Fréttablaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 15
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Hvort er nú meiri þörf á að vísa
fólki til landsins eða frá því?
Ríkislögreglustjóri hefur lýst
yfir neyðarástandi á landamærum
Íslands vegna fjölda fólks á flótta.
Í fyrsta sinn hafa verið opnaðar
flóttamannabúðir á Íslandi. Þetta
er það sem að okkur snýr þegar
flóttamenn hafa ekki verið fleiri
í heiminum síðan seinni heims-
styrjöldinni lauk. Stjórnvöld hafa
ekki náð tökum á viðfangsefninu.
Athyglin
Nefnd þingmanna er nýkomin úr
kynnisferð til Norðurlanda þar
sem hún átti samtöl um innflytj-
endapólitík. Sú upplýsingamiðlun
um innflytjendamál, sem jafnan
vekur mesta athygli, eru sjón-
varpsviðtöl við fólk, sem vísa á úr
landi. Þau eru oft tvöfalt lengri en
forsætisráðherra fær. Eðlilega skilja
þau eftir heitar tilfinningar.
Tilfinningaumræða getur svo
bæði eflt samúð og kynt undir
úlfúð. Innflytjendamál hafa lengi
verið eldfim pólitík í Skandinavíu.
Við höfum aftur á móti að mestu
leitt þau hjá okkur að frátöldum
umræðum um einstakar brott-
vísanir.
Þörf
Að baki móttöku flóttamanna og
fólks sem sækir hér um alþjóðlega
vernd liggja mannúðarsjónarmið.
Á þeim siðferðilegu forsendum
höfum við tekist á hendur alþjóð-
legar skuldbindingar. Hér eins
og annars staðar sæta þær þó
skorðum, jafnvel þótt þörfin fyrir
fleira fólk sé augljós.
En miklu fleiri innflytjendur eru
hér af öðrum ástæðum: Við höfum
einfaldlega efnahagslega þörf fyrir
þá. Vinna þeirra og flóttamanna er
forsenda fyrir hagvexti og velferð
í landinu. Útlendingaandúð sam-
ræmist því ekki óskum um betri
lífskjör. En það breytir ekki hinu
að full þörf er á ríkari málefnalegri
umræðu um þessi efni en verið
hefur.
Á reiki
Reglur um flóttafólk og fram-
kvæmd þeirra þurfa til að mynda
að fela í sér ótvíræð skilaboð um
það hvar mörkin liggja. Löggjöf um
aðra innflytjendur þarf að sama
skapi að byggja á stefnu og skýrum
markmiðum. Hvort tveggja er um
of á reiki.
Aðild Íslands að innri markaði
Evrópusambandsins tryggir frjálsa
för fólks á milli aðildarríkja. Það
hefur reynst mikil hjálparhella
fyrir efnahag landsins.
En nú virðist draga úr hreyfingu
fólks milli Evrópulanda. Það kallar
á viðbótarúrræði.
Tímamót
Nýr mannauður er heiti á skýrslu,
sem Berglind Ásgeirsdóttir fyrr-
verandi ráðuneytisstjóri og sendi-
herra hefur samið. Þar birtist ný
sýn á nauðsyn og mikilvægi mark-
vissrar innflytjendastefnu.
Skýrslan markar tvímælalaust
tímamót í málefnalegri umræðu
um þessi efni. Í henni er ekki
fjallað um kvótaflóttamenn og þá
sem óska eftir alþjóðlegri vernd.
Höfundur telur hins vegar að
Ísland geti stóraukið samkeppnis-
hæfni sína á alþjóðavettvangi með
því að skapa aðstæður, sem laði
Tilvísun eða frávísun
hingað hæfileikaríkt fólk og nýta
betur þann mannauð af erlendum
uppruna, sem þegar er í landinu.
Umskipti
Fyrir aðild Íslands að innri mark-
aði Evrópusambandsins hafði
fjöldi útlendinga um áratugi verið
undir 2 prósentum. Í dag er þessi
tala komin yfir 17 prósent. Það
er ekki víðsfjarri því að jafngilda
hálfri Reykjavík.
Höfundur gerir líka grein fyrir
framtíðarhorfum. Hagstofan
áætlar að á næstu tíu árum fjölgi
starfsfólki á vinnualdri um 34
þúsund. Náttúruleg fjölgun íbúa
mun aðeins fylla 6 þúsund þeirra
starfa og standa undir 0,5 prósenta
hagvexti. Samtök atvinnulífsins
telja að á næstu fjórum árum þurfi
12 þúsund útlendinga inn á vinnu-
markaðinn. Samtök iðnaðarins
ætla að á næstu fimm árum þurfi
4.500 erlenda sérfræðinga einungis
fyrir hugbúnaðargeirann.
Tölur Hagstofunnar miða við 2,5
prósenta hagvöxt. Ef við horfum
bara á það verkefni að borga niður
skuldir ríkissjóðs þarf hagvöxtur
að verða talsvert meiri.
Kortlagning
Ábending skýrsluhöfundar um
nauðsyn þess að móta skýra og
markvissa innflytjendastefnu
er sannarlega tímabær. Tillögur
hennar byggja á rannsóknum við
háskóla í Kanada og reynslu frá
starfi sem aðstoðarframkvæmda-
stjóri OECD. Augljóslega þarf að
ryðja mörgum hindrunum úr vegi
en líka auðvelda aðlögun þessara
mikilvægu borgara að íslensku
samfélagi. Tungumálið er þar í
lykilhlutverki.
Engum blöðum er um það að
fletta að við þurfum að vísa fólki
veginn til landsins og kortleggja
bæði leiðina og aðlögunina. Þetta
er mikilvægt pólitískt verkefni,
sem kallar á forystu. n
Kauptu Galaxy Flip4 og fáðu Galaxy Tab A8 spjaldtölvu í kaupauka (Virði 44.900 kr.)
Flippaður kaupauki í október
samsungmobile.is
FIMMTUDAGUR 13. október 2022 Skoðun 15FRÉTTABLAÐIÐ