Fréttablaðið - 27.10.2022, Síða 30
Þegar ég kom heim
grét ég óstjórnlega
alveg heillengi af sorg
yfir því að geta ekki
leikið í nákvæmlega
þessari mynd.
Það er bara hressandi
að hugsa svolítið
rækilega um dauðann,
ég upplifi lífið sem
dýrmætara fyrir vikið.
Síðustu dagar Sæunnar er
nýjasta verk leikskáldsins
Matthíasar Tryggva Haralds-
sonar þar sem hann fjallar
um dauðann á bráðfyndinn
en sorglegan máta.
tsh@frettabladid.is
Leikskáldið og tónlistarmaðurinn
Matthías Tryggvi Haraldsson skrif-
aði leikritið Síðustu dagar Sæunnar
sem frumsýnt verður í Borgarleik-
húsinu á föstudag. Verkið fjallar
um dauðann á grátbroslegan hátt
og segir frá hinni dauðvona Sæunni
sem leikin er af Guðrúnu Gísla-
dóttur.
„Þetta er lítið fræ sem var sáð á
námskeiði í Listaháskólanum og
gat af sér fyrra verk mitt sem hét
Griðastaður. Það gerðist í IKEA og
Jörundur Ragnarsson var svo góður
að flytja það fyrir mig. Það fór ein-
hvern veginn á f lug og í því ferli
rambaði ég bara á þetta viðfangs-
efni. Samband okkar við dauðann
og dauðleika, samband sonar og
móður og forgengileika margra
hluta,“ segir Matthías.
Matthías gegndi stöðu leikskálds
Borgarleikhússins 2020–2021 ásamt
Evu Rún Snorradóttur og segist
hann þá hafa fengið góðan tíma til
að velta fyrir sér viðfangsefninu.
Sem partur af rannsóknarvinnunni
tók Matthías viðtöl við fólk á ólík-
um aldri um samband þeirra við
dauðann en úr því varð til útvarps-
þáttaröðin Allir deyja sem var flutt
á Rás 1 í fyrra.
„Ég ákvað að nálgast dauðann
sem svona vörðu eða stórviðburð
á lífsleiðinni. Maður fæðist og er
skírður eða gefið nafn, svo er ein-
hvers konar manndómsvígsla eða
ferming, svo oft gifting og loks
dauði og útför. Það var eiginlega
bara svona hliðarafurð af þessu öllu
saman, þessir þættir á Rás 1. Mér
finnst mjög skemmtileg tilhugsun
að fólk geti hlustað á þættina, horft
á leikritið og séð svona ólíka anga á
þessari sömu vegferð,“ segir hann.
Hressandi að hugsa um dauðann
Dauðinn er nokkuð þungt viðfangs-
efni og eitthvað sem fæstir vilja
hugsa mikið um í sínu lífi. Fannst
þér erfitt að fjalla um þetta við-
fangsefni?
„Ég skil hvað þú meinar og ákvað
þess vegna að hafa verkið bráð-
fyndið og stórskemmtilegt. Þetta
er í raun miklu fyndnara en margar
grínsýningar sem færu á Stóra svið-
ið. En maður fær það bara svona í
kaupbæti að það er mjög sorglegt
líka,“ segir Matthías kíminn.
Að sögn Matthíasar er það öllum
hollt að hugsa um dauðann og segist
hann hafa séð lífið í öðru ljósi fyrir
vikið.
„Það er bara hressandi að hugsa
svolítið rækilega um dauðann, ég
upplifi lífið sem dýrmætara fyrir
vikið. Maður sér litina skærari í
kringum sig og er þakklátari fyrir
tengslin sín. Það er ekkert erfitt að
fjalla um dauðann af því ef maður
hugsar nógu vel um dauðann þá er
maður alltaf á endanum farinn að
hugsa um lífið,“ segir hann.
Stjórnsamur en bældur pönkari
Eins og áður sagði fjallar Síðustu
dagar Sæunnar um Sæunni sem
Guðrún Gísladóttir leikur en
Jóhann Sigurðarson leikur eigin-
mann hennar Trausta og Snorri
Engilbertsson bregður sér í nokkur
hlutverk.
Hvernig karakter er Sæunn?
