Fréttablaðið - 27.10.2022, Page 13
Hér eru það tveir
borgaralegir flokkar
með tögl og hagldir í
ríkisstjórn, sem vilja
ekki einu sinni skoða
hvort Norðurlönd geti
orðið sterkari saman í
sálufélagi Evrópu.
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
„Því að metnaður hvers manns og
hverrar þjóðar, sem nokkuð er í
spunnið, er að eiga eitthvað, sem
er svo gott, að bestu menn, hverrar
þjóðar sem er, vilji njóta þess líka.
Æðsta markmið er sálufélag við
þá, sem bestir eru. En til sálufélags
eru þeir líklegastir, sem skyldastir
eru. Drekkum skál frænda vorra á
Norðurlöndum!“
Þetta er tilvitnun í ræðu Guð-
mundar Finnbogasonar prófessors
frá 1931.
Norðurlönd
Í dag tölum við meir um sameigin-
leg gildi þjóða en sálufélag þeirra.
En það breytir ekki hinu að norræn
samvinna er lifandi og mikilvægur
veruleiki. Undirstaðan er sameigin-
legur menningararfur, frelsi og
lýðræði.
Þrátt fyrir dýptina hefur sálu-
félag Norðurlanda hins vegar ekki
nema að mjög takmörkuðu leyti
náð til efnahagssamvinnu og varn-
armála. Smæðarinnar vegna hafa
öll löndin kosið að gæta hagsmuna
sinna á þessum lykilsviðum í stærri
og öflugri fjölþjóðasamtökum.
Þrjú Norðurlönd hafa átt fulla
aðild að NATO, en Svíþjóð og
Finnland hafa til þessa tryggt
hagsmuni sína með sérstökum
samstarfssamningi. Eins hafa þrjú
Norðurlönd átt fulla aðild að ESB
en Ísland og Noregur átt aðild að
innri markaði þess með sérstökum
samningi.
Aðstæður breytast
Nú hafa straumhvörf í alþjóða-
málum leitt til þess að bæði Svíþjóð
og Noregur hafa sótt um fulla aðild
að NATO.
Flestir eru á einu máli um að það
muni styrkja norræna samvinnu
bæði á þessu sviði og í stærra sam-
hengi.
Kjell Magne Bondevik fyrrum
forsætisráðherra Noregs er í hópi
reyndustu forystumanna borgara-
flokkanna í Noregi. Í þjóðarat-
kvæðagreiðslunum 1972 og 1994
greiddi hann atkvæði gegn aðild
að ESB.
Í grein sem hann skrifar á vefritið
Altinget fyrr í þessum mánuði segir
hann: „Evrópa breytist. Norður-
lönd breytast. Noregur tengist
ESB með EES-samningnum, sem
reynst hefur vel. En þegar aðstæður
breytast í umhverfi okkar eigum
við að ræða hvort samband okkar
við ESB þurfi líka að breytast.“
Endurmat
Forsætisráðherrann fyrrverandi er
ekki þeirrar skoðunar að efnahags-
legar aðstæður kalli á endurmat að
því er Noreg varðar. Hann dregur
hins vegar fram mikilvæg pólitísk
rök.
1 Bondevik bendir á að aðild Finna
og Svía að NATO muni styrkja
norrænt samstarf og gefa því
aukið vægi innan bandalagsins.
Þetta sé mikilvægt fyrir þá sem
hlynntir eru norrænni samvinnu.
Síðan spyr hann hvort norræna
velferðarkerfið muni ekki að
sama skapi fá meira vægi í ESB ef
öll Norðurlönd eigi þar aðild.
2 Hann segir að aðild geti haft
mikilvæga öryggispólitíska vídd.
Í því sambandi nefnir hann aukið
samráð um stórpólitísk mál eins
og efnahagsþvinganir þar sem
betra gæti verið að eiga sæti við
borðið.
3 Hann nefnir nýjar aðstæður í
heimspólitíkinni, klofninginn
í Bandaríkjunum og aukin
áhrif Kína í öllum heimsálfum,
og spyr: Hver verður afstaða
stórveldanna til Evrópu í fram-
tíðinni?
4 Hann bendir á ný viðfangsefni
eins og umhverfis- og loftslags-
mál og spyr hvort ekki sé betra
að taka virkan þátt í mótun
stefnunnar.
5 Hann segir að endurmeta þurfi
mótrökin frá í þjóðaratkvæða-
greiðslunum út frá reynslu og
nýjum aðstæðum.
Hindranir
Flest þessara sjónarmiða hafa
komið fram áður bæði í Noregi
og hér heima. Margir munu til að
mynda sjá hliðstæðu við þau rök,
sem tillögur Viðreisnar á Alþingi
um ný skref á þessum sviðum
byggja á.
Það merkilega er að gamall
áhrifamaður í norskum stjórnmál-
um, sem fram til þessa hefur talið
EES samninginn duga, talar nú
fyrir endurmati og nýjum skrefum.
Að réttu lagi ættu íslensk stjórn-
völd að fá fræðasamfélagið til að
vinna málefnalegan umræðu-
grundvöll fyrir slíkt endurmat.
Síðan mætti ákveða framhaldið
með opnum augum.
Bondevik telur að vinstri
stjórnin í Noregi sé nú ófær um
að setja þessa umræðu á dagskrá.
Hér eru það tveir borgaralegir
flokkar með tögl og hagldir í ríkis-
stjórn, sem vilja ekki einu sinni
skoða hvort Norðurlönd geti orðið
sterkari saman í sálufélagi Evrópu.
Skoðanakannanir sýna að
þjóðin vill umræðu, en lokuð
augu ráða för. n
Lokuð augu ráða för
JAGUAR - LAND ROVER
Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík
525 6500 / jaguarlandrover.is
Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum
gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla.
Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag.
JAGUAR I-PACE EV320 SE
Nýskr. 7/2021, ekinn 6 þús. km, rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 10.490.000 kr.
Rnr. 149047.
RANGE ROVER VOGUE P400e
Nýskr. 8/2019, ekinn 40 þús. km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 15.990.000 kr.
Rnr. 334196.
JAGUAR I-PACE EV400 HSE
Nýskr. 7/2019, ekinn 32 þús. km, rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 9.590.000 kr.
Rnr. 421047.
LAND ROVER Discovery Sport 150d
Nýskr. 5/2020, ekinn 23 þús. km, dísil, sjálfskiptur.
Verð: 8.390.000 kr.
Rnr. 149446.
RANGE ROVER Sport HSE Dynamic P400e
Nýskr. 4/2019, ekinn 114 þús. km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur.
Verð: 10.890.000 kr.
Rnr. 149457.
RANGE ROVER Evoque SE 180D
Nýskr. 7/2018, ekinn 25 þús. km, dísil, sjálfskiptur.
Verð: 6.790.000 kr.
Rnr. 149469.
NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR
SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
1
3
2
3
3
J
a
g
u
a
r
n
o
t
a
ð
ir
6
b
íl
a
r
2
7
o
k
t
FIMMTUDAGUR 27. október 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