Fréttablaðið - 27.10.2022, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 27.10.2022, Blaðsíða 4
Ef það er ekki aðgengi að áfengi þá er ekki víst að fólk í vanda geti reddað sér áfengi. Pierre Anderson, sérfræðingur um forvarnir og vímuefnavanda benediktboas@frettabladid.is HAFNARFJÖRÐUR Fr æð slu r áð Hafnarfjarðar vill að starfsfólk sem kemur að eineltismálum í grunn- skólum fái sérstaka þjálfun. Tólf ára stúlka í bænum reyndi að svipta sig lífi í kjölfar andstyggi- legra skilaboða og líkamsárásar. Fræðsluráðið mælti fyrir um að sérfræðingar bæjarins skoði verk- ferla varðandi eineltismál. Styrkja verði forvarnir enn frekar. n Þjálfi starfsfólk vegna eineltis benediktboas@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Starfsfólk atvinnu- vegaráðuneytis og matvælaráðu- neytis fór nær þrjú hundruð sinnum til útlanda á fimm árum. Fékk það 46 milljónir króna í dagpeninga. Ráðherrar fóru 25 sinnum utan og þáðu 2,5 milljónir í dagpeninga. Þetta segir í svari Svandísar Svav- arsdóttur matvælaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnars- syni, þingmanni Pírata. Þessi fimm ár voru greiddar tæpar tvær milljónir í hótelgistingu ráðherra og 3,5 millj- ónir í flugfargjöld. n Nær þrjú hundruð utanlandsferðir ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 JEEP® COMPASS TRAILHAWK 4XE ALVÖRU JEPPI – ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF JEEP.IS PLUG-IN HYBRID ÓMISSANDI HLUTI AF FJÖLSKYLDUNNI EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX! Rannsóknir sýna að ofbeldi gegn konum eykst með opnun sölustaða áfengis um helgar. Sérfræðingur varar við afleiðingum af frumvarpi Framsóknarmanna en fyrsti flutningsmaður kvíðir engu. bth@frettabladid.is NEYTENDUR Alþjóðasérfræðingur um áfengis- og fíkniefnavanda segir að Íslendingar myndu gera alvarleg mistök með því að heimila ÁTVR að selja áfengi á sunnudögum. Þá varar hann við portúgölsku leiðinni um lögleiðingu neysluskammta fíkni- efna ef ekki verði samhliða staðið að mjög öflugum mótvægisaðgerðum. Nokkrir þingmenn Framsóknar- flokksins með Hafdísi Hrönn Haf- steinsdóttur í fararbroddi hafa lagt fram frumvarp sem myndi fella úr gildi bann um sölu áfengis hjá ÁTVR á helgidögum. Ef frumvarpið verður samþykkt er ÁTVR í lófa lagið að selja áfengi alla 365 daga ársins en lög leyfa ekki sunnudagsopnun í dag. Pierre Anderson, Svíi sem hefur unnið um árabil við fjölþjóðlegt rannsóknarstarf, f lutti erindi á ráðstefnu í Reykjavík í fyrradag. Spurður um frumvarpið sem liggur fyrir Alþingi segir Anderson að það gæti haft mikil og neikvæð áhrif ef áfengissala ÁTVR yrði leyfð á sunnudögum hér á landi. „Við höfum sænskar rannsóknir sem sýna muninn fyrir og eftir breytingu þegar laugardegi var bætt við sem áfengissöludegi,“ segir Anderson. „Rannsóknirnar sýna að ofbeldi jókst strax og mest gagnvart konum. Heimilin gjalda, því það eru einkum þeir sem eiga í vanda sem eru útsettastir fyrir svona breyt- ingu.