Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.10.2022, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 27.10.2022, Qupperneq 32
Það hefur aldrei komið til greina að selja pen- inginn enda samræmist það ekki tilgang- inum með gjöfinni. Stefán Jóhann Stefánsson Nóbelsverðlaun Halldórs Laxness eru kyrfilega geymd í Myntsafni Seðlabanka Íslands og Þjóðminjasafns. Fréttablaðið fékk að líta inn í Seðlabankann og rifjar upp söguna af því hvernig þau enduðu þar. tsh@frettabladid.is Halldór Laxness er eini Íslendingur­ inn sem hefur hlotið Nóbelsverð­ laun í 121 árs sögu verðlaunanna en hann fékk Nóbelsverðlaun í bók­ menntum árið 1955, eins og frægt er. Hinn 27. október sama ár komst dómnefnd Sænsku akademíunnar að þeirri niðurstöðu að Halldór Laxness hlyti bókmenntaverðlaun Nóbels fyrir litríkan sagnaskáld­ skap, sem endurnýjað hefði stór­ brotna íslenska frásagnarlist. Fjallað var um málið í heims­ pressunni og á forsíðu Þjóðviljans 28. október var haft eftir skáldinu: „Það kemur mér algerlega á óvart að ég skyldi fá nóbelsverðlaunin. Ég hafði satt að segja ekki búizt við því, þó að mikið hafi verið um það talað. Þetta gleður mig mikið, ekki aðeins sjálfs mín vegna heldur einnig af öðrum ástæðum, ekki sízt Íslands vegna.“ Afhent seðlabankastjóra Tæpum þrjátíu árum síðar, í febrúar 1985, gaf Halldór Myntsafni Seðla­ banka og Þjóðminjasafns heiðurs­ peninginn og önnur gögn sem fylgt höfðu verðlaununum sem varð­ veitt hafa verið í bankanum alla tíð síðan. Í frétt NT frá 19. febrúar 1985 kemur fram: „Halldór Laxness hefur fært Myntsafni Seðlabanka og Þjóð­ minjasafns að gjöf alla þá heiðurs­ peninga og skyld gögn sem honum hafa hlotnast fyrir rithöfundarstörf sín, þar á meðal Nóbelsverðlauna­ peninginn og heiðursskjal það sem honum fylgir. Efnt var til stuttrar athafnar í húsakynnum safnsins að Einholti 4 á sunnudag þar sem Halldór Laxness las gjafabréf sitt og lýsti ánægju sinni yfir að þessum gögnum hefði nú verið komið í vörslu til frambúðar.“ Í skopmynd eftir Sigmund sem birtist í Morgunblaðinu nokkrum vikum síðar er Nóbelsskáldið sýnt af henda Jóhannesi Nordal, þáverandi seðlabankastjóra, og Þór Magnússyni þjóðminjaverði stóran peningapoka. Undir mynd­ inni stendur: „Ég vissi að það þyrfti ekki að tuða neitt til að koma svona skjóðu inn fyrir GuIIna hliðið hjá þér góði!!!“ Geymd í sérstakri geymslu Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri hjá Seðlabankanum, segir mynt­ safnið hafa verið sett á laggirnar skömmu fyrir 1985 en einn liður í starfsemi safnsins er að halda utan um heiðurspeninga Íslendinga. Fylgdu gjöfinni einhver sérstök ákvæði? „Ekki önnur en þau að Myntsafni Þjóðminjasafns og Seðlabanka var heimilt, ef ástæða þætti til, að fela öðrum opinberum söfnum varð­ veislu hluta gjafarinnar eða í heild.“ Að sögn Stefáns hefur verð­ launapeningurinn verið til sýnis í sýningarsal bankans við Kalk­ ofnsveg 1 undanfarin ár en vegna framkvæmda í húsinu er hann nú í sérstakri geymslu Seðlabankans. Eru verðlaunin geymd með ein- hverjum sérstökum aðbúnaði eða öryggisgæslu? „Já, verðlaunin eru geymd í sér­ stakri og öruggri geymslu. Við erum hins vegar yfirleitt ekki að upplýsa nákvæmlega eða frekar í hverju öryggi felst í geymslum okkar.“ Seldi peninginn á 13 milljarða Stefán segir ekki hafa farið fram sérstakt mat á verðmæti penings­ ins. Nóbelsverðlaunapeningar eru gerðir úr gulli og nútíma peningar eru um 175 grömm að þyngd sem miðað við markaðsverð gulls í dag samsvarar um 9.400 Bandaríkja­ dölum eða rúmlega 1,3 milljónum íslenskra króna. Dæmi eru um að Nóbelsverð­ launahafar hafi selt verðlaunapen­ inga sína. Í júní síðastliðnum seldi til að mynda rússneski fjölmiðla­ maðurinn Dmítríj Múratov, rit­ stjóri dagblaðsins Novaya Gazeta, friðarverðlaun Nóbels sem hann Aldrei komið til greina að selja Nóbelsverðlaunin n Í baksýnisspeglinum Sigurður G. Valgeirsson, upplýsingafulltrúi hjá Seðlabank- anum, sýndi blaðamanni og ljósmyndara Fréttablaðsins Nóbelsverðlaunapening Laxness. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ekki hefur farið fram sérstakt verðmat á Nóbelsverðlaunapeningi Halldórs Laxness sem geymdur er í Seðlabank- anum en sambærilegir verðlaunapeningar hafa verið boðnir upp fyrir háar fjárhæðir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN hlaut ásamt filippseyska blaða­ manninum Mariu Ressa árið 2021 á uppboði. Peningurinn seldist fyrir 103,5 milljónir Bandaríkjadala, sem nemur rúmum 13 milljörðum íslenskra króna, en ágóðinn rann í hjálparstarf UNICEF fyrir börn á flótta vegna stríðsins í Úkraínu. Spurður hvort það hafi einhvern tíma komið til greina að selja verð­ launapening Halldórs Laxness, segir Stefán Jóhann: „Það hefur aldrei komið til greina að selja peninginn enda samræmist það ekki tilganginum með gjöfinni.“ Einn af risum bókmenntanna Sigurður G. Valgeirsson, upplýsinga­ fulltrúi hjá Seðlabankanum, sýndi blaðamanni og ljósmyndara Frétta­ blaðsins verðlaunapening Halldórs Laxness en Sigurður sat áður í stjórn Gljúfrasteins og kveðst vera mikill aðdáandi Nóbelsskáldsins. „Hann var einn af risunum í okkar bókmenntum,“ segir hann. Það hlýtur að vera svolítið gaman að fá að handleika verðlaunapen- inginn? „Maður hefur náttúrlega lesið verk Laxness og um ævi hans þegar hann fékk Nóbelsverðlaunin, sem er í sjálfu sér alveg magnað. Þannig að það er smá ævintýri að handleika þetta.“ Nóbelsverðlaun Halldórs Lax­ ness eru sem áður sagði í geymslu Seðlabankans en Sigurður býst þó við því að verðlaunapeningurinn verði aftur hafður til sýnis þegar framkvæmdum í Seðlabankanum lýkur. n Skopmynd eftir Sigmund sem sýnir Laxness afhenda seðlabankastjóra og þjóðminjaverði verðlaunin birtist í Mogganum 1. mars 1985. MYND/TÍMARIT.IS Frétt um afhendingu Nóbelsverð- launanna í NT 19. febrúar 1985. MYND/TÍMARIT.IS W 24 Menning 27. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.