Skessuhorn - 05.10.2022, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2022 23
Um liðna helgi fór fram Arena
mót Sundfélagsins Ægis í Laugar-
dalslaug. Kepptu þar átján sund-
menn frá ÍA, tíu ára og eldri.
Sundfólkið átti góða spretti og sjá
mátti bætingar hjá mörgum síðan
á Sprengimótinu fyrir um þremur
vikum. Fimm sundmenn afrekuðu
að bæta sig í öllum sínum greinum.
Það voru þau Almar Sindri Daníels-
son Glad, Víkingur Geirdal, Sunna
Dís Skarpéðinsdóttir, Vilborg Anna
Björgvinsdóttir og Kajus Jatautas.
Alls fengu sundmenn frá ÍA fimm
gull, þrjú silfur og þrjú brons á
mótinu.
sþ/ Ljósm. SA.
Skagamenn gerðu sér góða ferð
norður á föstudaginn þegar
þeir mættu Þór í 1. deild karla í
körfuknattleik og unnu sinn fyrsta
sigur á tímabilinu, lokastaðan 74:77
fyrir ÍA. Þór byrjaði leikinn betur
og skoraði fyrstu fjögur stigin en ÍA
komst í 6:12 eftir rúman fimm mín-
útna leik. Skömmu síðar hrökk allt í
baklás hjá ÍA því þeir skoruðu ekki
stig á meðan Þór náði 10-0 áhlaupi
og staðan eftir fyrsta leikhluta, 20:15
Þór í vil. Baráttan hélt áfram í öðrum
leikhluta, liðin skiptust á að ná for-
ystu og jafnt var á flestum tölum.
Skagamenn voru þó ívið sterkari og
fóru inn í hálfleikinn með fjögurra
stiga forystu, staðan 41:45 fyrir ÍA.
Um miðjan þriðja leikhluta var
staðan enn á ný jöfn, 50;50, en
Skagamenn náðu síðan aðeins að
skora þrjú stig það sem eftir lifði
leikhlutans og Þór náði góðri for-
ystu á ný, 65:55. Gestirnir neituðu
að gefast upp, spiluðu geysigóða
vörn og um miðjan fjórða leikhluta
höfðu þeir minnkað muninn í þrjú
stig, staðan 69:66 fyrir Þór. Skaga-
menn náðu svo góðum kafla undir
lok leiksins og voru með sex stiga
forystu þegar rúm ein mínúta var
eftir, 71:77. Þór náði að minnka
muninn í þrjú stig en Skagamenn
héldu þetta út og unnu frábæran
sigur, lokatölur 74:77.
Hjá ÍA var Jalen Dupree stiga-
hæstur með 24 stig og 18 fráköst,
Lucien Christofis var með 19 stig
og 11 fráköst og Gabriel Adersteg
með 18 stig og 13 fráköst. Tarojae
Brake var stigahæstur hjá Þór með
20 stig, Smári Jónsson var með 14
stig og þeir Zak Harris og Toni
Cutuk voru með 12 stig hvor.
Næsti leikur ÍA er á móti Hamri
næsta föstudag í íþróttahúsinu við
Vesturgötu og hefst klukkan 19.15.
vaks
Keflavík og ÍA mættust í fyrstu
umferð í úrslitakeppni Bestu
deildar neðri hlutar á sunnudaginn
og fór leikurinn fram syðra. Skaga-
menn komust yfir á 18. mínútu
leiksins þegar Benedikt V. Warén
fékk boltann hægra megin, óð upp
að vítateig Keflvíkinga og setti
boltann með vinstri sem fór af
varnarmanni og í netið, staðan 0-1
fyrir ÍA. Tíu mínútum síðar jafnaði
Kian Williams metin fyrir heima-
menn þegar Árni Marinó Einars-
son missti af fyrirgjöf og fór bolt-
inn beint fyrir fætur Kian sem
lagði hann í netið. Á lokamínútu
fyrri hálfleiks komst sóknarmaður
Keflavíkur einn inn fyrir vörn
Skagamanna, fór framhjá Árna
Marinó sem braut á honum og víti
dæmt. Patrik Johannesen skoraði af
miklu öryggi úr vítaspyrnunni og
staðan í hálfleik 2-1 fyrir Keflavík.
Skagamenn jöfnuðu leikinn eftir
tæpan tíu mínútna leik í þeim síð-
ari þegar Johannes Björn Vall fékk
boltann í teignum og átti ágætis
skot sem markvörður Keflavíkur
réði ekki við, staðan 2-2 og spenna
komin í leikinn á ný. Það var síðan
Joey Gibbs sem skoraði sigurmark
leiksins fyrir Keflavík tíu mínútum
síðar þegar hann skoraði úr auka-
spyrnu og það urðu lokatölur leiks-
ins, 3-2 fyrir Keflavík. Í uppbótar-
tíma fékk Oliver Stefánsson leik-
maður ÍA síðan sitt annað gula
spjald og þar með rautt fyrir ljóta
tæklingu sem þýðir að hann verður
í banni í næsta leik.
