Vaka - 01.09.1937, Síða 28

Vaka - 01.09.1937, Síða 28
2Ó ar, t. d. hættir æskumönnum jafnan vi'Ö aÖ hneigjast til öfga. Þá skapa og samvistir manna i skólum betri skil- yrði en víÖast annarsstaÖar eru fyrir hendi fyrir útbreiÖslu hvers konar nýmæla, illra sem góÖra, og á þá við, að „ekki þarf nema einn gikk í hverri veiðistöð“. En helzta lyftistöng fascismans í skólum hér, var þó að sjálfsögðu misskilningur nokkurra framgjarnra, en ekki að sama skapi víðsýnna menntamanna á valdatöku Hitlers 1933. Nokkrir unglingar hugðu sig kallaða, til þess að vera frelsarar Is- lands: Óvinurinn átti að verahinn „þjóðhættulegimarxismi“, og er hugtakið marxismi notað af þeim nokkuð í annarri merkingu en annars er lögð í það orð af vísinda- og stjórnmálamönnum. Marxistar eru i augum fáscista allir vinstrimenn, hvaða flokki, sem þeir fylgja. Þessi skiln- ingur fjölgar, að vísu, til muna hinum þjóðhættulegu marxistum, en gerir hins vegar hina fascistisku baráttu — að tala um píslarvætti nær auðvitað engri átt — mun dýrlegra hlutskipti, heldur en ef einungis væri átt i erj- um við fáeina undanvillinga Stalins. Um árangurinn af baráttu fyrir fascisma, hér á landi, þarf ekki að fjölyrða, því að flestar fyrirætlanir þeirra hafa, sem vænta mátti, orðið að sitja við orðin tóm. í Háskólanum hafa þó fascistiskir kraftar látið ljós sitt skína í Stúdentaráðinu, og þar sem kommúnisminn var um sömu mundir upp á sitt bezta, urðu átök hörð og ekki sem prúðmannlegust á milli þessara tveggja öfga- flokka. Erjur þessar rýrðu auðvitað til muna starfhæfni Stúdentaráðsins. En ófremdarástandið fékk skjótan endi og heppilegan, þegar lýðræðissinnar hófu baráttu sína haustið 1934 og stofnuðu „Vöku“ nokkru síðar. Eins og vænta má, átti þessi nýstofnaði félagsskapur lýðræðissinnaðra stúdenta við mikla erfiðleika að stríða fyrst í stað. Hann þurfti að berjast á tvær hendur, ann- arsvegar við fascistapiltana, hinsvegar við samfylkingu kommúnista. Jafnvel ýmsir af hinum frjálslyndari vinstri- mönnum þekktu ekki sinn vitjunartíma, voru tortryggnir í garð þessa félagsskapuar, og kusu heldur að fylgja sam- fylkingunni. Barátta lýðræðissinnaðra stúdenta hlýtur að beinast að

x

Vaka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka
https://timarit.is/publication/1693

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.