp á 600 km
og verður með stærsta MEB-
undirvagni sem sést hefur hingað
til. Meðal annarra raf bíla sem
vænta má frá Skoda fyrir 2026 er
nýr smábíll sem kosta á innan við
20.000 evrur. n
Skoda forsýnir Vision 7S
Nýtt og ferskt útlit einkennir Skoda Vision7S sem leggja mun drögin að nýju heildarútliti merkisins.
Innanrýmið er hannað utan um miðjustykkið í bílnum með sjöunda sætið
sem nokkurs konar barnasæti, en ekki er víst að það nái á framleiðslustigið.
Tilraunabíllinn er
með 89 kWst raf-
hlöðu og drægi upp á 600
km og verður með
stærsta MEB-undirvagni
sem sést hefur hingað til.
ERT ÞÚ EKKI
NÓGU HARÐUR?
Man Power er hannað fyrir karlmenn sem
vilja auka orku og úthald í rúminu.
Man Power inniheldur gingseng ásamt
amínósýrum sem hafa jákvæð áhrif á þessa
þætti.
M
an
P
ow
er
fæ
st
í
Fj
ar
ða
rk
au
p,
H
ag
ka
up
o
g
a
p
ót
ek
um
.
2 BÍ L A BL A ÐI Ð 7. september 2022 MIÐVIKUDAGUR