Fréttablaðið - 13.10.2022, Síða 23

Fréttablaðið - 13.10.2022, Síða 23
Það tekur ekki nema 30-40 mínút- ur fyrir borgarbúa að keyra til okkar. Það þarf ekki að fara langt út á land til að gera vel við sig. Sæþór Dagur Ívarsson Í ár geta gestir valið á milli þriggja eða fimm rétta jólamatseðils eða þriggja rétta vegan jólamatseðils. Óli Már Erlingsson Jólin byrja þann 25. nóv- ember á Hótel Keflavík. Þá verður byrjað að bjóða upp á sérstakan jólamatseðil og vegan jólamatseðil. Lifandi tónlist skapar ljúfa jóla- stemningu meðan gestir njóta matarins en hótelið er nýuppgert og glæsilegt sem aldrei fyrr. Á hverju ári teflir Óli Már Erlings- son yfirkokkur fram nýjum og spennandi jólamatseðli og árið í ár er engin undantekning. Jólaseðill- inn verður í boði frá föstudags- kvöldinu 25. nóvember og verður í boði á föstudags- og laugardags- kvöldum fjórar helgar fram að jólum. Óli segir það krefjandi að búa til nýjan jólaseðil á hverju ári en hann hefur mjög gaman af því. „Það kemur annar póll í hæðina. Allt árið erum við með sérrétta- matseðil en þarna koma nokkrar helgar í röð þar sem við gerum eitt- hvað öðruvísi og ég fæ að nostra aðeins við matseðilinn. Það er aldrei það sama í boði á jólaseðl- inum tvö ár í röð. Við viljum með því halda honum svolítið lifandi og spennandi,“ segir hann. „Í ár geta gestir valið á milli þriggja eða fimm rétta jólamat- seðils eða þriggja rétta vegan jóla- matseðils. Það er eitthvað í boði fyrir alla. Í ár verðum við til dæmis með nýja útgáfu af graflaxi. Hann er reyktur, grafinn og hægeldaður, borinn fram með eplum, silunga- hrognum og súrmjólkursósu. Aðalrétturinn er hreindýrafillet og í eftirrétt er Daim créme brulée.“ Óli Már segir að vegan matseðill- inn sé ekki síður glæsilegur enda vill hann bara bjóða gestum sínum upp á það besta. „Ég verð með rauðrófu-carpac- cio með klettasalati, sykruðum heslihnetum og vegan rjómaosti, aðalrétturinn er oumph Well- ington með meðlæti og í eftirrétt verður bakað epli með skógar- berjacompot, haframulningi og vegan vanilluís.“ Sérvalin áfeng og óáfeng pörun Gestir geta fengið sérvalin vín með jólamatseðlinum. Sæþór Dagur Ívarsson veitingastjóri segir vín- þjóninn para vín við hvern einasta rétt. „En við erum líka mjög stolt af því að fólk getur komið til okkar og fengið óáfenga „vín“-pörun. Þetta er í fyrsta sinn sem við bjóðum upp á óáfenga vínpörun, en það er komin svolítil menning núna fyrir óáfengu víni,“ segir hann. „Auk jólaseðilsins á kvöldin verðum við líka með jólasveina- brunch á laugardögum og sunnu- dögum fyrir krakkana. Það er strax byrjað á bókast í hann. Við byrj- uðum með hann í fyrra og það var mjög vinsælt. Þá geta fjölskyldur komið saman og notið góðs matar og jólasveinarnir koma og heilsa upp á krakkana þegar þau eru að borða. Þess má geta að við erum með tveggja rétta jólamatseðil fyrir börnin á jólahelgunum okkar.“ Þær helgar sem jólamatseðillinn er í boði verður lifandi tónlist á staðnum til að koma gestum í jóla- skap. Þó að seðillinn sé sérstaklega í boði um helgar er hópum sem vilja seðilinn á öðrum dögum velkomið að hafa samband við hótelið. Sæþór segir að reynt verði eftir bestu getu að verða við óskum þeirra. „Það má senda okkur fyrir- spurnir á restaurant@kef.is eða Jólaupplifun rétt hjá útlöndum Jón Gunnar Erlingsson aðstoðarhótelstjóri, Sæþór Dagur Ívarsson veitingastjóri og Óli Már Erlingsson yfirkokkur á Hótel Keflavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hótelið hefur gengið í gengum miklar endurbætur. Gestir geta fengið sérvalin vín með jólamatseðlinum, áfeng og óáfeng. Á hótelinu eru 70 herbergi og fimm lúxussvítur. með því að hringja beint á hótelið. En almennar bókanir fara fram á kefrestaurant.is,“ segir hann. „Við erum nú þegar búin að fá mikið af bókunum fyrir hópa en við höfum boðið upp á tilboð á hótelgistingu fyrir matargesti. Þá er hægt að gera ferð úr þessu og skoða Reykjanesið í leiðinni fyrir hópa sem koma utan af landi eða frá höfuðborgarsvæðinu,“ segir Sæþór. „Hótelið er vel staðsett, sérstak- lega fyrir fólk af höfuðborgar- svæðinu. Það tekur ekki nema 30-40 mínútur fyrir borgarbúa að keyra til okkar. Það þarf ekki að fara langt út á land til að gera vel við sig.