Vaka - 01.09.1937, Síða 8

Vaka - 01.09.1937, Síða 8
6 er hægt a'ð sjá með því a'ð fela einum manni öll völdin um stundar sakir. Við höfum dæmi' fyrir okkur, þar sem slíkt hefir verið gjört, t. d. er Englendingar fólu Lloyd George í lok heimsstyrjaldarinnar svo mikil völd, að í rauninni mátti segja, að hann um eitt skeið væri þar einvaldur. En það er meginmunur á því bráðabirgðaeinræði, sem þannig er stofnað undir sérstökum kringumstæðum og því ótímabundna einræði, sem stofnsett er á rústum lýðræð- isins að undangenginni byltingu. f öðru tilfellinu er hægt að afnema einræðið þegar hlutverki þess er lokið, án nokk- urs ofbeldis eða áreksturs. í hinu tilfellinu verður það að- eins afnumið með ofbeldi, blóðsúthellingum og hvers kyns ógnum, sem reist var á ofbeldi og kúgun. Hér við bætist, að undir bráðabirgðareinræði lýðræðisfyrirkomulagsins er gagnrýni á stjórnarframkvæmdum aldrei afnumin, þar sem aftur á móti hið ótímabundna einræði byggir viðgang sinn og valdsvið á því, að banna og útiloka alla gagnrýni, bæði í ræðu og riti. Afleiðingin verður svo sú, að þegar vald- hafanum fatast, þá eru þeir, sem betur hafa séð, útilok- aðir frá því að geta látið álit sitt í ljós, eða þá að eng- inn er við því búinn að ráða fram úr vandanum, þar eð menn ekki hafa fengið á frjálsan hátt að þroska með sér hugsunina um það, hvernig hag þjóðarinnar væri best borgið. Annað atriðið, sem fjendur lýðræðisins hengja hatt sinn á, þegar þeir vilja sýna fram á fánýti þess, er að kjós- endurnir, eða mestur hluti þeirra, hafi ekki aðstæður til þess að geta gert sér grein fyrir, hvað rétt sé eða rangt í ein- stökum atriðum allra þeirra mála, sem stjórnmálamenn- irnir þurfi að ráða fram úr. En við þetta er það að at- huga, að kjósandi i lýðræðisskipulagi greiðir yfirleitt ekki atkvæði með eða móti einstökum atriðum vissra mála, held- ur kýs þann mann, sem hann treystir til þess að ráða fram úr vandamálunum, eftir að hafa kynnt sér hverjar séu í aðalatriðum stjórnmálaskoðanir þessa manns, og hver sé aðalstefna hans um úrlausn vandamála þjóðfélagsins. Und- ir lýðræðisfyrirkomulagi gerir þjóðfélagið svo með al- mennri menntun sitt, til þess að auka á víðsýni og þekk-

x

Vaka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka
https://timarit.is/publication/1693

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.