Fréttablaðið - 07.09.2022, Blaðsíða 2
Fimmtándi forsætisráðherrann í tíð Elísabetar
Það fór vel á með Elísabetu Englandsdrottningu og Liz Truss sem tók við embætti forsætisráðherra Bretlands í gær. Truss er fimmtándi forsætisráðherrann
í stjórnartíð Elísabetar og þriðja konan. Vegna heilsufarsvanda Elísabetar tók hún á móti Truss í Balmoralkastala í Aberdeen í Skotlandi en ekki Buckingham-
höll í London líkt og tíðkast hefur hingað til. sjá síðu 9 Fréttablaðið/Getty
� 18. SEPTEMBER
� KL. 20.00
� ELDBORG
Náðu þér
í boðsmiða
á HARPA.IS
og TIX.IS
kristinnpall@frettabladid.is
Veður „Já, það er alveg hægt að segja
að það sé óvenjulegt að sjá þessar
hitatölur, 22 stiga hita tvo daga í röð
á þessum tíma ársins, þótt það hafi
auðvitað gerst áður. Á þessum árs-
tíma þarf góðar aðstæður til þess,“
segir Teitur Arason, veðurfræðingur
hjá Veðurstofu Íslands, aðspurður
hvort það sé algengt að blíðviðri sé
dag eftir dag á þessum árstíma.
„Staðan er góð fyrir blíðviðri. Það
er hlýr loftmassi yfir landinu og
hæð yfir landinu sem heldur lægð-
inni frá. Með því kemurðu í veg fyrir
vind og úrkomu og skapar þetta
blíðskaparveður. Hæðir sem þessar
valda um leið niðurstreymi sem
heldur skýjunum að mestu leyti í
burtu, fyrir utan þokumyndun yfir
sjó,“ segir Teitur sem á von á góðu
veðri í dag en að það fari að vökna í
Reykjavík þegar nær dregur helgi. n
Óvenjulega gott miðað við árstíma
Reykvíkingar tóku veðurblíðunni á
mismunandi hátt. Fréttablaðið/Valli
jonthor@frettabladid.is
Alþingi Varaþingmaður Flokks
fólksins er hættur í f lokknum.
Ástæðan er tengsl varaþingmanns-
ins við dýraníðsmál í Borgar-
firði. Greint hefur verið frá því að
umræddur varaþingmaður sé Þór-
unn Björg Bjarnadóttir, sem skipaði
annað sæti f lokksins í Norðvestur-
kjördæmi í síðustu alþingiskosning-
unum.
Inga Sæland, formaður Flokks
fólksins, segir í samtali við Frétta-
blaðið að málið slái flokkinn illa.
„Þetta er ekki í anda okkar. Eins
og þú veist. Við höfum verið mál-
svari þeirra sem eiga bágt, bæði
manna og málleysingja,“ segir Inga.
Hún segist hafa heyrt um málið í
fyrradag, eða daginn þar á undan,
og í kjölfarið hafi málið verið leyst
farsællega og varaþingmaðurinn
stigið til hliðar. Hún ítrekar að
varaþingmaðurinn hafi ekki verið
rekinn, heldur stigið til hliðar. n
Stígur til hliðar
vegna tengsla við
dýraníðsmál
Þórunn Björg Bjarnadóttir.
Sérfræðingur í slysavörnum
barna segir að trjákurl eigi
ekki heima á leikskólalóðum
sem fallvörn. Það standi
skýrt í reglugerð um öryggi
leikvallatækja og leiksvæða.
Ísafjarðarbær notar trjákurl
við leikskóla, sem foreldrar
og starfsmenn eru ósáttir við.
Bærinn hefur samþykkt að
skoða málið.
benediktboas@frettabladid.is
SkólAmál „Trjákurl virkar ekki
á Íslandi sem öryggisundirlag og
þetta efni á ekkert að vera þarna,“
segir Herdís Storgaard, sérfræð-
ingur í slysavörnum barna, en í gær
var greint frá því að lítið barn á leik-
skólanum Eyrarskjóli á Ísafirði hefði
sett trjákurl í munninn, það fór
niður í háls barnsins og sat þar fast.
