Fréttablaðið - 13.10.2022, Side 14
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Sá er þó
munurinn
á gömlum
dögum og
nýjum – og
hann er
mikill – að
rimmurnar
eru ekki
lengur mál-
efnalegar,
heldur per-
sónulegar.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Markviss neytendavernd er ein af forsendum heilbrigðs
atvinnulífs. Neytendavernd snýst um að hámarka vel-
sæld og tryggja öruggan og einfaldan markað sem gerir
neytendum kleift að taka sem bestar ákvarðanir.
Það er mjög brýnt að við stöndum vaktina í neyt-
endamálum, ekki síst í ört breytilegum heimi netvið-
skipta og þjónustu. Á kjörtímabilinu gerum við ráð fyrir
umbótum á sviði neytendaverndar en það eru mikil
sóknarfæri á þessu sviði. Þannig verður heildarstefnu-
mótun á sviði neytendaverndar unnin sem mun nýtast
sem leiðarljós í málaflokknum næstu árin.
Ýmsar aðgerðir eru einnig hafnar á sviði neytenda-
mála. Þannig hef ég hrundið af stað vinnu nefndar sem
hefur það hlutverk að skoða hlut þjónustu- og vaxta-
gjalda, vaxtamunar og hvers konar annarra þóknana
og annarrar gjaldtöku af viðskiptavinum í arðsemi
bankanna með það að markmiði að kanna hvort íslensk
heimili greiði meira fyrir almenna viðskiptabanka-
þjónustu en heimili á hinum Norðurlöndunum.
Þá skipaði ég starfs hóp sem er ætlað að útfæra laga-
breyt ingar sem tryggi að ástands skýrslur fylgi sölu yf ir-
liti allra fast eigna sem ætl aðar eru til íbúð ar.
Framlög til Neytendasamtakanna voru hækkuð til
að gera þeim betur kleift að halda úti öflugri þjónustu
og stuðla að aukinni neytendavitund. Til skoðunar er
hvernig unnt sé að efla starfsemi þeirra enn frekar og
styrkja þannig málaflokkinn.
Við viljum tryggja stöðu neytenda betur í nýju
umhverfi netviðskipta og með hliðsjón af stafvæðingu,
orkuskiptum og umhverfisvernd. Í þessu samhengi er
prófsteinn á neytendavernd hversu vel okkur tekst til
við að vernda viðkvæma neytendur og börn fyrir órétt-
mætum viðskiptaháttum.
Við viljum einnig bæta framfylgd löggjafar sem
verndar neytendur. Þetta er best gert með skilvirku
eftirliti, skjótri úrlausn ágreiningsmála og markvissri
fræðslu. Þá er hafin endurskoðun á stofnanaumgjörð
á sviði neytendaverndar í samræmi við áherslur í
stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
Öflug neytendavernd er mikilvæg fyrir samfélagið
og miklu máli skiptir að við öll séum á tánum til þess að
stuðla að aukinni vitund um mikilvægi neytendamála. n
Neytendamál á dagskrá
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
viðskiptaráðherra
og varaformaður
Framsóknar
ser@frettabladid.is
Gott flug
Það fór eins og það fór í Portó
– og auðvitað var það ekkert
annað en dómaraskandall sem
hafði sigurinn af stelpunum
okkar. Þær geta samt borið
höfuðið hátt og lögðu sig allar
fram við að hafa sigurinn með
sér heim til Íslands. En töpuðu.
Sigurvegarinn í þessu öllu
saman er auðvitað Icelandair
sem skreytti svalir vallarins
með harla líflegum Íslendingum
sem hvöttu stelpurnar okkar af
allri þeirri orku raddbandanna
sem möguleg var. Forkólfar
flugfélagsins brugðust nefni-
lega hratt og vel við og fylltu
eina vél af stuðningsmönnum
á núll einni – og fyrir vikið lifir
leikurinn í gleðilegri minningu
en ella.
