Vaka

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vaka - 01.09.1937, Qupperneq 29

Vaka - 01.09.1937, Qupperneq 29
27 SIGURÐUR ÓLAFSSON, stud. med.: Einræðisríkin og ófriðarhættan. Þegar fjármáia- og viðskiptakreppan skall yfir 1931, þóttust margir þess vissir, að þá myndi fara sem fyr, að kreppan myndi líða hjá eftir nokkurn tíina. Þetta var að rætast. Eftir óeðlilegar hömlur á öllu viðskiptalífi í fjögur ár, vaxandi atvinnuleysi og vandræði heima fyrir, þá tóku þjóðirnar að eygja betri horfur og von um bjart sumar eftir harðan vetur. En þá voru þau spor stigin, sem að- eins geta endað með skelfingu. því að opna augu stúdentanna fyrir skaðsemi öfgastefna í stjórnmálum. Lýðræðissinnar telja það köllun sína að vara hina fastheldnari rnenn við glæfraspili fascismans og forða hinum róttækari frá því að verða kommúnism- anum að bráð og telja þá bezt starfað í akademiskum anda, er reynt sé að ala upp rólega hugsandi menn, trausta í sínu starfi, hverjum af hinum lýðræðissinnuðu stjórn- málaflokkum vorum sem þeir síðar kjósa að fylgja. Sú starfsemi lýðræðissinna, að draga úr ófriðaröldun- um innan Háskólans, hefir reynzt áhrifamikið vopn gegn fascismanum. Hann hefir ekki fengið þá næringu, sem illdeilur eru öfgaflokkum. Fascistar eiga að visu ennþá einn fulltrúa af niu i Stúdentaráði. En þessi hlutföll gefa þó ekki rétta hugmynd um fylgi þeirra meðal náms- manna við Háskólann, því að fascistar hafa legið á því lúalagi að láta innrita í ýmsar deildir Háskólans stú- denta, sem ekkert háskólanám stunda, til þess eins, að því er virðist, að veita fascistum kjörfylgi. Slíkur flokk- ur á að sjálfsögðu ekki mikla framtíð, einkum þegar hér við bætist, að fulltrúinn í Stúdentaráði hefir verið at- hafnalaus að mestu, nema þá sjaldan, að lýðræðissinnar hafa notað hann, til þess að greiða atkvæði gegn kom- múnistum og samfylkingu þeirra.

x

Vaka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka
https://timarit.is/publication/1693

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.