Viljinn - 01.12.1955, Page 3

Viljinn - 01.12.1955, Page 3
L. Maxwell: r - 3 J VOTNAÐAR KARTÖFLUR Me lenn hristu höfuðið og drápu kímnislega tittlinga, þegar þeir fóru fram hjá býli Hannesar. Hann gekk með svo heimskulega grillu. Það var kominn tími til ftaka upp kartöflurnar og allir hinir bændurnir voru önnum nir við að skera upp hjá sér og láta uppskeruna undir þak. Hannes var ekki einu sinni byrjaður að taka sínar kartöfl- ur upp. Reyndar sagðist hann ekki hafa í hyggju að gera það. "Sjáið þið til," sagði hann við nágranna sxna, !íeg trái að Jesús komi aftur 22. október. Eg hefi nægar kartöflur x kjall aranum fram að þeim tíma, og á eftir mun eg vissulega ekki þarfn- ast neinna.'* "Eg trúi á það að fara x kirkju og allt það,!i sagði einn af nágrönnunum með samúð, "en þetta er að taka trúarbrögðin of alvarlega. Gerum ráð fyrir að Jesús komi ekki og þú og fjöl- skylda þín svelti.!! (,Eg er viss um að hann kemur,” svaraði Hannes. ,!Ef ekki, mun hann sjá okkur fyrir nauðþurftum.,! "Við skulum taka kartöflurnar þínar upp fyrir þig," sagði annar nágranni vingjarnlega. !*Nei, þökk," sagði Hannes. !,Eg ætla að láta þær vera þar sem þær eru, svo fólk viti að eg trúi virkilega að Jesús er að koma. Vinir, eg vildi að einnig þið vilduð nota þennan upp- jÉtórutíma til að undirbúa hjörtu ykkar undir að mæta Frelsaranum. Nágrannarnir smeru sár við og fóru, hristu höfuðið um leið. Hannes var vonlaus. Tuttugasti og annar október, 1844 - fyrir um það bil 110 árum - kom og fór, og Jesús kom ekki. En hvað nágrannamir hlógu. En þá kom einkennilegur atburður fyrir, er þurrkaði hlátursvipinn af andliti þeirra. Bóndi einn fór út morgun einn að líta á kartöflurnar sínar. Einkennilegur dökkur litur dró athygli hans að sér. Hann tók upp kartöflu og hún var mjúk, svampkennd og hál. Hún hafði rotnað. Hann gróf höndum sínum æðisgenginn í gegn um hrúguna. Allar hinar kartöflurnar voru rotnaöar líka. (Frh.bls.14)

x

Viljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Viljinn
https://timarit.is/publication/1700

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.