Fréttablaðið - 27.10.2022, Page 34
Það er nánast lygilegt
að engum hafi dottið í
hug að búa til kvik-
mynd um þessar
mögnuðu stríðskonur
þar til nú.
Tobba Marinós hyggst segja
skilið við rekstur Granóla
barsins á Granda á eins árs
afmæli staðarins. Viðskiptin
blómstra sem aldrei fyrr en
Tobba segir barinn einfald
lega sprunginn.
Tobba Marinósdóttir stendur á
þeim tímamótum á eins árs afmæli
Granólabarsins að barinn annar
ekki lengur eftirspurn, svo vinsæll
er hann.
Tobba hefur hins vegar engan
áhuga á því að reka keðju og hyggst
því selja þó að hún eigi eftir að
útfæra nákvæmlega hvernig. „Það
þykir líklega undarlegt að selja fyrir
tæki sem er farið að skila hagnaði og
gengur upp líkt og Granólabarinn.
Það hefur tekið mig mörg ár að fyrir
gefa sjálfri mér að um leið og verk
efnin mín fara að ganga mjög vel
langar mig að fá annan í reksturinn
og byrja á næstu hugmynd. Úthald
er ekki endilega dyggð – það má fá
hugmynd, koma henni af stað og
gera svo eitthvað annað.“
Tobba segir að eftirspurnin eftir
ýmsum vörum Granólabarsins sé
einfaldlega galin. „Við seldum sem
dæmi yfir 2.000 selleríssafa fyrir vel
á aðra milljón í september en hefð
um geta selt miklu meira hefðum
við annað því. Og þetta eru hliðar
vörur, fyrir utan allt annað sem við
gerum,“ segir Tobba. „Fólk er að
keyra í bæinn með kælibox til að
kaupa selleríssafana og ég er að fara
með þá í frakt. Þó ég byrji að fram
leiða þetta klukkan sex á morgnana
þá anna ég ekki sjálf þessari eftir
spurn,“ segir Tobba sem viðurkennir
að þetta sé frústrerandi.
Granólabarinn framleiðir jafn
framt kökur fyrir fimmtán kaffi
hús í sjötíu fermetrum í verbúð úti
á Granda. „Og það eru biðlistar frá
kaffihúsum sem vilja selja vörur
frá okkur og við getum ekki annað
eftirspurninni. Fólk hringir og segist
vilja selja vöruna okkar og ég þarf
bara að svara því að ég geti bara alls
ekki búið til meir,“ segir Tobba sem
ítrekar að ákvörðunin um að selja sé
ekki síst persónuleg.
„Ég held að þetta sé algengt
vandamál minni fyrirtækja og
sprotafyrirtækja, þegar fólk er búið
að eyða fyrsta árinu í að vinna sig
upp úr kafi og svo þegar þetta fer að
ganga upp þá er maður bara búinn,“
segir Tobba.
„Maður þarf líka að líta inn á við
og hugsa: Hvernig manneskja er ég?
Tobba ákveðin að selja sprunginn Granólabar
Tobba Marínós á
Granólabarnum
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Maður þarf líka að líta
inn á við og hugsa:
Hvernig manneskja er
ég?
Tobba Marínós
Mér finnst skemmtilegast í startöpp
fasanum, þegar þetta er allt saman
mikil keyrsla og ég vildi hafa þetta
lítið og sætt.
Ég er ekki snillingur í því að reka
keðju og það er bara fullt af öðru
fólki gott í því svo mér finnst algjör
óþarfi að ég fari þá að gera það líka,
í stað þess að skoða sölu eða sam
runa eða einhverja útfærslu. Það er
svolítið íslenskt að hugsa: Ég þarf að
vera allt í öllu alltaf óháð því hvort
ég kunni það.“
Ekki kellingaföndur
Tobba á líka fyrirtækið Náttúru
lega Gott með mömmu sinni og
hefur selt granóla fyrir yfir hundrað
milljónir frá því að fyrirtækið sendi
fyrstu sendinguna frá sér árið 2020.
„Ég upplifi oft að framleiðsla á holl
ari handgerðum vörum sé álitin kell
ingaföndur en ekki tekið alvarlega
sem frumkvöðla og fyrirtækjarekst
ur,“ segir Tobba sem segir reksturinn
svo sannarlega ekkert dútl.
