Merkúr - 01.09.1939, Side 26

Merkúr - 01.09.1939, Side 26
24 hús, þött ekki muni það verða í bráð, en hinsvegar mætti ætla að fljótlega yrði hægt að ráða bót að einhverju leyti á skorti samkomu- og fundarhúss i skólanum sjálfum, til eflingar fjelagslífi hans og kenslu, og hefur það verið til at- hugunar í skólanum. íþróttahús fvrir skólann er einnig mál til úrlausnar, en bygging skólasels, eða útibús, hefir þegar verið undirbúin nokkuð og safnað fje til þess. Skólanum væri mikil ánægja að því, að geta safnað til sín gömlum nemendum meira en verið hefur, þeim sem áliuga hefðu á því, að lialda við sambandinu við skóla sinn, hvort sem það væri til skemtunar eða til alvarlegra starfa, eða einhverra rannsókna og umræðna um fræðileg efni, sem varða verslun og' hag'fræði, eða önnur hagsmuna- mál verslunarmanna. Nemendamótin, sem nú liafa verið haldin árlega í 8 ár, voru uppliaflega til þessa ætluð, en einnig hafa einstakir árgangar haldið hópinn, og sumir mjög myndarlega og einn rannsóknar og námsflokkur eldri nemenda starfar nú í skólanum. Okkur, sem nú vinnum í skólanum, þykir einnig mjög vænt um þær heimsóknir eldri nemenda, sem farnar eru að tíðkast við skólauppsagnir á vorin, ekki einungis af því, hversu þessir gömlu nemendur hafa komið færandi hendi og við rausn, heldur einnig vegna þeirrar ræktarsemi og vinsemdar sem heimsóknir þeirra sýna. Um sumt af þessu, sem jeg hef nefnt hjer, hef jeg áður gert nánari tillögur, eða talað um það og enn mun það koma til greina. Verslunarskólamenn eru nú dreifðir urn alt land og gegna margskonar störfum, þó að flestir þeirra sjeu á ein- livern liátt við kaupsýslu riðnir. Þeir hafa orðið ráðherrar og alþingismenn, blaðamenn og bændur, útvegsmenn og iðnrekendur. Þeir liafa þess utan i tómstundum sínum tekið þátt i mörgum öðrum störfum, íþróttum og bók- mentum og ýmsu fjelagslífi innan og utan verslunar- stjettarinnar. Þrír verslunarskólamenn hafa t. d. verið

x

Merkúr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Merkúr
https://timarit.is/publication/1691

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.