Kennari sá atvikið og brást við, en
það ekki gekk að losa kurlið út hálsi
barnsins fyrr en það ældi við átökin
við að reyna að ná andanum og losa
sig við það.
Þegar lóðin við leikskólann Eyrar-
skjól var endurnýjuð á síðastliðnu
ári kom í ljós að fyrirhugað var að
setja þar trjákurl sem fallvörn, bæði
á afmarkaðri ungbarnalóð sem og
á stóru lóðinni. Stjórnendur leik-
skólans lýstu strax efasemdum við
bæinn um að slíkt væri löglegt.
Herdís þekkir reglugerðir um
öryggi á leikvöllum betur en f lest-
ir og segir sjálf að hún þekki hvern
lagabókstaf enda tók hún þátt í
að skrifa hann fyrir 20 árum. Þá
sé hún nýbúin að taka að sér fyrir
hönd umhverfisráðuneytisins að
endurskoða og bæta reglugerðina
og er varamaður í Evrópunefnd-
inni.
„Þetta er örugglega ólöglegt því
þetta trjákurl er alveg örugglega
framleitt á Íslandi sem þýðir að
undirlagið hefur ekki verið prófað.
Það þýðir að það uppfyllir ekki
gildandi reglugerðir og þetta er því
falskt öryggi. Svo er þetta hættulegt
eins og dæmin sanna.“ Hún segir
að enginn aðili prófi trjákurl hér á
landi og erlendu aðilarnir neiti að
selja Íslandi trjákurl enda sé hér
frost í jörðu.
„Þetta er algjörlega út í hött að
setja kurl sem er framleitt á Íslandi
og ekki prófað. Það þarf að vera af
ákveðinni stærð og þetta er kýr-
skýrt í reglugerðinni og það er
enginn sem getur prófað þetta hér
á landi. Ef það var prófað var það
prófað í útlöndum.
Þar sem ekki er frost í jörðu er
trjákurl að virka ágætlega eins og
í Ástralíu og á Suður-Spáni en ekki
á köldum stöðum eins og Ísafirði,“
segir Herdís.
Trjákurl sogar í sig vatn og frýs
og verður því hart sem tekur alla
dempun úr og virkar því ekki ef
barn dettur.
„Viðurkenndur trjákurlsaðili úti
í heimi myndi alltaf neita að selja
trjákurl til Íslands vegna veðurs.
Kaupandi, seljandi, hönnuður
og aðrir þurfa að uppfylla reglu-
gerðina þannig að það er augljóst
að bæjaryfirvöld hafa ekki lesið
reglugerðina,“ segir Herdís.
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Arna
Lára Jónsdóttir, er að af la sér frek-
ari gagna í málinu.
Leikskólastjóri Eyrarskjóls, Guð-
ríður Guja Guðmundsdóttir, segir
að stjórnendur hafi strax fengið
slæma tilfinningu fyrir trjákurlinu
en hún og Ingibjörg Einarsdóttir
aðstoðarskólastjóri fengu þær
skýringar að þetta væri einfaldlega
rangt hjá þeim.
Ingibjörg sendi bréf á bæinn í
vikunni þar sem raunum þeirra
var lýst. „Ísafjarðarbær er eigandi
lóðarinnar og ríkuleg ábyrgð liggur
hjá ykkur að umhverfi barnanna í
leikskólanum sé öruggt fyrir lítil
börn sem dvelja hér. Ég lít þannig á
að þegar við vitum af hættunni og
ef ekki verður brugðist við án tafar,
þá erum við öll án afsökunar þegar
alvarlegt óafturkræft slys verður,“
skrifaði Ingibjörg. n
Trjákurl er ólögleg fallvörn
á leiksvæðum á leikskólum
Lóðin við Eyrarskjól fékk andlitslyftingu og var ákveðið að nota trjákurl sem
fallvörn, nokkuð sem sérfræðingur í slysavörnum barna segir að sé ólöglegt.
Mynd/ísaFjarðarbær
2 Fréttir 7. september 2022 MIÐVIKUDAGURFréttablaðið