Fréttablaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 13.10.2022, Blaðsíða 22
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jóhannes Steinn Jóhannsson og félagar hans úr kokkasveit Nomy, þeir Bjarni Siguróli Jakobsson og Fannar Vernharðsson, eru svo sannarlega komnir í startholurnar fyrir jólahlaðborðs-vertíðina. Þre- menningarnir eru þrautreyndir í faginu, búa yfir mikilli sérfræði- kunnáttu, hafa allir starfað með kokkalandsliðinu, keppt í alþjóð- legum matreiðslukeppnum og eiga þrjá Kokkur ársins-titla. „Við erum með tvo valmögu- leika í boði hvað varðar jólahlað- borðin. Annars vegar er það þetta hefðbundna jólahlaðborð þar sem við mætum á svæðið, stillum upp hlaðborðinu, skerum kjötið niður og græjum matinn frá a til ö. Þetta er fyrir stærri hópa og fyrirtæki. Þetta er svona hið hefð- bundna form sem fólk þekkir og við miðum þessi jólahlaðborð við minnst 80 manns,“ segir Jóhannes Steinn. Þægileg lausn og lítil fyrirhöfn „Svo erum við með annað sem er mjög sniðugt og hefur verið mjög vinsælt hjá okkur. Við köllum þetta: Tilbúið jólahlaðborð beint á borðið. Lágmarkspöntun fyrir það er tíu manns. Það er því sniðið að minni hópum og hentar vel fyrir boð í heimahúsum, saumaklúbba, vinahópa og þess vegna fyrirtæki. Þá miðast allt við að annað hvort er maturinn sóttur til okkar eða fólk pantar heimsendingu. Við afhendum þetta alveg klárt í hand- hægum umbúðum. Heiti maturinn kemur heitur, það er búið að skera kjötið niður og það eina sem þarf að gera er að hita sósuna í potti. Þetta er mjög þægileg lausn og lítil fyrirhöfn. Þetta er þriggja rétta matseðill sem inniheldur forrétt, aðalrétt og eftirrétt. Þetta er mjög þægileg lausn fyrir þá sem kjósa að fara ekki á þetta hefðbundna jóla- hlaðborð í stórum sal. Þessi máti hentar mjög vel fyrir þá sem vilja njóta hágæða jólamatar í smærri hópi með lítilli fyrirhöfn,“ segir Jóhannes. Hann segir einnig að í jólahlað- borðunum sem Nomy bjóði upp á sé öll f lóran af mat. „Í grunninn er þetta frekar hefðbundið en lagað eftir okkar hágæða leyniupp- skriftum. Við gerum allt sjálfir, gröfum lax og gæsir, gerum paté og reykjum kjötið og það er okkar helsta sérstaða í þessu.“ Þá bendir Jóhannes á að jóla- smáréttirnir sem Nomy býður upp á séu mjög vinsælir og í háum gæðaflokki. „Við erum með smá- réttapakka sem fólk getur pantað og sótt til okkar eða fengið sent heim að dyrum.“ Fólk er byrjað að panta Hvenær hefst jólahlaðborðs- vertíðin fyrir alvöru? „Við störtum þessu helgina 18.-19. nóvember. Fólk er þegar byrjað að panta hjá okkur og sér- staklega stærri hóparnir. Það er byrjað að bókast mjög vel og það er ljóst að það verður nóg að gera hjá okkur næstu vikurnar. Undir- búningurinn er þegar hafinn með því að tryggja okkur hráefni og búa til paté og fleira í þeim dúr. Þessi tími er mjög skemmtilegur en um leið mjög krefjandi. Það er voða gott þegar líður að jólum, síðustu veislurnar yfirstaðnar og gjafakörfurnar afgreiddar. Við stefnum að því að fara að huga að eigin jólaundirbúningi þann 23. desember,“ segir Jóhannes. Spurður hvort það séu ekki að koma sömu kúnnar til þeirra ár eftir ár og þeir að fara á sömu staði segir Jóhannes: „Það er bara allur gangur á því. Við erum bæði að þjónusta sömu kúnnana og svo bætast alltaf einhverjir nýir við. Það er mjög algengt að það komi nýir kúnnar sem hafa nýlega mætt í veislu þar sem boðið hefur verið upp á veitingar frá okkur. Hágæða veitingar og góð þjónusta hefur verið okkar helsta markaðssetn- ing,“ segir Jóhannes. Jóhannes og félagar hans stofnuðu Nomy árið 2019. Veislu- þjónustan tekur að sér allar gerðir viðburða svo sem árshátíðir, brúð- kaup, hvataferðir, fyrirtækjapartí, afmæli, útskriftir, fermingar og matarboð og sérsníður matseðla að óskum viðskiptavina þegar þess er óskað. n Kokkarnir Fannar Vernharðsson, Jóhannes Steinn