Fréttablaðið - 13.10.2022, Síða 15

Fréttablaðið - 13.10.2022, Síða 15
Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli Hvort er nú meiri þörf á að vísa fólki til landsins eða frá því? Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarástandi á landamærum Íslands vegna fjölda fólks á flótta. Í fyrsta sinn hafa verið opnaðar flóttamannabúðir á Íslandi. Þetta er það sem að okkur snýr þegar flóttamenn hafa ekki verið fleiri í heiminum síðan seinni heims- styrjöldinni lauk. Stjórnvöld hafa ekki náð tökum á viðfangsefninu. Athyglin Nefnd þingmanna er nýkomin úr kynnisferð til Norðurlanda þar sem hún átti samtöl um innflytj- endapólitík. Sú upplýsingamiðlun um innflytjendamál, sem jafnan vekur mesta athygli, eru sjón- varpsviðtöl við fólk, sem vísa á úr landi. Þau eru oft tvöfalt lengri en forsætisráðherra fær. Eðlilega skilja þau eftir heitar tilfinningar. Tilfinningaumræða getur svo bæði eflt samúð og kynt undir úlfúð. Innflytjendamál hafa lengi verið eldfim pólitík í Skandinavíu. Við höfum aftur á móti að mestu leitt þau hjá okkur að frátöldum umræðum um einstakar brott- vísanir. Þörf Að baki móttöku flóttamanna og fólks sem sækir hér um alþjóðlega vernd liggja mannúðarsjónarmið. Á þeim siðferðilegu forsendum höfum við tekist á hendur alþjóð- legar skuldbindingar. Hér eins og annars staðar sæta þær þó skorðum, jafnvel þótt þörfin fyrir fleira fólk sé augljós. En miklu fleiri innflytjendur eru hér af öðrum ástæðum: Við höfum einfaldlega efnahagslega þörf fyrir þá. Vinna þeirra og flóttamanna er forsenda fyrir hagvexti og velferð í landinu. Útlendingaandúð sam- ræmist því ekki óskum um betri lífskjör. En það breytir ekki hinu að full þörf er á ríkari málefnalegri umræðu um þessi efni en verið hefur. Á reiki Reglur um flóttafólk og fram- kvæmd þeirra þurfa til að mynda að fela í sér ótvíræð skilaboð um það hvar mörkin liggja. Löggjöf um aðra innflytjendur þarf að sama skapi að byggja á stefnu og skýrum markmiðum. Hvort tveggja er um of á reiki. Aðild Íslands að innri markaði Evrópusambandsins tryggir frjálsa för fólks á milli aðildarríkja. Það hefur reynst mikil hjálparhella fyrir efnahag landsins. En nú virðist draga úr hreyfingu fólks milli Evrópulanda. Það kallar á viðbótarúrræði. Tímamót Nýr mannauður er heiti á skýrslu, sem Berglind Ásgeirsdóttir fyrr- verandi ráðuneytisstjóri og sendi- herra hefur samið. Þar birtist ný sýn á nauðsyn og mikilvægi mark- vissrar innflytjendastefnu. Skýrslan markar tvímælalaust tímamót í málefnalegri umræðu um þessi efni. Í henni er ekki fjallað um kvótaflóttamenn og þá sem óska eftir alþjóðlegri vernd. Höfundur telur hins vegar að Ísland geti stóraukið samkeppnis- hæfni sína á alþjóðavettvangi með því að skapa aðstæður, sem laði Tilvísun eða frávísun hingað hæfileikaríkt fólk og nýta betur þann mannauð af erlendum uppruna, sem þegar er í landinu. Umskipti Fyrir aðild Íslands að innri mark- aði Evrópusambandsins hafði fjöldi útlendinga um áratugi verið undir 2 prósentum. Í dag er þessi tala komin yfir 17 prósent. Það er ekki víðsfjarri því að jafngilda hálfri Reykjavík. Höfundur gerir líka grein fyrir framtíðarhorfum. Hagstofan áætlar að á næstu tíu árum fjölgi starfsfólki á vinnualdri um 34 þúsund. Náttúruleg fjölgun íbúa mun aðeins fylla 6 þúsund þeirra starfa og standa undir 0,5 prósenta hagvexti. Samtök atvinnulífsins telja að á næstu fjórum árum þurfi 12 þúsund útlendinga inn á vinnu- markaðinn. Samtök iðnaðarins ætla að á næstu fimm árum þurfi 4.500 erlenda sérfræðinga einungis fyrir hugbúnaðargeirann. Tölur Hagstofunnar miða við 2,5 prósenta hagvöxt. Ef við horfum bara á það verkefni að borga niður skuldir ríkissjóðs þarf hagvöxtur að verða talsvert meiri. Kortlagning Ábending skýrsluhöfundar um nauðsyn þess að móta skýra og markvissa innflytjendastefnu er sannarlega tímabær. Tillögur hennar byggja á rannsóknum við háskóla í Kanada og reynslu frá starfi sem aðstoðarframkvæmda- stjóri OECD. Augljóslega þarf að ryðja mörgum hindrunum úr vegi en líka auðvelda aðlögun þessara mikilvægu borgara að íslensku samfélagi. Tungumálið er þar í lykilhlutverki. Engum blöðum er um það að fletta að við þurfum að vísa fólki veginn til landsins og kortleggja bæði leiðina og aðlögunina. Þetta er mikilvægt pólitískt verkefni, sem kallar á forystu. n Kauptu Galaxy Flip4 og fáðu Galaxy Tab A8 spjaldtölvu í kaupauka (Virði 44.900 kr.) Flippaður kaupauki í október samsungmobile.is FIMMTUDAGUR 13. október 2022 Skoðun 15FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.