“ Sunnudagsopnun gæti aukið ofbeldi Pierre Ander­ son, sænskur sérfræðingur um forvarnir og vímuefnavanda, segir að það gæti haft mikil og neikvæð félagsleg áhrif ef áfengissala í ÁTVR verður leyfð á sunnu­ dögum hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, þingmaður Framsóknar­ flokksins Anderson segir ekki rétt sem oft sé haldið fram að fólk reddi sér alltaf áfengi, hvað sem líði opnun sölu- staða. „Ef það er ekki aðgengi að áfengi þá er ekki víst að fólk í vanda geti reddað sér áfengi og það getur komið fjölskyldum þeirra sem eiga í vanda mjög til góða,“ segir hann. Fréttablaðið bar afstöðu Ander- son undir Hafdísi Hrönn Hafsteins- dóttur, þingkonu Framsóknar- f lokksins. Hún segir að það sé undir ÁTVR komið hvort opið væri á sunnudögum, engin skylda sé fólgin til þess í frumvarpinu. „En forvarnaráhrifin af því að selja áfengi í sérverslunum eru veru- leg samanborið við óheft aðgengi í matvöruverslunum,“ segir Hafdís Hrönn. Hún bætir við að aukið aðgengi að áfengi geti haft neikvæð áhrif en mikilvægt sé að greina milli áhrifa frumvarpsins á lýðheilsu og þarfar á mótvægisaðgerðum. Annað mál hefur verið hitamál hér á landi, frumvarp um lögleið- ingu neysluskammta fíkniefna. Anderson segir að þótt dauðsföllum vegna vímuvanda hafi fækkað í Portúgal fyrstu árin eftir lögleið- ingu hafi þróunin snúist við. Nú sé svo komið að fleiri deyi vegna fíkni- efna í Portúgal en fyrir lögleiðingu. Anderson varar því við að Íslend- ingar fari í afglæpavæðingu án þess að huga mjög vel að öðrum þáttum samhliða. Lækkun fjár til forvarnar- starfs síðustu ár sé ekki til marks um skilning í þeim efnum. Heilbrigðisrxáðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurn Fréttablaðsins um skýringar á því að framlög til for- varnarmála hafi lækkað síðustu ár. n kristinnpall@frettabladid.is KÓPAVOGUR „Þetta snýst um útsýn- isflug með þyrlum frá Reykjavíkur- f lugvelli sem fara yfir Kársnesið,“ segir Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, spurður um fyrirspurn hans sem taka á fyrir á bæjarráðs- fundi í dag og varðar lofthelgina yfir Kópavogi. Í fundarboðinu kemur fram að Andri vilji kanna heimildir sveitar- félagsins til að stýra lofthelginni yfir Kópavogi. „Íbúar á Kársnesinu eru orðnir þreyttir á stöðugu flugi og hávaða. Fyrst og fremst eru þetta þyrluflug- in þó að einkaflugvélarnar séu líka hávaðasamar. Þetta náði hápunkti í tengslum við eldgosin í Geldinga- dölum þegar fólk varð vart við þyrlu á nokkurra mínútna fresti að fljúga þarna yfir,“ segir Andri. Hann segir að sýndur sé skilning- ur á þyrluflugi Landhelgisgæslunn- ar en að það megi finna þyrlufyrir- tækjum sem gera út á útsýnisflug nýja staðsetningu sem trufli ekki jafn mikið íbúabyggð. „Þetta er fyrsta skrefið. Kópavogs- bær hefur ekki enn beitt sér fyrir því að breytt verði um flugleið eða farið fram á að þyrlufluginu verði fundin ný staðsetning.“ Andri segist hafa hey rt af óánægju meðal íbúa á Kársnesi í þessum efnum. „Við höfum bæði fengið óform- legar ábendingar í kosningabaráttu og formlegt erindi þar sem kallað er eftir aðgerðum af hálfu bæjaryfir- valda.“ n Bæjarfulltrúi vill losna við þyrluflug úr lofthelgi Kópavogs Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis­ flokksins í Kópa­ vogi. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Svandís Svavars­ dóttir, matvæla­ ráðherra Íbúar á Kársnesinu eru orðnir þreyttir á stöð- ugu flugi og hávaða. 4 Fréttir 27. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.