Fréttablaðið - 13.10.2022, Síða 20
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
Það er orðið allsendis ljóst
að haustlitirnir í ár eru ekki
sóttir í fallandi lauf. Aðal-
litirnir eru ekki vínrauður,
dimmgrænn, brúnn eða
sinnepsgulur. Tískuunn-
endur munu eiga litríkari tíð
fram undan.
„Bleikur er litur ástar,
samfélags, orku
og frelsis,“ að því
er greint var frá á
Instagram-reikningi
Valentino rétt áður
en haust- og vetrarlína
tískuhússins leit dagsins
ljós í París. Sýningin
var nánast trúar-
leg stund og er
mörgum enn
ferskt í huga
hvernig bleiki
liturinn fékk
að drottna
algerlega yfir
allri sýning-
unni, hvort
sem það
var í fötum, á
veggjum, gólfi,
fylgihlutum
eða öðru. Það
var bókstaf-
lega allt bleikt,
fyrir utan
stöku svarta
eða hvíta flík
sem fékk að
fljóta með í hinu
bleika tískuhafi.
Pierpaolo Piccioli,
listrænn stjórnandi
Valentino, kallar
línuna, „flótta frá
veruleikanum“.
Bleik stræti
tískuborga
Í kjölfar þess að
Valentino málaði,
eins og frægt er orðið,
tískuborgina sjálfa
fúksíu-bleika á tísku-
sýningunni, hefur þessi
Leyfið þeim að klæðast bleiku
ákveðni litatónn, fúksíu-bleikur,
poppað upp í tískusenunni, hvort
heldur er á tískupöllunum eða á
strætum helstu tískuborga heims.
Fólkið sem fékk tískuvitið í
vöggugjöf og hefur fóstrað það
síðan keppist nú við að taka
þennan undarlega og fáheyrða
haustlit í sátt með bráðskemmti-
legum afleiðingum. Litadýrðin
hefur sjaldan verið svona mikil og
björt og hver veit, kannski er það
stafrænum tískustraumum og sam-
félagsmiðlum að þakka að tísku-
gúrúar veraldar hafa tekið bjarta
hausttískutóna með trompi. n
Anna Rosa
Vitiello klædd-
ist þessum
fúksíableiku
hönskum á
tískuvikunni í
París fyrir vor/
sumartískuna
2023.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Gestur á
tískusýningu Sim-
one Rocha á tísku-
vikunni í London í
september síðast-
liðnum.
Það var
allt æpandi
bleikt og fallegt á
Valention tískusýn-
ingunni á tísku-
vikunni í París í
vor.
4 kynningarblað A L LT 13. október 2022 FIMMTUDAGUR