Merkúr - 01.09.1939, Page 91

Merkúr - 01.09.1939, Page 91
89 ALÞINGISMENN! Um hvern mun þetta verða sagt frá áhorfendabekkj- unum í sumar: „Hver er þessi laglegi þingmaður, senr stendur beinn og horfir djarflega fram undan sjer, þá hann talar, og er snyrtilega búinn nýjnm fötum.“ Þá mun verða svarað: „Það er þingmaður N. N. — Hann fekk sjer strax í föt og hann kom til Reykjavíkur hjá Þorl. O. Johnson. Komið og skoðið hin ágætu fataefni. En auk þess að hafa auglýsingar einkennilega orðaðar, mun Þorl. O. Johnson iiafa verið fyrstur hjerlendra manna að nota myndir í auglýsingar. Með aukinni útbreiðslu l)laða, vex auglýsingamagn nokkuð, eins og skiljanlegt er. Auglýsingar stækka. Það er farið að setja þær með stærra letri, svo að þær verði áberandi. Og þá er auðvitað hætt við að hafa þær allar undir einni fyrirsögn til aðgreiningar frá lesmáli. Nú að- greina þær sig sjálfar frá því á áberandi hátt. Mikið af auglýsingunum er þó fyrst í stað frá útlendum firmum. Þær auglýsingar voru settar á annan hátt, heldur en áður hafði tíðkast, og munu hafa kent mönnum hjer, hvernig átti að auglýsa svo að fólk tæki eftir því- En það er þó varla fyr en dagblöðin koma til sögunn- ar, að menn fara að viðurkenna mátt og gagn auglýs- inganna. Að vísu var byrjað á því hjer í Reykjavík áður, að gefa út sjerstakt auglýsingablað, en varð skammlíft. Dagblaðið Vísir hóf göngu sína 1911 og Morgunblaðið 1913. Eftir það fer auglýsingum að fjölga, og þær verða margbreyttari. Líti maður yfir blöðin frá upphafi, er liægt að sjá j)að, að auglýsingarnar sjálfar taka þá enn miklum stakka- skiftum frá því, sem áður hafði verið. Menn fara sýni- lega að hugsa meira um útlit þeirra og verða kröfuharð- ari um það, hvernig þær eru settar. Jafnframt verða þá blöðin að gera meiri kröfur til prentsmiðjanna og prent-

x

Merkúr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Merkúr
https://timarit.is/publication/1691

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.