Fréttablaðið - 13.10.2022, Side 17
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 13. október 2022
Gerður Helgadóttir að störfum í
stúdíóinu. MYND/GERÐARSAFN
jme@frettabladid.is
Þær Brynhildur Kristinsdóttir og
Arnhildur Brynhildardóttir leiða
smiðju þar sem unnin verða þrívíð
verk undir áhrifum frá Gerði Helga-
dóttur. Smiðjan er haldin laugar-
daginn 15. október klukkan 13.00 í
Gerðarsafni í Kópavogi í tengslum
við sýninguna Geómetríu.
Listsköpun fyrir öll
Smiðjan nefnist Allt og hvaðeina,
sem er titill á þríleik eftir dulspek-
inginn Gurdjieff, en Gerður iðkaði
hugrækt eftir forskrift hans sem
hafði áhrif á listsköpun hennar.
„Í smiðjunni gefst fjölskyldum
tækifæri til að búa til litla skúlp-
túra úr við, vír, garni, trépinnum
og pappír. Unnið verður út frá
þrívíðum verkum Gerðar og leikið
með form, línur og fleti. Ímyndun-
araflinu verður gefinn laus taumur
þannig að „allt og hvaðeina“ geti
gerst, hver veit nema fletir og form
breytist í tungl, plánetur eða sólir,“
stendur í lýsingu á viðburðinum.
Smiðjan er opin öllum og er þátt-
taka gestum að kostnaðarlausu.
Brynhildur er myndlistarmaður
og kennari. Hún starfar við mynd-
sköpun, hefur kennt myndlist
og smíðar og unnið með ýmsum
listamönnum, gert leikmyndir og
búninga fyrir gjörninga og dans.
Hún hefur haldið einkasýningar
og tekið þátt í samsýningum. Arn-
hildur er myndlistarmaður sem
útskrifaðist frá Myndlistarskól-
anum í Reykjavík í vor. n
Allt og hvaðeina
í Kópavogi
Hér klæðist Jóhanna María jakka sem er hennar hönnun. Innblásturinn sótti hún til byggingarframkvæmda við hlið skólans. Tölurnar eru úr steypu og grjóti.
Eyrnalokkarnir eru einnig hennar hönnun og gerðir úr steypu. Samfellan er frá Helicopter og buxurnar keypti hún í Amsterdam. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Heillandi að skapa persónuleika
Jóhanna María Sæberg hefur lengi haft áhuga á allri list en fann sig þó best í fatahönnun.
Hún hugsar mikið um gæði efnanna sem hún vinnur með hverju sinni. 2
QUICK CALM
Vellíðan - skerpa
Fæst í Fjarðarkaup, www.celsus.is
FLJÓTVIRKT
FRÁBÆR
MEÐMÆLI