Merkúr - 01.09.1939, Síða 26
24
hús, þött ekki muni það verða í bráð, en hinsvegar mætti
ætla að fljótlega yrði hægt að ráða bót að einhverju leyti
á skorti samkomu- og fundarhúss i skólanum sjálfum, til
eflingar fjelagslífi hans og kenslu, og hefur það verið til at-
hugunar í skólanum. íþróttahús fvrir skólann er einnig
mál til úrlausnar, en bygging skólasels, eða útibús, hefir
þegar verið undirbúin nokkuð og safnað fje til þess.
Skólanum væri mikil ánægja að því, að geta safnað til
sín gömlum nemendum meira en verið hefur, þeim sem
áliuga hefðu á því, að lialda við sambandinu við skóla
sinn, hvort sem það væri til skemtunar eða til alvarlegra
starfa, eða einhverra rannsókna og umræðna um fræðileg
efni, sem varða verslun og' hag'fræði, eða önnur hagsmuna-
mál verslunarmanna. Nemendamótin, sem nú liafa verið
haldin árlega í 8 ár, voru uppliaflega til þessa ætluð, en
einnig hafa einstakir árgangar haldið hópinn, og sumir
mjög myndarlega og einn rannsóknar og námsflokkur
eldri nemenda starfar nú í skólanum.
Okkur, sem nú vinnum í skólanum, þykir einnig mjög
vænt um þær heimsóknir eldri nemenda, sem farnar eru
að tíðkast við skólauppsagnir á vorin, ekki einungis af því,
hversu þessir gömlu nemendur hafa komið færandi hendi
og við rausn, heldur einnig vegna þeirrar ræktarsemi og
vinsemdar sem heimsóknir þeirra sýna.
Um sumt af þessu, sem jeg hef nefnt hjer, hef jeg áður
gert nánari tillögur, eða talað um það og enn mun það
koma til greina.
Verslunarskólamenn eru nú dreifðir urn alt land og
gegna margskonar störfum, þó að flestir þeirra sjeu á ein-
livern liátt við kaupsýslu riðnir. Þeir hafa orðið ráðherrar
og alþingismenn, blaðamenn og bændur, útvegsmenn og
iðnrekendur. Þeir liafa þess utan i tómstundum sínum
tekið þátt i mörgum öðrum störfum, íþróttum og bók-
mentum og ýmsu fjelagslífi innan og utan verslunar-
stjettarinnar. Þrír verslunarskólamenn hafa t. d. verið