„Una Þorleifsdóttir leikstjóri
bendir á að hún er stjórnsöm, sem
ég hugsa að sé hárrétt. Hún er svona
bældur pönkari að því leyti að hún
er búin að vera að vesenast í því að
þóknast einhverju ytra áliti alltof
lengi og núna er að brjótast út eitt-
hvert sjálfstæði og ímyndunarafl
sem fékk kannski ekki að njóta sín
þegar best var á kosið.“
Spurður um hvað hafi komið fyrir
Sæunni segir Matthías:
„Hún bara nefnir ónefndan sjúk-
dóm og mér fannst ekkert atriði að
láta þetta fjalla um ákveðinn sjúk-
dóm. En við finnum að það leggst
þungt á hana eins og einhver dómur
frá læknisyfirvaldinu og svo deyr
hún. Nei, maður má ekki segja það,“
segir Matthías og hlær.
Íslendingar dauðabælt þjóðfélag
Matthías segir Íslendinga vera
dauðabælt þjóðfélag.
„Samfélög eru flokkuð í þau sem
samþykkja dauðann og þau sem
forðast hann. Við erum þeim megin
sem forðast dauðann og það hefur
ákveðna firringu í för með sér og
fjarlæga afstöðu gagnvart eigin
líkama og kannski bara ýmsum
þáttum lífsins. Við náum ekki að sjá
heildarboga lífsins ef einn liðurinn
eða kaflinn er bara sveipaður hulu.“
Trúir þú á líf eftir dauðann?
„Á kvöldin já, en ekki á morgn-
ana. Ég sveif last bara og veit það
ekki. Mér finnst frelsandi afstaða
að segja að ég viti ekkert hvað ger-
ist eftir dauðann og finnst það alveg
jafn skýr afstaða og hvað annað.
Mínar hugmyndir um það væru
hvort eð er mjög ófullkomnar.“ n
sjá nánar á frettabladid.is
Trúir á líf eftir dauðann á kvöldin
Matthías
Tryggvi Haralds-
son segist hafa
upplifað lífið
sem dýrmætara
eftir að hann fór
að velta dauð-
anum fyrir sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Guðrún Gísladóttir og Jóhann Sigurðarson fara með hlutverk hjónanna
Sæunnar og Trausta í verkinu Síðustu dagar Sæunnar. MYND/GRÍMUR BJARNASON
Aldís Amah
Hamilton
leikkona segir
lesendum Frétta-
blaðsins frá list-
inni sem breytti
lífi hennar. Aldís
segir að kvik-
myndin Avatar
eftir James
Cameron hafi haft mikil áhrif á sig
þegar hún sá hana í bíói 2009.
„Ég var 18 ára þegar Avatar kom
út og fór á hana í bíó. Ég ætla að
taka það fram að mér er alveg
sama (ekki alveg sama, en svona)
hvað fólk segir um söguþráðinn
eða gæði handritsins, þessi mynd
gjörsamlega heltók mig. Þegar
ég kom heim grét ég óstjórnlega
alveg heillengi af sorg yfir því að
geta ekki leikið í nákvæmlega
þessari mynd, þó svo að ég hefði
ekki hugmynd um hana fyrr en ég
sá hana, og yfir því að geta ekki
verið raunveruleg geimvera sem
flýgur um á risaeðlufuglum og
stekkur á milli kletta.
Þessi sorg fylgir mér enn þann
dag í dag og er eflaust ástæðan
fyrir því að ég tek þætti eins
og Game of Thrones og ýmsa
tölvuleiki alltaf of nærri mér.
Ævintýraþráin hefur dofnað með
aldrinum en hún er alltaf þarna.
Ætli hún eigi ekki sinn hlut í því að
ég varð leikkona? Ég get allavega
látist vera geimvera svona þegar
að tækifærin bjóðast, og það á
launum.“ n
n Listin sem
breytti lífi mínu
Sígildar sögur Guðrúnar Helgadóttur um Jón Odd og Jón Bjarna
hafa skemmt börnum á öllum aldri í nærri fimmtíu ár.
Anna Cynthia Leplar myndlýsti.
ALLAR SÖGURNAR
Í EINNI BÓK
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Virka daga 10–18 | Lau 11–17 | Sun 12–16 | www.forlagid.is
22 Menning 27. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 27. október 2022 FIMMTUDAGUR