Skessuhorn - 05.10.2022, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 202216
ÍA varð í fimmta sæti í 2. deild
kvenna í knattspyrnu í sumar með
31 stig, þær unnu tíu leiki, gerðu
eitt jafntefli og töpuðu fimm
leikjum. Skagakonur léku í fyrsta
skipti í 2. deild kvenna á Íslands-
mótinu í sumar en höfðu leikið í
næstefstu deild síðustu fimm árin
þar á undan. Magnea Guðlaugs-
dóttir var þjálfari ÍA í sumar en
hún tók við liðinu fyrir tímabilið.
Blaðamaður Skessuhorns heyrði
í Magneu í síðustu viku og fyrsta
spurningin varðaði það að þær
hefðu unnið sjö leiki og tapað
fjórum á Íslandsmótinu áður en
komið var að úrslitakeppninni. Allt
voru það töp á móti liðunum sem
enduðu fyrir ofan þær í deildinni.
Ertu með einhverja skýringu á
því og er kannski ein skýringin að
þessir leikir voru allir á útivelli?
Fyrst og fremst
okkar klúður
„Jú, mikið rétt. Þessi lið enduðu
fyrir ofan okkur fyrir úrslitakeppn-
ina. Það er alltaf gott fyrir sálina að
kenna einhverju um slæmt gengi
en fyrst og fremst er þetta okkar
klúður. Við áttum alltaf að vinna
þessa leiki sem töpuðust. Eftir að
við fengum útlendingana höfum
við verið með besta liðið í deildinni,
að mínu mati að minnsta kosti.
Þannig að eitt af klúðri ársins var
hversu seint við tókum erlendu úti-
spilarana. Heimaleikur-útileikur,
jú að sjálfsögðu hefur það að segja
þar sem okkur líður vel á Norður-
álsvelli. Við töpuðum ekki leik hér
heima á Íslandsmótinu svo klárlega
er uppröðunin í þessu móti sem og
skipulag mótsins til skammar.“
Hafði tímabilið í fyrra þegar þið
félluð úr Lengjudeildinni einhver
áhrif inn í þetta tímabil og var deildin
sterkari en þú áttir von á? „Eflaust
hefur (á)fallið eitthvað að segja frá
síðasta hausti þar sem stelpurnar
voru vægast sagt brotnar. Það tekur
tíma að jafna sig en okkur finnst þær
vera í flottu jafnvægi og eiga bara eftir
að koma tvíefldar með reynslu eftir
þetta tímabil sem mun skila þeim
langt í framtíðinni. Já, deildin var
sterkari og mun fleiri erlendir leik-
menn en ég bjóst við og það voru fá
lið sem voru án erlendra leikmanna.“
Þegar úrslitakeppnin hófst var
ljóst að þið ættuð við ramman reip
að draga um að komast aftur upp í
Lengjudeildina. Þar unnuð þið þrjá
leiki, gerðuð eitt jafntefli, töpuðuð
einum og voruð fjórum stigum frá
því að komast upp. Var leikurinn
við Fram í úrslitakeppninni örlaga-
valdurinn og hvað gerðist eiginlega
þar? „Já, það má alveg segja það.
Við sættum okkur við jafnteflið
gegn Gróttu en ætluðum að vinna
rest. Við komum vel stemmdar í
Fram leikinn og vorum töluvert
betri en þær. Dómaratríóið var í
stuði og gaf mér og Bryndísi fyrir-
liða rautt í fyrri hálfleik. Eftir það
varð leikurinn jafnari, þær vinna þó
3-2 og úrslitaleikjaróðurinn orðinn
þungur fyrir okkur.“
Erum á réttri leið
Þú sagðir í viðtali fyrir mót að þið
ætluðuð ykkur stóra hluti í sumar
og að fara beint upp aftur í Lengju-
deildina. Niðurstaðan hlýtur því
að vera mikil vonbrigði að ná ekki
þessu markmiði? „Jú, það er alltaf
sárt að ná ekki sínum markmiðum.
