Fréttablaðið - 13.10.2022, Síða 30

Fréttablaðið - 13.10.2022, Síða 30
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB SKOÐIÐ LAXDAL.IS Hágæða ullarkápur frá Charlotte Casiraghi er svo- kallaður sendiherra eða talsmaður Chanel tísku- hússins fyrir haust og vetur 2022-2023. Charlotte er ekki mikið í fréttum hér á landi en hún er dóttir Karólínu prinsessu af Mónakó sem var á yngri árum daglega á síðum blaða og tímarita um allan heim. elin@frettabladid.is Karólína hefur haldið sér til hlés undanfarin ár en hún er elsta barn Hollywood-leikkonunnar og prinsessunnar Grace Kelly sem lést í bílslysi árið 1982. Eins og margir vita giftist hún Rainer fursta af Mónakó en þau eignuðust þrjú börn. Karólína er 65 ára og Albert, bróðir hennar og fursti af Mónakó, ári yngri. Yngst er Stefanía. Charlotte, barnabarn Grace Kelly, hefur starfað fyrir Chanel, bæði sem fyrirsæta og andlit her- ferðar í haust- og vetrartísku tísku- hússins. Hún fæddist árið 1986 og kynntist því aldrei ömmu sinni. Faðir hennar, Stefano Casiraghi viðskiptajöfur og siglingakappi, lést árið 1990 þegar hún var aðeins fjögurra ára. Charlotte þykir lík móður sinni, einstaklega glæsileg kona. List- rænn stjórnandi Chanel, Virginie Viard, segir að hún sýni töfra Cha- nel á mjög elegant og náttúrulegan hátt. „Charlotte hefur erft fágaðan stíl móður sinnar, Karólínu prins- Konunglegt andlit hjá Chanel Karólína prinsessa af Hannover til vinstri ásamt dætrum og tengdasonum; Dimitri Rassam, Charlotte Casir- aghi, Alexandra prinsessa af Hannover, hálf- systir Charlotte, og Ben-Sylves- ter Strautman. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Charlotte á einni af myndunum í herferð Chanel tísku- hússins. Glæsileg dragt fyrir veturinn. essu af Hannover, og ömmu sinnar, Grace Kelly. Hún hefur vakið mikla athygli á svokölluðum Rósaböllum í Mónakó þar sem hún hefur verið klædd í galakjóla frá Chanel,“ segir í breska Vogue. Karl Lagerfeld var góður vinur fjölskyld- unnar. Charlotte hefur verið dugleg að mæta á tískusýningar fyrir- tækisins. Árlega er haldið Rósaball í Mónakó þar sem konungborið fólk og Hollywood-stjörnur mæta. Hér eru Charlotte Casir- aghi og Dimitri Rassam í júlí í sumar. Char- lotte, barnabarn Grace Kelly, hefur starfað fyrir Chanel, bæði sem fyrirsæta og andlit herferðar í haust- og vetrartísku tískuhúss- ins. Charlotte Casiraghi er andlit Chanel tískuhúss- ins. Hún þykir einstaklega lík móður sinni, Karólínu prins- essu, sem fjölmiðlamenn eltu á röndum á árum áður. Charlotte er barnabarn Grace Kelly. Þess má geta að þegar Char- lotte giftist Dimitri Rassam kvikmyndagerðarmanni árið 2019 var hún klædd brúðarkjól frá Chanel. Þau eiga einn son saman en Charlotte á annan son frá fyrra sambandi. Þar sem hún giftist ekki barnsföður sínum er eldri sonurinn ekki talinn með í konunglegri línu Grímaldi-ættar- innar í Mónakó. Sjálf er Charlotte ellefta í röð til krúnunnar. Þrátt fyrir tengingu við Chanel hefur Charlotte einnig starfað fyrir Gucci og Yves Saint Laurent, aðallega sem fyrirsæta. Þá hefur hún einnig starfað sem blaða- maður og hefur skrifað bækur. Hún hefur verið nefnd sem best klædda konan í tískutímaritum og er oft mynduð á tískusýningum, listviðburðum og kappreiðum. Charlotte sagði eftir haust- og vetrartískusýningu Chanel að hönnunin höfðaði mikið til sín. „Þetta eru föt sem ég vil gjarnan klæðast á hverjum degi til að láta mér líða vel,“ sagði hún. n 6 kynningarblað A L LT 13. október 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.