“ Upplifunarhótel Undanfarin þrjú ár hefur hótelið allt verið tekið í gegn að innan og utan. Jón Gunnar Erlingsson aðstoðarhótelstjóri segir að hót- elið sé upplifunarhótel. „Við erum með alls kyns við- burði í gangi. Eins og Sæþór talaði um þá erum við með tónlistar- fólk allar þær helgar sem jóla- matseðillinn er framreiddur. Við gerum mikið úr jólunum og erum nú þegar byrjuð að hita aðeins upp fyrir jólin. Við verðum með sérstaka vínviðburði fram að jólum en sá fyrsti byrjaði núna 12. október. Það verða sex slíkir viðburðir fram að jólum,“ segir Jón Gunnar. Sæþór tekur við: „Á þessum vínviðburðum kynnum við vín og fræðum gestina um vínin, þessir viðburðir verða annan hvern mið- vikudag. Þetta verður smá sögu- stund þar sem farið er í gegnum mismunandi lönd og þrúgur og við kynnum líka jólavínin. Við erum með mjög flott vínúrval og vorum að setja upp einn flottasta vín- skáp á landinu. Við erum komin með um það bil 200 týpur af víni í skápinn.“ Sæþór segir að þessi vínkvöld séu grunnurinn að klúbbi Hótel Keflavíkur sem heitir Williams- Stofa. „Það er klúbbur sem heldur ýmsa viðburði. Ekki bara vínkvöld heldur alls konar viðburði, lifandi tónlist og fleira skemmtilegt. Tilvalið fyrir einstaklinga og fyrir- tæki sem vilja nýta sér aðstöðuna á Hótel Keflavík, bæði fundarsali og fleira. Við erum spennt fyrir að kynna þennan klúbb fyrir gestum okkar.“ Fyrir hópa af öllum stærðum Jón Gunnar segist geta tekið við hópum af öllum stærðum í salar- kynnum hótelsins. „Við erum með allar græjur fyrir fundi og ýmiss konar sam- komur. Við getum tekið á móti 250 manns í öllum salarkynnum okkar samtals. Við getum tengt þá saman fyrir eina stóra samkomu í gegnum stóra skjái. Þá getur einn ræðumaður talað en hann er samt í öllum sölum. Við erum með eitt- hvað um 16 stóra skjái í sölunum okkar. En það er líka hægt að vera með minni samkomur hjá okkur. Þetta er tilvalið hótel fyrir bæði stóra og smáa hópa,“ segir Jón Gunnar. Á Hótel Keflavík eru 70 herbergi og fimm svítur, svokallaðar Dia- mond lúxussvítur. „Við erum í raun og veru fyrsta fimm stjörnu hótelið á Íslandi en það eru sex ár síðan við byrjuðum með Diamond svíturnar. Hótelið sjálft hefur starfað í 36 ár en þetta er fjölskyldurekið hótel. Það voru feðgarnir Steinþór Jónsson og Jón William Magnússon sem stofnuðu hótelið. Þeir fengu bara hugdettu og sex mánuðum síðar var komið 30 herbergja hótel. En eftir allar breytingarnar síðustu ár líður okkur eins og hótelið sé glænýtt en samt með margra ára reynslu,“ segir Jón Gunnar. Hann segir að Hótel Keflavík sé að hans mati best staðsetta hótelið á landinu. Það er í miðbæ Kefla- víkur, ekkert svo langt frá höfuð- borgarsvæðinu, en líka rétt hjá útlöndum. „Það tekur ekki nema fimm mínútur að fara á flugvöllinn svo við erum líka flugvallarhótel. Það er hægt að byrja fríið hjá okkur. Koma og gista hjá okkur nóttina fyrir flug og geyma bílinn hjá okkur. En svo er líka hægt að vera túristi á Reykjanesi. Hér til dæmis hægt að ganga á milli heimsálfa, yfir brúna sem er á flekaskilum Evrópu og Ameríku. Reykjanesið er falin perla. Af hverju ekki að byrja fríið hjá okkur?“ n Nánari upplýsingar á kefres- taurant.is kynningarblað 3FIMMTUDAGUR 13. október 2022 JÓLAHLAÐBORÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.