Merkúr - 01.09.1939, Qupperneq 7
fluarp,
Þótt Verslunarskóli íslands sje nú hartnær 35 ára gam-
all, og þar af leiðandi búinn að slíta barnsskónum, þá er
Nemendasamband skólans tæplega eins árs og því ennþá
í deiglunni. Það er því of snemt, enn sem komið er, að
spá nokkru nm framtíð sambandsins, ef miða skal við
liðna æfi þess. En hitt er víst, að þeir, sem stóðu að
stofnun þess — og sennilega margir fleiri — gera sjer
miklar vonir um, að það verði með tíð og tíma fært um
að inna það hlutverk af höndum, sem því er ætlað, en
það er að efla gengi Verslunarskóla íslands, og sameina
eldri og gngri nemendur skólans um velferðarmál hans
og verslunarstjettarinnar í hcild.
Úr Verslunarskólanum hafa nú alls útskrifast nálega
900 nemendur. Þetta er stór hópur, sem miklu fengi á-
orkað, ef hann sameiginlega legði höndur á plóginn og
beitti sjer fyrir einhverju málefni. Og þetta málefni er
nú fyrir hendi, eins og minst er á hjer að framan.
Aðalstarf hinnar fyrstu stjórnar sambandsins, hefir
verið í því fólgið, að gera spjaldskrá yfir alla þá, sem
lokið hafa burtfararprófi úr Verslunarskólanum. Þessu
starfi er nú fyrir nokkru lokið, og hefir öllum þeim, sem
heimilisfang var vitað um, verið sent umburðarbrjef,
þar sem þess er farið á leit, að viðkomandi láti sam-
bandinu nokkrar upplýsingar í tje.
Væntum vjer að allir þeir, sem þetta brjef fá, bregðist
vel og fljótt við, og endursendi þann hluta brjefsins, sem
til þess er gerður. Vjer álítum, að það sje afar mikils-
vert fyrir sambandið að eiga sem nákvæmasta skrá
yfir alla þá, sem útskrifast hafa úr Verslunarskólanum,
og fyrir þái sjálfa getur það einnig haft nokkra þýðingu.