Jóhannesson og Bjarni Siguróli Jakobsson eru þrautreyndir í faginu og búa yfir mikilli sérfræðikunnáttu. MYNDIR/BJÖRN ÁRNASON Jólasmáréttirnir hafa verið mjög vinsælir hjá Nomy veislu- þjónustu. Boðið er upp á tvenns konar jólahlaðborð fyrir stóra og smærri hópa. Það eru svo sannarlega kræsingar á borðum hjá Nomy. Í grunninn er þetta frekar hefðbundið en lagað eftir okkar hágæða leyniuppskrift- um. Jóhannes Steinn Jóhannesson Jólahlaðborð fyrir stærri hópa Forréttir n Laufabrauð – nýbakað súr- deigsbrauð – rúgbrauð – smjör n Karrísíld með eplum og jóla- síld n Fennel- og dillgrafinn lax með hunangssósu n Reykur lax með sítrónu- og chillisósu n Tvíreykt húskarla-hangikjöt með piparostasósu n Grafin gæsabringa með sult- uðum skalottlauk n Gæsapaté með karmelluðum fíkjum n Reykt andarbringa með kirsu- berja-chutney n Innbakað hreindýrapaté með aðalbláberjageli Aðalréttir n Ekta purusteik n Heilsteikt kálfa-ribeye með trufflumareningu n Hægelduð kalkúnabringa marineruð með sítrónublóð- bergi og salvíu n Wellington hnetusteik (vegan) n Sætkartöflusalat með rist- uðum pekanhnetum, appels- ínum og kryddjurtum n Ofnbakaðar kartöflur með hvítlauk, sítrónu og steinselju n Rauðkál með sólberjum n Nomy eplasalat n Seljurótarhrásalat með trufflu sinnepi n Portvínssoðgljái n Kremuð koníaks- og villi- sveppa sósa n Chimicurri Eftirréttir n Tanariva mjólkursúkkulaði- ganache á hnetupralín-súkku- laðibotni með ástaraldin-curd og hindberjum n Sérrífrómas mömmu hans Jóa Tilbúið jólahlaðborð – beint á borðið Forréttir n Rúgbrauð – nýbakað súrdeigs- brauð – smjör n Fennel- og dillgrafinn lax með hunangssósu n Reykur lax með sítrónu og chillisósu n Jólasíld og karrísíld n Reykt önd með kirsuberja- chutney n Grafin gæsabringa með sult- uðum skalottlauk n Tvíreykt húskarlahangikjöt með piparostasósu n Innbakað hreindýrapaté með aðalbláberjageli Aðalréttir n Ekta purusteik n Hægelduð kalkúnabringa marineruð með sítrónublóð- bergi og salvíu n Stöffing með steiktum sveppum, beikoni, döðlum, eplum og heslihnetum n Sætkartöflusalat með rist- uðum pekanhnetum og krydd- jurtum n Rauðkál með sólberjum n Nomy eplasalat n Kremuð koníaks- og villi- sveppa sósa Eftirréttur n Tanariva mjólkursúkkulaði- gan ache á hnetupralín-súkku- laðibotni með appelsínu-curd og hindberjum Jólasmáréttir n Fennel- og dillgrafinn lax á ristuðu focaccia með rjóma- ostakremi og graflaxsósu n Síld á kartöfluvöfflu með eggjakremi, sýrðum lauk, kap- ers, granateplum og sólselju n Tvíreykt hangikjöt á „French toast“, piparrótar-„slaw“, osturinn Feykir, n Rísottó-krókettur með villi- sveppum, mozzarella-osti og bökuðu hvítlauks-aioli með steinselju n Grillaðar Nobashi-rækjur með ponzu-mayo, stökkum hvít- lauk, kóríander og chili n Djúsí andalæraconfit með beik- oni, döðlum og appelsínuzest n Reykt andabringa með maraschino kirsuberi, krydd- brauði og kryddjurtum n Kalkúnabringa á spjóti í hunangs-engifergljáa með pecan-mayo og sesam-dukkah n Hreindýraborgari með Ísbúa 12+ í sesambrauði „steamed bun“ með villisveppa-mayo, karmelluðum lauk og kletta- salati n Karamellujólakaka „Sticky Toffee“ með jólakryddum og ástaraldin-curd n Hvítsúkkulaðitruffla með kaffi-lakkrísganache, hind- berjum og lakkrís Jólakvöldmatur Lystaukar n Jólasmáréttir að hætti Nomy Forréttir n Grafinn lax á franskri rist með hunangssinnepi, dilli, fennel og piparrót n Hreindýrapaté með kónga- sveppum og íslenskum aðalbláberjum Aðalréttir n Grilluð andabringa með rauð- rófu- og kirsuberjakremi ásamt rauðkáli, shitake-sveppum og rósakáli n Hægelduð andalæri, sykur- brúnaðar kartöflur og anda- sósa Eftirréttur n Jólasúkkulaðikúla með Tana- riva-súkkulaðimús, hindberj- um, hindberjasorbet, stökku súkkulaði og súkkulaðisósu 2 kynningarblað 13. október 2022 FIMMTUDAGURJÓLAHLAÐBORÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.