Fréttablaðið - 13.10.2022, Page 2
Þekkt er að bændur
sleppi eftir fyrstu
smölun.
Guðjón Sigurðsson, fjallskilastjóri
Við erum sterk liðs-
heild sem getur komist
yfir allar hindranir,
jafnvel þó að þær
virðist stundum óyfir-
stíganlegar.
Úr bréfi skólastjórnenda MH
Urð og grjót – upp í mót
Kristín Jónsdóttir eldfjallafræðingur og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fylgdu Hákoni krónprins Noregs og fylgdarliði hans að gosstöðvunum í Mera-
dölum í gær. Krónprinsins kom til landsins til að vera viðstaddur ráðstefnuna Hringborð Norðurslóða, Arctic Circle, sem hefst í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI.
Seyðfirskir bændur fá skammir í
hattinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
benediktboas@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Bændur á Seyðisfirði
þurfa að fara eftir reglum varðandi
smölun í Seyðisfirði. „Þekkt er að
bændur sleppi eftir fyrstu smölun
sem er algjörlega ótækt og þarf
að taka á,“ sagði Guðjón Sigurðs-
son fjallskilastjóri, á fundi heima-
stjórnar Seyðisfjarðar.
Í bókun um málið kemur fram að
ljóst sé að bændur þurfi að huga að
fjallskilasamþykktum. Var starfs-
manni falið að setja sig í samband
við Margréti Ólöfu Sveinsdóttur
verkefnisstjóra umhverfismála, til
að fara yfir málið. n
Óþægir bændur
við Seyðisfjörð
Mikið vatn hefur runnið
til sjávar innan MH frá því
að bylting nemenda hófst í
byrjun mánaðar. Skólastjórn-
endur segja utanumhald um
þolendur aukið og að þeir fái
að njóta sveigjanleika í námi.
helenros@frettabladid.is
MENNTAMÁL Menntaskólinn við
Hamrahlíð verður fyrsti fram-
haldsskólinn til að veita nýrri
aðgerðaáætlun viðtöku vegna mála
sem varða einelti, kynferðislega
áreitni og kynferðislegt of beldi.
Þetta kemur fram í svari frá Steini
Jóhannssyni, rektor skólans, við fyr-
irspurn Fréttablaðsins. Áætlunin er
unnin af Sambandi íslenskra fram-
haldsskólanema og menntamála-
yfirvalda og mun vinnu við hana
ljúka á næstu vikum.
Áætlunin kemur til í kjölfar
byltingar framhaldsskólanema
sem hófst í byrjun mánaðar. Nem-
endur gagnrýndu skólastjórnendur
og ráðamenn þjóðarinnar harð-
lega vegna aðgerðaleysis í kyn-
ferðisbrotamálum innan skólanna.
Nemendur mótmæltu því að þurfa
stunda nám með meintum ger-
endum.
Steinn segir sérstakan kynheil-
brigðisáfanga standa nemendum
til boða á næstu önn sem rúmlega
80 nemendur hafa nú skráð sig í. Þá
hafi sérstakur tilkynningahnappur
verið settur á heimasíðu skólans þar
sem hægt sé að tilkynna um einelti,
kynferðislega áreitni eða kynferðis-
legt ofbeldi innan skólans.
„Utanumhald um þolendur er
aukið og þeir fá að njóta þess sveigj-
anleika í náminu sem aðstæður
krefjast. Náms- og starfsráðgjafar
auk sálfræðings sjá um að þjónusta
nemendur og gera kennurum við-
vart þegar aðstæður kalla á sérstak-
an sveigjanleika,“ segir jafnframt í
bréfi skólastjórnenda sem sent var
til nemenda og aðstandenda skól-
ans í gær. Skólinn muni gera allt í
sínu valdi til að tryggja að meintir
gerendur og meintir brotaþolar séu
ekki saman í áföngum og bjóða upp
á úrræði þar sem nemendur geta
stundað nám heima hjá sér í sam-
vinnu við kennara.
„Við trúum því að við séum á
réttri leið og samvinna stjórnenda,
starfsfólks og nemenda skiptir öllu
máli. Við erum sterk liðsheild sem
getur komist yfir allar hindranir,
jafnvel þó að þær virðist stundum
óyfirstíganlegar,“ segir að lokum í
bréfi skólastjórnenda.
Þrjú mál hafa verið tilkynnt
til skólastjórnenda MH á þessari
haustönn er varða kynferðisof-
beldi sem varða nemendur skólans
og gerðust öll málin utan skólatíma.
Aðspurður hvort fleiri tilkynningar
um ofbeldismál hafi borist eftir að
bylting nemenda hófst segir Steinn
svo ekki vera en tilkynningar hafi
borist um eineltismál. „Slík mál fara
í ferli samkvæmt eineltisáætlun
skólans.“ n
Þolendur fá sveigjanleika í
námi og aukið utanumhald
Menntskælingar við Hamrahlíð mótmæltu aðgerðaleysi skólastjórnenda í
kynferðisbrotamálum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
KAUPUM BLEIKU SLAUFUNA
Sýnum lit
á bleikaslaufan.is og á sölustöðum
um allt land 1. – 20. október
LíFIÐ E AÐ
VERÐA BUMBULT
Á JÓLUNUM
sbt@frettabladid.is
AKUREYRI Sigurður Kristins son, 71
árs karl maður sem dvalið hefur á
sjúkra húsi á Spáni síðan um miðjan
ágúst, lenti á Akur eyri í gær eftir
langt flug.
Sigurður fékk heila blóð fall sem
varð til þess að hann lamaðist
vinstra megin í líkamanum. Dóttir
Sigurðar segir þungu fargi af þeim
létt.
Þegar Sigurður lenti á f lug-
vellinum á Akur eyri var hann flutt-
ur með sjúkra bíl á Sjúkra húsið á
Akur eyri, þar sem hann mun dvelja
í ein hvern tíma.
„Pabbi þarf núna að fara í ein-
angrun, af því að hann var á
spænsku sjúkra húsi. Hversu lengi,
það er ekki vitað. Svo ætla þau að
rann saka hann vel og reyna að átta
sig á stöðunni og byrja með ferð
ró lega,“ segir Rúna Kristín, dóttir
Sigurðar í sam tali við Frétta blaðið.
„Það er þungu fargi af okkur létt,“
segir Rúna Kristín.
Mál Sigurðar hefur vakið þjóðar-
athygli eftir að ljóst varð að Sjúkra-
tryggingar Íslands greiddu ekki flug
hans heim . n
Þungu fargi af létt að fá pabba heim
Sigurður við komuna til Akureyrar.
2 Fréttir 13. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