Merkúr - 01.09.1939, Page 30
UErsIunarskúlinn - Háskólinn
Eftir Hjáimar Blöndal.
Þegar á það er litið hversu margþætt og þýðingarmikið
viðskiftalíf nútímans er orðið, og að afkoma þjóðarbú-
skaparins mjög veltur á því, hvernig um verslunar-
málin fer, þá er það auðsætt, að þjóðinni er nauðsyn-
legt að forj'stuinenn hennar á þessu sviði sjeu vel starfi
sínu vaxnir.
Þeim er því fyrst og fremst nauðsynlegt að eiga kost
á góðri, hagnýtri mentun, engu síður en þeim mönn-
um, er öðrum þýðingarmiklum störfum gegna fyrir þjóð-
fjelagið.
Þótt undarlegt megi virðast, hefir það samt ekki
verið óalgengur hugsunarháttur hjá almenningi, að til
þess að reka verslun þurfi eklci annað en að hafa það sem
kallað er „verslunarvit“ og sje mönnum, sem þeim eigin-
leikum sjeu gæddir, í öllu óhætt. Þeir geti bara verslað,
grætt og orðið ríkir. Það sje að vísu gott að þeir kunni að
Ieggja saman og draga frá. Kanske að kunna að skrifa
nafnið sitt skammlaust, en annsað þurfi þeir ekki að
kunna. „Verslunarvitinu“ er ætlað að sjá um afganginn.
En íslensk verslunarstjett hefir litið öðrum augum á
þetta mál. Henni var það fljótlega ljóst, að besta vopn
hennar í baráttunni fvrir tilverurjetti sínum var: hagnýt
l^ekking á viðfangsefnunum.
Það var því engin tilviljun, sem varð þess valdandi, að
hin unga og fátæka verslunarstjett stofnaði sinn eigin
skóla, Verslunarskóla íslands, fyrir nálega 35 árum. Það
var fullvissan um mátt menningarinnar og trúin á fram-
tíðarmöguleika frjálsrar íslenskrar verslunarstjettar, á
grundvelli þeirrar reynslu, sem stjettin þá þegar hafði aflað