Merkúr - 01.09.1939, Page 23
Taflfundur.
ekki síst sund, og skíðaferðir og knattspvrna nokkuð og
leikfimi flest árin, ferðir liafa verið farnar, fyrirtæki
skoðuð, námsflokkar og „klúbbar“ starfræktir, dansæf-
ingar og skemtanir o. þ. h. Nákvæma læknisskoðun og
heilbrigðiseftirlit hefur skólinn einnig tekið upp. Bókasafni
og lestrarstofu befur verið komið upp, með miklu af is-
lenskum og erlendum blöðum og tímaritum og nokkrum
bókakosti. Yísir að vörusafni er einnig til og sæmilegt
safn af skrifstofuvjelum og tækjum og er, auk vjelrit-
unar, kend notkun og meðferð fjölritara, reikningsvjela,
reikningsstokka og fleiri skrifstofuvjela, eftir því sem til
næst. Almenna sýningu á skrifstofuvjelum liefur skólinn
einnig baft einu sinni. Hámarkshraði á seinasta vjelrit-
unarprófi skólans var 3397 slög villulaus (skrifað í 15
mínútum), eða sem svarar 53.2 orðum á mínútu. Af öðr-
um atriðum úr kenslunni, eins og liún er nú, má nefna
framhaldsflokka fjórða bekkjar í nokkrum námsgrein-
um, bókfærslu og erlendum málum, brjefaskriftir og bók-
fræðinám og æfingar í íslensku, og yfirlit um stjórnfræði,
æfingar í skattaframtali o. fl. og í neðri bekkjunum til-