Sérstaklega þegar vilji er til staðar
hjá öllum leikmönnum til að gera
betur í dag en í gær, þær sýna gleði
í öllu sem þær gera. Skagahjartað
er á réttum stað fyrir bæði félaginu
og öllu samfélaginu, samvinnan og
liðsheildin sem þær hafa myndað
til fyrirmyndar en samt klúðrum
við þessu tímabili. Ótrúlega sárt.
En við erum svo óendanlega
stoltar af hópnum okkar því við
erum á réttri leið. Það eru fram-
farir á svo margan hátt sem þær
sýna og má þar nefna liðsheildina
fyrst og fremst. Ég hef bullandi trú
á þessum hóp, við ætlum að vera
þolinmóðar og byggjum þetta lið
upp hægt og rólega.“
Magnea segir að lokum að
það sé ljóst að hún og Aldís Ylfa
aðstoðarþjálfari verði áfram við
stjórnvölinn á næsta tímabili og
þá segir hún að flestir leikmenn
séu með samning áfram. Þá séu
þær sem eru samningslausar að
taka sér nokkrar vikur í frí og taki
svo ákvörðun eftir það með fram-
haldið. Einhver lokaorð? „Já, mig
langar að þakka öllum sem komu
á leikina okkar í sumar, bæði á
Akranesi og þeim sem skelltu sér
á útileikina. Það er allt svo miklu
skemmtilegra þegar fólkið okkar
er með okkur. Við eflumst við
hvatningu eins og flestir aðrir.
Takk allir! ÍA að eilífu!“
vaks
Knattspyrnufélagið Kári á Akranesi
varð í fimmta sæti í 3. deild karla í
knattspyrnu í sumar með 34 stig,
vann tíu leiki, gerði fjögur jafntefli
og tapaði átta leikjum. Liðið lék í
3. deild í sumar í fyrsta skipti síðan
árið 2017 en á síðasta tímabili end-
aði Kári í neðsta sæti í 2. deildinni
og féll þar með niður um deild.
Sveinbjörn Geir Hlöðversson er
formaður Kára og fylgdi liðinu
eins og skugginn í flestum leikjum
sumars ins. Blaðamaður Skessu-
horns heyrði í Svenna og spurði
hann aðeins út í tímabilið. Nú
hófuð þið ekki mótið vel á tímabil-
inu og voruð mikið upp og niður í
allt sumar. Þið náðuð mest tveimur
sigurleikjum í röð í mótinu og voruð
aldrei líklegir í toppbaráttuna. Ef þú
horfir til baka yfir tímabilið, hvernig
horfir það fyrir þér og varstu sáttur
við gengi liðsins?
Skref í rétta átt
„Ég var mjög sáttur við nokkra
hluti í sumar, okkur gekk til dæmis
vel í Mjólkurbikarnum og komumst
í 32-liða úrslit gegn FH þar sem við
gerðum FH-ingum virkilega erfitt
fyrir þar sem þeir náðu ekki að klára
leikinn fyrr en undir lok leiks. Varð-
andi deildina að þá var hún mjög
jöfn og spennandi, ekkert lið var að
stinga af og mikið um óvænt úrslit.
Það var síðan ekki fyrr en þegar
langt var liðið á mótið að þrjú lið
náðu að slíta sig frá liðunum fyrir
neðan og okkar langsótti möguleiki
varð úr sögunni. Því miður náðum
við ekki að tengja nógu marga sigra
til að koma okkur í þessa baráttu en
við náðum í ágætis úrslit undir lok
tímabils sem skilaði okkur fimmta
sætinu með tíu sigra og fjögur jafn-
tefli og jákvæða markatölu. Köllum
þetta skref í rétta átt en við ætl-
uðum okkur klárlega að vera í
toppbaráttunni í sumar og reyna að
koma liðinu í 2. deild að nýju.“
Glímdu mikið
við meiðsli
Hafði tímabilið í fyrra þegar þið
félluð úr 2. deild með aðeins einn
sigur og fimmtán töp einhver
áhrif inn í þetta tímabil? „Það er
alltaf mikil áskorun að hefja leik í
nýrri deild eftir að hafa fallið og
ég held að það hafi meiri áhrif en
stigasöfnunin á síðasta tímabili.
