Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.10.2022, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 27.10.2022, Qupperneq 13
Hér eru það tveir borgaralegir flokkar með tögl og hagldir í ríkisstjórn, sem vilja ekki einu sinni skoða hvort Norðurlönd geti orðið sterkari saman í sálufélagi Evrópu. Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli „Því að metnaður hvers manns og hverrar þjóðar, sem nokkuð er í spunnið, er að eiga eitthvað, sem er svo gott, að bestu menn, hverrar þjóðar sem er, vilji njóta þess líka. Æðsta markmið er sálufélag við þá, sem bestir eru. En til sálufélags eru þeir líklegastir, sem skyldastir eru. Drekkum skál frænda vorra á Norðurlöndum!“ Þetta er tilvitnun í ræðu Guð- mundar Finnbogasonar prófessors frá 1931. Norðurlönd Í dag tölum við meir um sameigin- leg gildi þjóða en sálufélag þeirra. En það breytir ekki hinu að norræn samvinna er lifandi og mikilvægur veruleiki. Undirstaðan er sameigin- legur menningararfur, frelsi og lýðræði. Þrátt fyrir dýptina hefur sálu- félag Norðurlanda hins vegar ekki nema að mjög takmörkuðu leyti náð til efnahagssamvinnu og varn- armála. Smæðarinnar vegna hafa öll löndin kosið að gæta hagsmuna sinna á þessum lykilsviðum í stærri og öflugri fjölþjóðasamtökum. Þrjú Norðurlönd hafa átt fulla aðild að NATO, en Svíþjóð og Finnland hafa til þessa tryggt hagsmuni sína með sérstökum samstarfssamningi. Eins hafa þrjú Norðurlönd átt fulla aðild að ESB en Ísland og Noregur átt aðild að innri markaði þess með sérstökum samningi. Aðstæður breytast Nú hafa straumhvörf í alþjóða- málum leitt til þess að bæði Svíþjóð og Noregur hafa sótt um fulla aðild að NATO. Flestir eru á einu máli um að það muni styrkja norræna samvinnu bæði á þessu sviði og í stærra sam- hengi. Kjell Magne Bondevik fyrrum forsætisráðherra Noregs er í hópi reyndustu forystumanna borgara- flokkanna í Noregi. Í þjóðarat- kvæðagreiðslunum 1972 og 1994 greiddi hann atkvæði gegn aðild að ESB. Í grein sem hann skrifar á vefritið Altinget fyrr í þessum mánuði segir hann: „Evrópa breytist. Norður- lönd breytast. Noregur tengist ESB með EES-samningnum, sem reynst hefur vel. En þegar aðstæður breytast í umhverfi okkar eigum við að ræða hvort samband okkar við ESB þurfi líka að breytast.“ Endurmat Forsætisráðherrann fyrrverandi er ekki þeirrar skoðunar að efnahags- legar aðstæður kalli á endurmat að því er Noreg varðar. Hann dregur hins vegar fram mikilvæg pólitísk rök. 1 Bondevik bendir á að aðild Finna og Svía að NATO muni styrkja norrænt samstarf og gefa því aukið vægi innan bandalagsins. Þetta sé mikilvægt fyrir þá sem hlynntir eru norrænni samvinnu. Síðan spyr hann hvort norræna velferðarkerfið muni ekki að sama skapi fá meira vægi í ESB ef öll Norðurlönd eigi þar aðild. 2 Hann segir að aðild geti haft mikilvæga öryggispólitíska vídd. Í því sambandi nefnir hann aukið samráð um stórpólitísk mál eins og efnahagsþvinganir þar sem betra gæti verið að eiga sæti við borðið. 3 Hann nefnir nýjar aðstæður í heimspólitíkinni, klofninginn í Bandaríkjunum og aukin áhrif Kína í öllum heimsálfum, og spyr: Hver verður afstaða stórveldanna til Evrópu í fram- tíðinni? 4 Hann bendir á ný viðfangsefni eins og umhverfis- og loftslags- mál og spyr hvort ekki sé betra að taka virkan þátt í mótun stefnunnar. 5 Hann segir að endurmeta þurfi mótrökin frá í þjóðaratkvæða- greiðslunum út frá reynslu og nýjum aðstæðum. Hindranir Flest þessara sjónarmiða hafa komið fram áður bæði í Noregi og hér heima. Margir munu til að mynda sjá hliðstæðu við þau rök, sem tillögur Viðreisnar á Alþingi um ný skref á þessum sviðum byggja á. Það merkilega er að gamall áhrifamaður í norskum stjórnmál- um, sem fram til þessa hefur talið EES samninginn duga, talar nú fyrir endurmati og nýjum skrefum. Að réttu lagi ættu íslensk stjórn- völd að fá fræðasamfélagið til að vinna málefnalegan umræðu- grundvöll fyrir slíkt endurmat. Síðan mætti ákveða framhaldið með opnum augum. Bondevik telur að vinstri stjórnin í Noregi sé nú ófær um að setja þessa umræðu á dagskrá. Hér eru það tveir borgaralegir flokkar með tögl og hagldir í ríkis- stjórn, sem vilja ekki einu sinni skoða hvort Norðurlönd geti orðið sterkari saman í sálufélagi Evrópu. Skoðanakannanir sýna að þjóðin vill umræðu, en lokuð augu ráða för. n Lokuð augu ráða för JAGUAR - LAND ROVER Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík 525 6500 / jaguarlandrover.is Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla. Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag. JAGUAR I-PACE EV320 SE Nýskr. 7/2021, ekinn 6 þús. km, rafmagn, sjálfskiptur. Verð: 10.490.000 kr. Rnr. 149047. RANGE ROVER VOGUE P400e Nýskr. 8/2019, ekinn 40 þús. km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur. Verð: 15.990.000 kr. Rnr. 334196. JAGUAR I-PACE EV400 HSE Nýskr. 7/2019, ekinn 32 þús. km, rafmagn, sjálfskiptur. Verð: 9.590.000 kr. Rnr. 421047. LAND ROVER Discovery Sport 150d Nýskr. 5/2020, ekinn 23 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð: 8.390.000 kr. Rnr. 149446. RANGE ROVER Sport HSE Dynamic P400e Nýskr. 4/2019, ekinn 114 þús. km, bensín/rafmagn, sjálfskiptur. Verð: 10.890.000 kr. Rnr. 149457. RANGE ROVER Evoque SE 180D Nýskr. 7/2018, ekinn 25 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð: 6.790.000 kr. Rnr. 149469. NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6 E N N E M M / S ÍA / N M 0 1 3 2 3 3 J a g u a r n o t a ð ir 6 b íl a r 2 7 o k t FIMMTUDAGUR 27. október 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.