Vaka - 01.09.1937, Síða 20
i8
viðskipta. Málunum er í raun og veru þannig komið, aÖ
fullveldi vort og hlutleysi er vi'Öurkennt af Dönum ein-
um. Fuliveldið vita fæstar þjóoir um, enda þykir ótrú-
legt, að það riki sé frjálst og fullvalda, sem hefir erlend-
an konung og lætur ræðismenn annars ríkis fara með utan-
ríkismál sín. Þó voru Danir ekki allskostar ánægðir, og
vildu meðal annars afnema þau skilyrði, að maður þyrfti
að vera búsettur á Islendi ákveðið árabil, til þess að hafa
þar kosningarétt og kjörgengi.
Danir ráku smiðshöggið á verkið með 18. gr. sam-
bandslaganna. Þegar þeir fengu ekki afstýrt þvi, að endur-
skoðun laganna færi fram eftir 1940, bjuggu þeir svo
um hnútana, að tvísýnt er, að nokkurntíma fáist lögleg-
ur meirihluti fyrir sambandsslitum. Fyrirmæli 18. gr. eru
m. a. á þessa leið: „Eftir árslok 1940 getur Rikisþing
eða Alþingi, hvort fyrir sig, hvenær sem er, kraf-
izt, að byrjað verði á samningum um endurskoð-
un laga þessara. Nú er nýr samingur ekki gerður
innan þriggja ára frá þvi að krafan kom fram,
og getur þá Ríkisþing eða Alþingi samþykkt, að samn-
ingur þessi sé úr gildi felldur.“ Til þess að ályktun þessi
sé gild, setja lögin þau fyrirmæli, að 2/ úr hvorri deild
Ríkisþingsins eða 2/ sameinaðs Alþingis, samþykki samn-
ingsslitin. Síðan þurfa að fara fram kosningar um málið.
Kosningarétt hafa þar kjósendur til Alþingis. Nú nægir
ekki einfaldur meirihluti. Fyrst og fremst þurfa / at-
kvæðisbærra manna að greiða atkvæði, og síðan þurfa
/ greiddra atkvæða að falla með samningsslitum. Til
samanburðar má geta þess, að um bannmálið greiddu
atkvæði (sömu skilyrði til kosningaréttar) um 45%, en
hér er krafizt 75%.
Það verður ekki sagt, að Danir hafi boðið „nýlendu“
sinni nein sérstök kostakjör, enda hefir og sambúðin farið
eftir því. Ffvað eftir annað hafa risið upp deilur og úlf-
úð milli Dana og Islendinga. Island verið „sett hjá“,
gleymst og orðið fyrir hnútukasti af Dönskum. Þetta
hefir ekki komið fyrir í sambúð Islendinga við hinar
frændþjóðirnar. Ástæða er til að ætla, að andleg og
viðskiptaleg velvild færi vaxandi og batnandi, ef eigi