Merkúr - 01.09.1939, Side 33

Merkúr - 01.09.1939, Side 33
31 (ensku og þýsku) og nokkrum hluta viðskiftafræðinnar, eftir eins árs nám. Aðeios þrír nemendur liafa lokið prófi í öllum greinum deildarinnar, eftir ca. 2)4 árs framhalds- nám. Eins og gefur að skilja hefir rekstur slíkrar framlialds- deildar, með fáum nemendum, haft mikinn kostnað í för með sjer. Þessi viðleitni Verslunarskólans er því þeim mun virðingarverðari, þar sem að skólinn hefir sjálfur af sín- um þrönga fjárhag orðið að greiða mestallann kostnaðinn af þessu. Þó hafa nokkrir kaupsýslumenn hjer í bænum sýnt starfsemi þessari þá viðurkenningu og miklu rausn, að gefa skólannm all-stóra fjárupphæð til eflingar deild- inni. Ber þeim mikil þökk fyrir það. Síðastliðinn vetur var settur á stofn hjer í bænum skóli, sem kallaður er „Viðskiftaháskólinn“. Skóli þessi er sjer- stök stofnun, sem kostuð er af rikissjóði. Tilgangur lians mun, eins og nafnið bendir til, vera að veita fræðslu í við- skiftafræðum. í vetur munu vera um 20 nemendur í skólanum og eru það alt stúdentar. Annars mun takmark ]>essa skóla vera nokkuð óljóst og starfsemi hans mun öll enn vera á tilraunastigi. Til „Viðskiftaháskólans“ er árlega veitt úr ríkissjóði 20 þúsund krónum, sem samsvarar rjettum þúsund krón- um fyrir hvern nemanda. Til samanburðar má geta þess, að árlegur stvrkur ríkissjóðs til Verslunarskólans — sem hefir um 300 nemendur — hefir undanfarin ár aðeins verið ö þúsund krónur, eða tæplega sautján krónur á nemanda. Hjer á landi hafa nokkrum sinnum á síðustu árum komið fram tillögur um þessi mál, sem þó af ýmsum or- sökum enn ekki hafa náð fram að ganga. f hók sinni „íslensk þjóðfræði“, seni út kom árið 1924, setti núverandi skólastjóri Verslunarskólans, Vilhjálmur Þ. Gíslason, fram ýmsar mjög eftirtektarverðar tillögur

x

Merkúr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Merkúr
https://timarit.is/publication/1691

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.