Meðhald
Maður verður þá bara að fara að
halda með öðrum liðum, hugs-
aði sjálfsagt maður og annar til í
sófanum heima í fyrrakvöld, sár-
svekktur eftir ósléttar farirnar
í suðrænu hafnarborginni. Og
það á HM-unum báðum, kvenna
og karla, í Eyjaálfu og Arabíu.
Og er þá ekki bara öruggast að
taka enga sénsa, hugsa eins og
ábyrgur endurskoðandi – og
segja sem svo: fótbolti er leikur
tveggja liða, þar sem að minnsta
kosti ellefu leikmenn byrja inn
á í hvoru liði, hvað svo sem síðar
verður – og Þjóðverjar vinna,
örugglega, 1:0 … n
FIMMTUDAGA KL 19.30 OG 21.30
SUÐURNESJAMAGASÍN
Það er ekki hátt risið á forystu Alþýðu-
sambandsins þessa dagana og trú-
verðugleiki helstu launþegasamtaka
Íslands er farinn sömu leið og margir
helstu forkólfar þeirra, horfinn á dyr.
Hjaðningavígin innan sambandsins hafa
verið áberandi um árabil, en fyrirlitningin sem
nafntogað fólk innan hreyfingarinnar hefur
sýnt hvert öðru í þessara dæmalausu viku í
sögu ASÍ er með eindæmum. Það var ekki einu
sinni reynt að fela forsmánina og hatursfullar
háðsglósur á þingi sambandsins í fyrradag,
sem varð til þess að því var frestað í gærdag. Þar
voru gerð hróp að fólki og það ausið svívirðing-
um, baulað og öskrað yfir ræðumenn og fótum
stappað niður til að leggja áherslu á andúð sína
á félagsmönnum.
Klofningurinn er augljós. Og hann er ámát-
legur. En saga Alþýðusambandsins er auðvitað
uppfull af átakasenum. Ekki er nema manns-
aldur frá því sambandið klofnaði í tvennt og
næstu áratugina, allt fram undir aldamót,
hvein reglulega í tálknum.
Ef til vill hefur sambandið þótt vera orðið
nokkuð settlegt hin seinni árin, gott ef ekki
værðarlegt, í býsna háskólagenginni bírókrasíu.
Og uppreisnin í nafni gassalegrar kjarabaráttu
hefur smám saman verið að taka á sig æsilegri
mynd.
Sá er þó munurinn á gömlum dögum og
nýjum – og hann er mikill – að rimmurnar eru
ekki lengur málefnalegar, heldur persónulegar.
Fólk getur ekki talast við.
Erfitt er að sjá að persónur og leikendur
í þessum hanaslag muni geta lappað upp á
ásýnd Alþýðusambandsins, svo mjög sem hún
er orðin löskuð. Sættir eru ekki í sjónmáli.
Svo mikið er víst. Sundrungin er enn að grafa
um sig – og skotgrafirnar kunna að dýpka að
miklum mun.
Þá er til þess að horfa að Alþýðusamband
Íslands er fyrst og síðast regnhlífarsamtök
margra og jafnvel ólíkra verkalýðsfélaga í
landinu. Regnhlífin hefur haldið veðri og
vindum, lengst af, en hefur aldrei verið valda-
mikil í sjálfu sér.
Magtin hefur miklu fremur haldist heima í
héraði. Hjá hverju félagi fyrir sig. Og nú kann að
blasa við sú sviðsmynd að hvert og eitt þessara
félaga reyni fyrir sig upp á eigin spýtur. Verk-
falls- og samningarétturinn er hvort eð er á
þeirra hendi.
Launafólkið innan ASÍ telur 130 þúsund
sálir, þar af eru 50 þúsund í VR og 30 þúsund í
Eflingu. Fyrst samhljómurinn er horfinn, blasir
einleikurinn við. n
Klofningur ASÍ
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 13. október 2022 FIMMTUDAGUR