Fréttablaðið - 07.09.2022, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 07.09.2022, Blaðsíða 35
TÓNLIST Mærþöll Þórunn Guðmundsdóttir Leikstjórn: Bjarni Thor Kristinsson Hljómsveitarstjórn: Guðni Franzson Gamla bíó fimmtudagur 1. september Jónas Sen Tónskáldið Frederic Chopin, sem var uppi á fyrri hluta nítjándu aldar, var einstaklega trúgjarn. Hann frétti af svokallaðri „talandi maskínu“ og skrifaði ákafur til for­ eldra sinna að vélin gæti víst ekki bara talað, heldur sungið mjög vel. Svo bætti hann við: „Ef óperu­ stjórnendur gætu haft mörg svona vélmenni, þá gætu þeir losnað við kórsöngvara, sem kosta fúlgur fjár og eru endalaust til vandræða.“ Í Mærþöll, nýrri óperu eftir Þór­ unni Guðmundsdóttur, sem frum­ sýnd var á fimmtudaginn í Gamla bíói, var enginn kór, en töluvert um samsöngsatriði. Þau voru sum býsna f lókin. Ekki var að heyra að neinn söngvari væri „endalaust til vandræða“ og því varla þörf á vélsöngvara. Samsöngurinn var hreinn, nákvæmur og fullur af krafti. Grætur gulltárum Óperan fjallar um hertogahjón sem geta ekki eignast barn, en þá koma álfkonur og bjarga málunum. Dóttirin sem fæðist, Mærþöll, er ekki alveg eins og fólk er f lest, því hún getur grátið gulltárum. Þetta kemur sér vel síðar er hertoginn verður blankur; þá er ekkert annað en að klípa Mærþöll svo hún fari að hágráta. Verst er að hún er svo glað­ lynd að hún grætur eiginlega aldrei, og svo er hún fljót að hlaupa undan töngum hertogans. Eins og sjá má er þetta gaman­ ópera, og margt í henni var mjög fyndið á frumsýningunni. Álfkon­ urnar þrjár, tvær góðar en ein ekki svo góð, því henni tókst ekki að ná sér í karlmann, voru kostulegar. Þær voru leiknar af Lilju Guðmunds­ dóttur, Heiðdísi Hönnu Sigurðar­ dóttur og Erlu Dóru Vogler. Söngur þeirra var f lottur, og svo höfðu þær allar svo mikinn sjarma að maður horfði á þær dáleiddur. Björk var mögnuð Mærþöll var leikin af Björk Níels­ dóttur sópran og var mögnuð. Björk er ein besta söngkona landsins, rödd hennar var tær og hljómmikil í senn og leikurinn var skemmtileg­ ur. Gunnlaugur Bjarnason var Pétur prins, og hann söng af grípandi til­ finningu og lék afar vel. Þegar hann missti vitið um stund var það svo sannfærandi að það væri eiginlega „krípí“. Svipaða sögu er að segja um frammistöðu hinna söngvaranna: Eyjólfs Eyjólfssonar, Þórgunnar Önnu Örnólfsdóttur, Hönnu Dóru Sturludóttur, Halldór u Óskar Helgadóttur, Ólafs Freys Birki­ ssonar og Bjarna Thors Kristins­ sonar. Sá síðastnefndi var líka leik­ stjóri sýningarinnar og hefur tekist prýðilega að gera hana heilsteypta og f læðandi. Þar var hvergi dauður punktur. Búningar og leikmynd voru auk þess augnayndi. Gamaldags leikhústónlist Tónlistin var í hefðbundnum dúr og moll, og mjög lagræn. Hún var dálítið einsleit og líka ögn einfeldn­ ingsleg, kannski í stíl við gamaldags leikhústónlist. Líbrettóið, það er textinn, var einnig eftir Þórunni, og var hann hnyttinn og oft sérlega fyndinn. Lítil hljómsveit lék undir, oktett sem Guðni Franzson stjórnaði af öryggi og festu. Jafnvægi á milli hljómsveitar og söngs var eins og best var á kosið. Í heild var þetta því ágæt sýning. Helsti gallinn var að stundum var erfitt að greina hvað söngvararnir voru að syngja um og hefði texta­ vél verið til mikilla bóta. Jafnframt hefði mátt vera meira um sögu­ þráðinn í leikskránni, sem var í skötulíki. En það var gaman að koma í Gamla bíó, þar sem Íslenska óperan sleit barnskónum. Þaðan á maður svo sannarlega margar góðar minningar. n NIÐURSTAÐA: Skemmtileg sýning með flottum söng. Klípum stelpuna svo hún gráti gulli Að mati gagnrýnanda Fréttablaðsins var samsöngur söngvaranna hreinn, ná- kvæmur og fullur af krafti. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Í heild var þetta því ágæt sýning. Helsti gallinn var að stundum var erfitt að greina hvað söngvararnir voru að syngja um. POP UP KEX HOSTEL 8.-11. SEPTEMBER SKÚLAGATA 28 *ásamt fleiri merkjum OPIÐ 11:00-18:00 - MERKI FYRIR MINNA - MERKJAMARKAÐUR allt að 60% AFSLÁTTUR MIÐVIKUDAGUR 7. september 2022 Menning 19FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.