Merkúr - 01.09.1939, Page 49

Merkúr - 01.09.1939, Page 49
47 A þvi, sem nú hefir verið sagt, má sjá, að siglingar sem atvinnuvegur eru svo að segja jafngamlar þeirri elstu mcnningu, sem sögur fara af, enda er óhugsandi, að án þeirra myndi nokkur menning hafa orðið til. Höf og sund, fjöll og evðimerkur settu menningunni sterkar skorður á landi, og gerðu hinum ýmsu þjóðflokkum erfitt fyrir að kymíast menningu hvers annars, en hjer hættu siglingamar úr. Það var því ekki nema eðlilegt, að á ströndunum, þar sem siglingarnar þróuðust mest, að þar fleygði menningunni mest fram. Það má því segja, að við strendurnar og á bökkum hinna skipgengu fljóta, hafi vagga menningarinnar staðið. Ekki ber mönnm saman um það, hvenær hinar fyrstu siglingar hófust, en talið er að milli Indlands og Kaldeu hinnar fornu, fyrir botni Persneska flóans, hafi siglingar átt sjer stað 3000—5000 árum f. Kr., og um siglingar forn- Egypla, Malaja og Araba verður ekki efast. En þrátt fyrir það, sem nú hefir verið sagt um siglingar Egypta, Malaja og' Araba, er það samt engin þessar þjóða, sem fyrst og fremst ber að telja sem hinn mesta brautryðjanda á þessu sviði, því það voru Fönikíumenn, sem þar báru af öllum öðrum, og mun þeirra nú getið að nokkru. Fönikía var lítið land, sem lá fyrir botni Miðjarðar- hafsins, milli þess og Libanons fjallanna. Það að Fönikin- menn urðu hinir fyrstu, stóru sæfarendur, má eflaust rekja til legu lands þeirra, og til þess að í hlíðum Libanons- fjallanna óx liinn ágætasti viður til skipasmiða. Landið var ekki stórt og fólkið fátt, en þjóðin hafði orðið fyrir menningaráhrifum bæði frá liinni alda gömlu menningu Babylon-borgar og einnig frá Egyptum. f landinu blómgv- aðist mikill iðnaður, og þar sem markaðurinn var lítill heima fyrir, liættu þeir sjer út á hafið og sigldu með varn- ing sinn meðfram ströndum Miðjarðarliafsins og settu þar á stofn ýmsar nýlendur, sem síðar urðu miðstöðvar verslunar og siglinga hver á sínum stað. Borgir þær, sem Fönikíumenn þannig settu á stofn voru aðallega á norður-

x

Merkúr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Merkúr
https://timarit.is/publication/1691

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.