Fréttablaðið - 07.09.2022, Side 35
TÓNLIST
Mærþöll
Þórunn Guðmundsdóttir
Leikstjórn: Bjarni Thor Kristinsson
Hljómsveitarstjórn: Guðni
Franzson
Gamla bíó
fimmtudagur 1. september
Jónas Sen
Tónskáldið Frederic Chopin, sem
var uppi á fyrri hluta nítjándu
aldar, var einstaklega trúgjarn.
Hann frétti af svokallaðri „talandi
maskínu“ og skrifaði ákafur til for
eldra sinna að vélin gæti víst ekki
bara talað, heldur sungið mjög
vel. Svo bætti hann við: „Ef óperu
stjórnendur gætu haft mörg svona
vélmenni, þá gætu þeir losnað við
kórsöngvara, sem kosta fúlgur fjár
og eru endalaust til vandræða.“
Í Mærþöll, nýrri óperu eftir Þór
unni Guðmundsdóttur, sem frum
sýnd var á fimmtudaginn í Gamla
bíói, var enginn kór, en töluvert
um samsöngsatriði. Þau voru sum
býsna f lókin. Ekki var að heyra að
neinn söngvari væri „endalaust
til vandræða“ og því varla þörf á
vélsöngvara. Samsöngurinn var
hreinn, nákvæmur og fullur af
krafti.
Grætur gulltárum
Óperan fjallar um hertogahjón
sem geta ekki eignast barn, en þá
koma álfkonur og bjarga málunum.
Dóttirin sem fæðist, Mærþöll, er
ekki alveg eins og fólk er f lest, því
hún getur grátið gulltárum. Þetta
kemur sér vel síðar er hertoginn
verður blankur; þá er ekkert annað
en að klípa Mærþöll svo hún fari að
hágráta. Verst er að hún er svo glað
lynd að hún grætur eiginlega aldrei,
og svo er hún fljót að hlaupa undan
töngum hertogans.
Eins og sjá má er þetta gaman
ópera, og margt í henni var mjög
fyndið á frumsýningunni. Álfkon
urnar þrjár, tvær góðar en ein ekki
svo góð, því henni tókst ekki að ná
sér í karlmann, voru kostulegar. Þær
voru leiknar af Lilju Guðmunds
dóttur, Heiðdísi Hönnu Sigurðar
dóttur og Erlu Dóru Vogler. Söngur
þeirra var f lottur, og svo höfðu þær
allar svo mikinn sjarma að maður
horfði á þær dáleiddur.
Björk var mögnuð
Mærþöll var leikin af Björk Níels
dóttur sópran og var mögnuð. Björk
er ein besta söngkona landsins,
rödd hennar var tær og hljómmikil
í senn og leikurinn var skemmtileg
ur. Gunnlaugur Bjarnason var Pétur
prins, og hann söng af grípandi til
finningu og lék afar vel. Þegar hann
missti vitið um stund var það svo
sannfærandi að það væri eiginlega
„krípí“.
Svipaða sögu er að segja um
frammistöðu hinna söngvaranna:
Eyjólfs Eyjólfssonar, Þórgunnar
Önnu Örnólfsdóttur, Hönnu Dóru
Sturludóttur, Halldór u Óskar
Helgadóttur, Ólafs Freys Birki
ssonar og Bjarna Thors Kristins
sonar. Sá síðastnefndi var líka leik
stjóri sýningarinnar og hefur tekist
prýðilega að gera hana heilsteypta
og f læðandi. Þar var hvergi dauður
punktur. Búningar og leikmynd
voru auk þess augnayndi.
Gamaldags leikhústónlist
Tónlistin var í hefðbundnum dúr
og moll, og mjög lagræn. Hún var
dálítið einsleit og líka ögn einfeldn
ingsleg, kannski í stíl við gamaldags
leikhústónlist. Líbrettóið, það er
textinn, var einnig eftir Þórunni,
og var hann hnyttinn og oft sérlega
fyndinn.
Lítil hljómsveit lék undir, oktett
sem Guðni Franzson stjórnaði af
öryggi og festu. Jafnvægi á milli
hljómsveitar og söngs var eins og
best var á kosið.
Í heild var þetta því ágæt sýning.
Helsti gallinn var að stundum var
erfitt að greina hvað söngvararnir
voru að syngja um og hefði texta
vél verið til mikilla bóta. Jafnframt
hefði mátt vera meira um sögu
þráðinn í leikskránni, sem var í
skötulíki. En það var gaman að
koma í Gamla bíó, þar sem Íslenska
óperan sleit barnskónum. Þaðan á
maður svo sannarlega margar góðar
minningar. n
NIÐURSTAÐA: Skemmtileg
sýning með flottum söng.
Klípum stelpuna svo hún gráti gulli
Að mati
gagnrýnanda
Fréttablaðsins
var samsöngur
söngvaranna
hreinn, ná-
kvæmur og
fullur af krafti.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Í heild var þetta því
ágæt sýning. Helsti
gallinn var að stundum
var erfitt að greina
hvað söngvararnir
voru að syngja um.
POP UP
KEX HOSTEL
8.-11. SEPTEMBER
SKÚLAGATA 28
*ásamt fleiri merkjum
OPIÐ 11:00-18:00
- MERKI FYRIR MINNA -
MERKJAMARKAÐUR
allt að
60%
AFSLÁTTUR
MIÐVIKUDAGUR 7. september 2022 Menning 19FRÉTTABLAÐIÐ