Vaka - 01.09.1937, Síða 26
24
ERLENDUR BJÖRNSSON, stud. jur.:
Misheppnuð stjórnmálastefna.
Sá er einn flokkur manna — blessunarlega fámennur
aÖ vísu —, sem risi'ð hefir öndverður gegn hvers kyns
frjálslyndri lýðræðishyggju í þjóðmálum. Víst er það
skrítið, en samt er það satt. Svonefndir þjóðernissinnar,
með nokkra háskólastúdenta, sem þegar eru teknir að ger-
ast alþýðu kunnir að endemum, i brjósti fylkingar, telja
sjálfstæði og þroska hins unga íslands bezt borgið með
því að koma hér á harðstjórn og svipta sem flesta af
borgurum ríkisins, sem hafa þó ekki verið taldir um of
margir, réttinum til þátttöku í stjórn landsins sem og til
að láta í ljós skoðanir sínar um þau efni. Mun vera í
ráði, að Guttormur, þrátt fyrir afstöðu sína til Abessiníu-
stríðsins, verði pússaður upp sem nokkurs konar Gulhver
í þessu fyrirheitna Putalandi.
Þegar litið er yfir sögu fascismans hér, er það mjög
áberandi, að hann er gagnrýnislaus eftiröpun á erlendum
öfgastefnum. Þegar Hitler hafði fleytt sér á eymd hinnar
þýzku þjóðar inn í stj órnarsessinn þar, létu nokkur glæfra-
menni sig dreyma um að gera hið sama hér. En þeim virð-
í félagsskap, þar sem kommúnistar hafa tögl og hagldir.
FormaSur Framsóknarflokksins hefir nýlega í blaði sínu
lagt sinn dóm á starfsemi þessara manna i skólum lands-
ins. Verður sá dómur um samtök róttækra stúdenta eigi
skilinn á annan veg en þann, a<5 lítt muni a. m. k. fram-
sóknar-sinnuðum stúdentum heppileg samvinna við þau
öfl, er þar eru ráðandi.
Við íýðræðissmnaðir stúdentar höfum tekið upp bar-
áttu gegn áhrifum erlendu öfgastefnanna. Við heitum
nú á alla frjálslynda menntamenn, hvar í flokki sem þeir
standa, til liðs í þeirri baráttu. Sú barátta stendur um
lýðræði eða einræði, frelsi eða kúgun.