Skessuhorn - 05.10.2022, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2022 11
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Bílás, Smiðjuvöllum 17, 301 Akranes www.bilas.isbilas@bilas.is 431 2622 Við tökum vel á móti þér...
Mikið úrval af nýjum og notuðum bílum
Það kostar ekkert að skrá bílinn hjá okkur
Bjóðum gott pláss á bílaplani Bíláss fyrir sölubíla
Við erum umboðsmenn fyrir bílaumboðin Öskju og Heklu
Mikil sala
og gott kaffi
Við erum með bílinn fyrir þig!
Hundrað daga hvalveiðivertíð
Hvals hf. er nú lokið, hún hófst 22.
júní og lauk 29. september. Kristján
Loftsson forstjóri Hvals hf. segir í
samtali við Skessuhorn að vel hafi
gengið en þetta sumar skeri sig úr
að því leyti að september var besti
veiðimánuðurinn. Framan af sumri
lá hvalurinn dýpra og því lengra að
sigla. „Við fengum svo einmuna
veðurblíðu allt frá höfuðdeginum
og út september. Það er óvenju-
legt að flestar langreyðar veiðist í
september þegar bræla er oft tíðari
og birtutíminn skemmri en yfir
hásumarmánuðina. Núna í haust
hefur hvalurinn haldið sig nálægt
landi og því stutt fyrir hvalveiði-
bátana að sigla hér vestur um út af
Hvalfirði,“ segir Kristján. Bátunum
Hvali 8 og Hvali 9 hefur nú verið
lagt í stæði sín í Reykjavíkurhöfn
þar sem vel fer um þá og eru þeir
í raun augnayndi fyrir ferðafólk og
aðra gesti sem leið eiga um höfn-
ina. Bátarnir eru tengdir rafmagni
og hitaveitu úr landi frá Faxaflóa-
höfnum.
Alls veiddust 148 langreyðar á
vertíðinni að þessu sinni, en þær
voru 146 sumarið 2018 þegar síðast
var veiddur hvalur. Allar afurðir frá
því fyrir fjórum árum eru nú seldar.
Kristján segir að hvalalýsið hafi að
hluta verið brennt sem eldsneyti á
bátana í sumar. „Við notum um 35%
af lýsi á móti olíu til að knýja gufu-
vélar bátanna, en það er ágæt orka
í lýsinu og gott að nýta með þessu
móti afurðirnar í topp,“ segir hann.
Vinnslan í sumar gekk sömuleiðis
vel, að sögn Kristjáns. Afurðirnar
eru unnar í hvalstöðinni í Hval-
firði, lýsið brætt, kjötið fryst og
rengi og spik ísað. Í Hafnarfirði
er síðan afurðunum pakkað og
þær frystar. „Nýtingin á þessum
afurðum öllum er ágæt; hvort sem
um er að ræða kjöt, spik, rengi, lýsi
eða mjöl,“ segir Kristján. Sem fyrr
verða afurðirnar seldar til Japan
og býst Kristján við að meira verði
flutt af hvalaafurðum þangað en
Japanir sjálfir ná að útvega sér með
eigin veiðum. Undanfarin ár hefur
verið siglt með hvalaafurðir með
frystiskipi frá Hafnarfirði til Japan
og siglt um Norður-Íshafið. Eftir
að sú siglingarleið varð fær er siglt
upp með strönd Noregs, tekin olía
í Noregi og farið norður fyrir Rúss-
land um Norður-Íshafið, áleiðis
til Osaka í Japan. Kristján kveðst
aðspurður ekki eiga von á því að
ófriðarástand hamli því að hægt
verði að sigla þessa leið, en um
alþjóðlega siglingaleið sé að ræða.
Veður og vindar ráði því hins vegar
hvort siglingaleiðin um íshafið sé
yfirleitt fær. Margfalt styttra er að
sigla með afurðirnar um Norður-
-Íshafið, en að fara suður fyrir, en
norðurleiðin er einungis fær þegar
ís lokar ekki siglingaleiðum.
Nú er unnið að frágangi og
þrifum í Hvalstöðinni í Hval-
firði og er verið að búa hana undir
vetur inn. Næsta sumar geta veiðar
svo hafist að nýju og kveðst Krist-
ján vongóður um að þær hefjist í
júní næstkomandi.
mm
Breyttur opnunartími
Afgreiðslutími í vetur
1. okt. - 30. apríl
Mánudagar - föstudaga
kl. 10:00-18:00
(Sjálfsafgreiðsla 10:00-12:00)
Laugardagar kl. 11:00-14:00
Verið velkomin í Bókasafnið í vetur.
Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200 bokasafn.akranes.is • bokasafn@akranessofn.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Kristján lætur vel af
liðinni hvalvertíð
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals. Ljósm. úr safni/mm
Hvalveiðibátur siglir áleiðis inn Hvalfjörð. Ljósm. Stjórnarráðið.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is