Fréttablaðið - 07.09.2022, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 07.09.2022, Blaðsíða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@ frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is DC 8900 Fallegur 3ja sæta sófi með mjúku savoy/split leðri. 224 x 86 x 80 cm. 263.992 kr. 329.990 kr. www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 *Verð og vöru upp lýsingar í auglýs ingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Danskir DAGAR AFSLÁTTUR AF ÖLLUM 20% DÖNSKUM VÖRUM* FRIDAY Tungusófi. Þægilegur og notalegur sófi í gráu Bari áklæði. 256 x 175 x 91 cm. 175.992 kr. 219.990 kr. CHRISTO Borðstofuborð. Hvítolíuborin eik. Ø120 cm. Nú 111.992 kr. 139.990 kr. Þú finnur bæklinginn á husgagnahollin.is eða með því að skanna QR kóðann DICE Sófaborðasett, hvítt eða svört marmaraáferð. 58 x 58 x 40 cm. 47.992 kr. 59.990 kr. AMBLE Sófaborð, brúnt marmara melamín. Ø77 x 44 cm. 27.992 kr. 34.990 kr. Siglfirðingar halda minn- ingu Gunnars Birgissonar, fyrrverandi bæjarstjóra í Kópavogi og Fjallabyggð, á lofti og briddsfélag bæjarins hélt í liðinni viku veglegt mót honum til heiðurs enda sinnti hann spilinu af einurð og alúð eftir að hann fluttist norður. bth@frettabladid.is Margar sögur voru sagðar af bridds- spilaranum Gunnari Birgissyni, fyrrverandi þingmanni og bæjar- stjóra í Kópavogi og Fjallabyggð, á minningarmóti sem Bridgefélag Siglufjarðar hélt í liðinni viku. Mótið nefndist Northern Lights Bridge Festival. Glæsileg peninga- verðlaun voru í boði fyrir þá sem hrepptu þrjú efstu sætin, annars vegar í tvímenningi og hins vegar sveitakeppni. Öflugur styrkjahöfðingi Við mótsetningu þakkaði Ólafur Jónsson, fyrir hönd Bridgefélags Siglufjarðar, Gunnari einum nán- ast alfarið fyrir hve vel tókst til að safna fé fyrir mótið sem og önnur mót sem Gunnar kom að. Ólafur sagði að húmoristinn Gunnar hefði verið þekktur fyrir að senda fyrst út reikning áður en hann hringdi í fyrirtækin með þeim orðum að hann þakkaði styrktar- fjárhæðina. Þeir sem hann ræddi við hefðu aldrei átt neinn séns á að neita erindinu. Stöndug og stór fyrirtæki þurftu að punga út meira fé en þau minni. Gunnar lést 14. júní 2021 eftir veikindi. Hann setti alla tíð sinn svip á samfélagið, hvar sem hann bjó, bæði nær og fjær. Þegar Gunnar f lutti norður til Siglufjarðar úr Kópavoginum varði hann drjúgum tíma í að glæða veg briddsíþróttarinnar fyrir norðan, enda mikill áhugamaður um fram- gang spilsins sem hann unni mjög. Gátu loks þakkað fyrir sig Vegna Covid þurfti að fresta stór- mótinu á Siglufirði á sínum tíma. Það var því nokkru eftir hinsta dag Gunnars sem briddsspilarar frá öllu landinu fengu tækifæri til að koma saman í minningu hans og þakka fyrir sig. Hæstu peningaverðlaun á Siglufjarðarmótinu, sem fram fór í íþróttahúsinu, námu 750.000 krónum. Vandað til verka Aðalsteinn Jörgensen, einn spilar- anna sem lönduðu heimsmeistara- titli árið 1991 í Yokohama, skrifar þannig um Gunnar: „Gunnar var einkar stórhuga varðandi alla umgjörð þessara móta og vandaði vel til verka. Auð- vitað gerði hann þetta ekki allt sjálfur, heldur virkjaði heimafólk á Siglufirði og þar munaði mikið um hinar fjórar fræknu, eins og ég kalla þær,“ segir Aðalsteinn og vísar þar til máttarstólpa í héraði. Síðasta stórmótið Í fyrsta sæti á mótinu varð sveit Sessor með 128,50 stig. Þar spiluðu Hrannar Erlingsson, Gunnar B. Helgason, Egill D. Brynjólfsson og Ari Konráðsson. Í öðru sæti varð sveit Íslensks landbúnaðar með 119,62 stig. Í sveit- inni spiluðu Höskuldur Gunnars- son, Gunnar Þ. Gunnarsson, Björn Snorrason og Pálmi Kristmannsson. Í þriðja sæti varð sveit Myllunnar með 118,49 stig. Í þeirri sveit spiluðu Helgi Sigurðsson, Gísli Steingríms- son, Haukur Ingason og Skafti Jóns- son. Anton Haraldsson og Guðmund- ur Halldórsson unnu tvímenn- inginn. Ekki er að óbreyttu útlit fyrir f leiri stórmót í bridds á Siglufirði, enda Gunnar Birgisson allur. Briddsspilarar minnast Gunnars með þökk og virðingu, að sögn Ólafs Jónssonar. n Gunnars Birgissonar minnst með glæsilegu stórmóti Gunnar beitti einstæðum aðferðum við fjáröflun á meðan hann var og hét. Skarð er fyrir skildi en bridds- spilarar nutu afraksturs vinnu hans um helgina. MYND/AÐSEND Lukkulegir sigurvegarar í sveitakeppni Northern Lights-stórmótsins, Hrannar Erlingsson, Gunnar B. Helgason, Egill D. Brynjólfsson og Ari Konráðsson. MYND/AÐSEND FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut toti@frettabladid.is Sigurjón Sighvatsson, sem er þekkt- astur sem kvikmyndaframleiðandi, stígur fram sem leikstjóri í fyrsta skipti þegar hann frumsýnir heim- ildamynd sína Exxtinction Emer- gency á Alþjóðlegu kvikmyndahá- tíðinni í Reykjavík, RIFF. Myndin f jallar um hvernig umhverfissamtökin Extinction Rebellion spruttu upp í Bretlandi og svo um allan heim og urðu á skömmum tíma áhrifamesta af l baráttunnar á heimsvísu gegn lofts- lagsbreytingum. Áberandi og harð- snúnar aðferðir við að vekja athygli á loftslagsvánni hafa ögrað yfirvöld- um og íhaldsöflum víða um heim. Stór hluti aktívistanna er kominn af léttasta skeiði og stjórnvöldum hefur reynst erfitt að átta sig á hvernig eigi að meðhöndla borgara- lega óhlýðni fólks á miðjum aldri og upp úr. Náttúruvernd er Sigurjóni mjög hugleikin og þangað sækir hann drifkraftinn að baki þessu verkefni auk þess sem hann varð sjötugur þann 15. júní og er því kominn á virðulegan aldur eins og hluti fólksins sem hann er að fjalla um í myndinni. n Sigurjón skoðar heldri aktívisma Sigurjón Sighvatsson, leikstjóri 22 Lífið 7. september 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.