Merkúr - 01.09.1939, Síða 25
Úr lesstofunni.
menn, tryggingamenn, sölumenn, deildarstjórar, af-
greiðslumenn, verkstjórar, gjaldkerar, auglýsinga- eða sýn-
ingamenn o. s. frv.
Að því á að stefna, að fullnaðarpróf Verslunarskólans
jafngildi stúdentsprófi, og veiti samskonar rjettindi, ann-
aðhvort almenn stúdentsrjettindi til hvaða háskólanáms
sem er, eða að minsta kosti rjett til háskólanáms i versl-
unar og hagfræðum, ef slíkt háskólanám yrði tekið upp. En
Verslunarskólinn er nú þegar sá skóli, sem næst kenmr
mentaskólum um námskröfur og námstíma, en undir há-
skólanám í verslunarfræðum sjerstaklega ættu Verslun-
arskólamenn að vera betur búnir að flestu leyti en aðrir
framhaldsskólanemendur. Með þessu móti yrðu þrennar
deildir, eða þrjár „línur“, til stúdentsprófs, máladeild,
stærðfræðisdeild og verslunardeild og er það sanngjarnt,
enda er nú stefnt í þessa átt í ýmsum nágrannalöndum.
Verslunarskólinn hefur vaxið svo, að liið nýja liúsnæði
hans er eiginlega nú þegar of lítið, þó að vel gangi enn,
með því að nota liúsið allan daginn, eins og áður er sagt.
Einhvernthna verður skólanuin sjálfsagt reist annað nýtt