Ákvörðunin um að selja Granóla
barinn sé ekki síst tekin með þetta í
huga. „Hvort sem við splittum upp
vörumerkinu og búðinni eða seljum
það saman, eða förum í samstarf
og þróun með einhverjum öðrum,“
segir Tobba sem er alltaf komin með
nýjar hugmyndir. „Það væri æðis
legt að hafa smá svigrúm til þess að
geta verið að gera alls konar annað.
Það er fullt af fólki í sambærilegum
sporum, sem hugsar: Á ég að halda
áfram og klára mig upp að herða
blöðum, eða á ég að fjárfesta sjúk
lega mikið og opna annan stað og
jafnvel missa yfirsýnina? Og svo
eru mamma og fjölskylda mín með
mér í þessu og við viljum kannski á
einhverjum tímapunkti geta farið
í frí saman. Það er aldrei hægt ef
mamma, pabbi, systur mínar og allir
eru með í þessu.“ n
Oddur Ævar
Gunnarsson
odduraevar
@frettabladid.is
THE WOMAN KING
Leikstjórn: Gina
Prince-Bythewood
Leikarar: Viola Davis, Lashana
Lynch, Thuso Mbedu, John Boyega
Oddur Ævar Gunnarsson
Agojie nefndust stríðsynjur Daho
meyættbálksins í vesturhluta Afr
íku á 17. til 19. öld. Þessi sagnfræði
ein og sér ætti að vera nóg til þess
að kveikja áhuga lesenda á kvik
myndinni Woman King.
Þar gegna stríðsynjurnar enda
lykilhlutverki í áhugaverðri sögu
sem gerist á öðrum áratug 19. aldar
sem byggir að mestu á raunveru
legum atburðum. Viola Davis fer
með hlutverk Naniscu, hershöfð
ingja Agojiestríðsynjanna, á tímum
þar sem afrísk konungsveldi stríddu
sín á milli og seldu þræla óvinanna
til nýlenduvelda á Vesturlöndum.
Söguþráður myndarinnar er
gríðarlega vel skrifaður og f léttast
örlög aðalpersóna saman á raun
hæfan en um leið áhugaverðan hátt.
Flestir leikarar komast auk þess
gríðarlega vel frá sínum hlutverkum
í myndinni. Viola er hreint út sagt
stórkostleg í myndinni og að öðrum
ólöstuðum ber hún af, þó að það sé
nánast erfitt að fullyrða það, svo vel
standa leikarar myndarinnar sig.
Thuso Mbedu er engu síðri í hlut
verk sínu sem hin unga Nawi sem
gengur til liðs við Agojiestríðs
ynjurnar og veitir áhorfendum
þar með nauðsynlega innsýn
í menningu og bardagavenjur
stríðskvennanna. Lashana Lynch
er sömuleiðis stórkostleg sem Izo
gie, fyrirmynd Nawi, og af öllum
öðrum leikurum ólöstuðum bera
þessar þrjár leikkonur myndina
algjörlega uppi.
Myndin er stór í sniðum og ber
það fullkomlega á herðum sér að
vera nefnd í sömu andrá og aðrar
stórmyndir um bardagakappa sem
eiga sér fyrirmyndir í sagnfræðinni,
stórmyndir líkt og Gladiator eða
Braveheart. Það er nánast lygilegt
að engum hafi dottið í hug að búa
til kvikmynd um þessar mögnuðu
stríðskonur þar til nú.
Myndin er þó ekki með öllu
gallalaus frekar en aðrar myndir og
er gallana helst að finna í handrits
skrifum. Þar væri hægt að nefna að
framvinda sögunnar í þriðja og síð
asta hluta myndarinnar er of hæg.
Líklega hafa höfundar talið sig vera
með stórvirki í höndunum og því
ákveðið að draga söguna og enda
lok hennar ögn á langinn að lokum.
Myndin er stórkostleg engu að síður
og mun stilla sér upp í sömu hillu og
sambærileg stórvirki líkt og Brave
heart og Gladiator.
NIÐURSTAÐA: Myndin er þrek-
virki, þó hún sé helst til of löng.
Það er lygilegt að saga Agojie hafi
ekki verið kvikmynduð áður af
Hollywood. n
Stríðsynjur í sannkölluðu stórverki sem seint mun gleymast
Viola Davis ber af í hlutverki herforingja Agojie stríðsynjanna í myndinni.
26 Lífið 27. október 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 27. október 2022 FIMMTUDAGUR