Þetta tap þýðir að Skagamenn
verða að vinna alla fjóra leikina
sem eftir eru í mótinu og treysta á
önnur hagstæð úrslit. Það er nán-
ast ljóst að Keflavík og Fram eru
sloppin við fall en ÍBV, Leiknir
R., FH og ÍA verða í þeirri bar-
áttu eitthvað áfram. Næsti leikur
ÍA er gegn Fram næsta laugardag
á Akranesvelli og hefst viðureignin
klukkan 14.
vaks
Skallagrímur tók á móti Sindra á
föstudagskvöldið í 1. deild karla í
körfuknattleik og fór leikurinn fram
í Fjósinu í Borgarnesi. Jafnt var á
flestum tölum í fyrsta leikhluta en
Skallagrímur tók smá kipp undir lok
hans og var með sex stiga forystu,
22:16. Um rúman miðjan annan
leikhluta komust gestirnir yfir í
leiknum og héldu forystunni fram að
hálfleik en þó nánast með minnsta
mun, staðan 34:36 Sindra í vil.
Gestirnir náðu að halda heima-
mönnum nokkrum stigum frá sér
nánast allan þriðja leikhlutann, juku
forskotið hægt og rólega og var
munurinn kominn í tólf stig fyrir
fjórða og síðasta leikhluta, staðan
48:60 Sindra í vil. Skallagrímsmenn
reyndu hvað þeir gátu að minnka
bilið í fjórða leikhluta en uppskeran
var rýr. Þegar tæpar tvær mínútur
voru eftir af leiknum var forskot
gestanna aðeins sex stig en nær
komust heimamenn ekki og Sindri
með sanngjarnan sigur þegar upp
var staðið, lokatölur 80:85.
Hjá Skallagrími var Björg-
vin Hafþór Ríkharðsson stiga-
hæstur með 22 stig og þeir Ragnar
Magni Sigurjónsson og Almar Örn
Björnsson voru með 16 stig hvor.
Tyler Stewart var með 28 stig fyrir
Sindra, Rimantas Daunys með 19
stig og Ismael Gonzales með 15
stig.
Næsti leikur Skallagríms er gegn
Fjölni næsta föstudag í Dalhúsi í
Grafarvogi og hefst klukkan 19.15.
vaks
Skallagrímur tapaði
fyrir Sindra
Skallagrímur hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á tímabilinu. Mynd af
liðinu á síðasta tímabili. Ljósm. vaks
ÍA með góðan útisigur á Þór
ÍA vann Þór Akureyri og þar með sinn fyrsta sigur á tímabilinu sem er nýhafið.
Mynd af liðinu á síðasta ári. Ljósm. vaks
Átján sundmenn ÍA kepptu
í Laugardalslaug
Breiðablik b og Snæfell áttust við
í 1. deild kvenna í körfuknattleik
á miðvikudaginn í síðustu viku og
fór leikurinn fram síðla kvölds í
Smáranum í Kópavogi. Heima-
konur byrjuðu betur og komust í
5-0 en það varð fljótlega ljóst hvort
liðið myndi hafa sigur í leiknum.
Eftir fimm mínútna leik var staðan
orðin 6:13 Snæfelli í vil og við lok
fyrsta leikhluta var staðan 14:27
fyrir Snæfelli. Eftir að Snæfell náði
3-9 kafla í byrjun annars leikhluta
skelltu þær í lás og Breiðablik skor-
aði ekki stig í rúmar fjórar mínútur
á meðan gestirnir röðuðu niður
körfum. Þegar flautað var til hálf-
leiks var orðinn næstum helmings-
munur á liðunum, staðan 25:47
fyrir Snæfelli.
Leikmenn Snæfells sögðu aftur
lok, lok og læs í byrjun þriðja leik-
hluta því Breiðablik skoraði ekki
nema fjögur stig í öllum leikhlut-
anum. Virkilega góð vörn hjá
gestunum og þær héldu glaðar inn
í fjórða leikhluta með ansi gott for-
skot, staðan 29:68. Fjórði leikhlut-
inn var á rólegu nótunum og á
tæpum þriggja mínútna kafla skor-
aði hvorugt liðið ekki eina einustu
körfu. Síðustu mínúturnar skiptust
liðin á að skora og lokatölur afar
sannfærandi sigur Snæfells, 41:86.
Preslava Koleva var stigahæst
í liði Snæfells með 26 stig, Ylenia
Bonett var með 23 stig og 15 frá-
köst og Minea Takala var með 15
stig og 13 fráköst. Hjá Breiðabliki
var Þórdís Rún Hjörleifsdóttir
stigahæst með 9 stig og þær Eyrún
Ósk Alfreðsdóttir og Hera Magnea
Kristjánsdóttir voru með 7 stig
hvor.
Næsti leikur Snæfells í deildinni
er gegn Þór Akureyri í kvöld, mið-
vikudag, í Stykkishólmi og hefst
klukkan 19.15.
vaks
Snæfell með stórsigur
á Breiðabliki b
Preslava Koleva var stigahæst á móti Breiðabliki. Hér í leik gegn Aþenu á síðasta
tímabili. Ljósm. sá
Skagamenn í erfiðum málum
eftir tap á móti Keflvíkingum
Benedikt V. Warén skoraði fyrsta mark ÍA á móti Keflavík. Hér í leik gegn KR fyrr í
sumar. Ljósm. Lárus Árni Wöhler.