Vaka - 01.09.1937, Qupperneq 13
II
inu? Og í hvaða máli eða á hvern hátt hefir það sýnt
sig, að um pólitískt handalag við þjóðernissinna væri að
ræða?
Þessum spurningum geta róttækir spreytt sig á að
svara i næstu skrifum sínum, en allir fulltrúarnir í stúd-
entaráSi, og aðrir, sem til þekkja, vita að þeir geta þa'ð
ekki.
Reynslan hefir sem sé sýnt það Ijósast, að ásakanir
róttækra um stefnusvik lýðræðissinna í sambandi við
stjómarkosninguna í stúdentaráðinu voru staðlausar
blekldngar.
Þessi orð læt eg nægja um lítilmótlegar og ódrengí-
legar tilraunir róttækra til þess að bregða okkur lýðræð-
issinnum um' pólitískt óhreinlyndi, og þótti mér ekki rétt,
aö við þeim yröi alveg þagað, svo þungar ásakanir sem
þetta í sjálfu sér eru, enda þótt þær hafi verið bornar
fram méð þeim hætti, að minnstar líkur eru til að þær
geti verið til þess íallnar, að skerða okkar málstað. Verð-
ur þá að hinu vikið, að skyggnast í eigin barm rót-
tækra.
UM FÉLAG RÓTTÆKRA STÚDENTA.
Það verður verkefnið í þessum þætti, að sýna fram á
aðstæðurnar í félagi róttækra og athuga þess heimilis-
hagi.
Kommúnistarnir í Háskólanum hafa frá öndverðu verið
potturinn og pannan í félagi róttækra, og munu hafa átt
forgöngu um stofnun þess. Enda fer svo, að ef litið
er yfir feril félagsins og mál þau, er það hefir verið
við riðið, eru kommúnistarnir alls staðar efstir á blaði
—- í stúdentaráði, í fyrirsvari á fundum, í blaðaskrifum,
í útvarpi og endra nær, eftir atvikum. Félagið tekur þátt
í kröfugöngum i. maí fyrir forgöngu kommúnistanna,
stendur fyrir leshringum um kommúnistisk fræði o. s.
frv.
Hinsvegar er nú „samfylking vinstri flokkanna" efsta
málið á dagskrá félagsins, sérstaklega eftir að kommún-
istaflokkurinn byrjaði opinberlega að reka „samfylkingar-