Þrátt fyrir litla stigasöfnun í
fyrra þá spilaði liðið marga mjög
jafna og spennandi leiki þar sem
í flestum leikjum munaði ekki
meira en einu marki. Við ætl-
uðum okkur að vera í toppbaráttu
í sumar og reyna að komast aftur
upp í 2. deild. En við glímdum
mikið við meiðsli og önnur forföll
sem orsökuðu að liðið var sífellt
að breytast. Það var ansi sjaldan
sem við náðum að stilla upp sama
byrjunar liði tvo leiki í röð og það
hafði klárlega áhrif.“
Þrír þjálfarar voru við stjórnvöl-
inn á tímabilinu, þeir Ásmundur
Haraldsson, Teitur Pétursson og
Wout Droste. Hver var ástæðan
fyrir því og hvernig gekk að púsla
þessu öllu saman? „Við vissum
það fyrir tímabilið að Ási Har-
alds myndi halda á EM kvenna
um mitt sumarið þar sem hann
er aðstoðarþjálfari kvennalands-
liðsins. Við tókum umræðu um
það innan félagsins og niðurstaðan
var sú að prófa bara að keyra á
þetta með hann sem þjálfara og
brúa svo bilið með reynslumeiri
leikmönnum í fjarveru hans. Alls
engin draumastaða en þjálfarar
með sömu reynslu og menntun og
Ási eru ekki beint á hverju strái og
við vildum halda honum áfram hjá
okkur. Þegar leið svo á sumarið í
fjarveru Ása þá varð það ljóst að við
yrðum að finna okkur þjálfara til
að klára tímabilið og við leituðum
til Knattspyrnufélags ÍA með að fá
inn þjálfara. Eftir nokkrar vanga-
veltur bar nafn Wout Droste leik-
manns ÍA upp, frábær náungi með
mikinn áhuga á þjálfun. Hann var
tilbúinn í slaginn og stóð sig með
miklum sóma.“
Horfum fram á veginn
Hvernig gekk samstarfið með
ÍA í sumar og sérðu fram á ein-
hverjar breytingar á því samstarfi á
næsta ári? „Samstarfið gekk ágæt-
lega en hefði auðvitað mátt vera
betra varðandi leikmannamál. Það
skorti betri stýringu á þeim málum
frá báðum félögum en við horfum
fram á veginn. Það hefur verið
virkt samtal milli félaganna um að
gera jákvæðar breytingar í þeim
málum. Vonandi sjáum við öflugra
og betra samstarf á næsta tímabili
báðum félögum og ekki síst leik-
mönnum til hagsbóta.“
Hvernig er staðan fyrir næsta
tímabil? Er búið að ráða þjálfara
og hver er staðan í leikmanna-
hópnum fyrir næsta tímabil? Það
eru ákveðnar hugmyndir í gangi
varðandi samstarfið og mikill sam-
hljómur hjá bæði Kára og ÍA varð-
andi næstu skref en sú vinna er á
byrjunarstigi. Það er allavega ljóst
að ef við náum að efla samstarfið
og vinna betur saman í rétta átt þá
verður umgjörðin og leikmanna-
hópurinn í toppmálum.“
Eitthvað að lokum? „Ég vil bara
þakka öllum þeim sem hafa stutt
við bakið á Kára, hvort sem það
eru stuðningsaðilar, stuðnings-
menn eða aðrir. Takk fyrir okkur.
Áfram Skagamenn!“
vaks
„Mikil áskorun að leika í nýrri deild eftir að hafa fallið“
Rætt við Sveinbjörn Geir Hlöðversson formann Kára um tímabilið í sumar
„Alltaf sárt að ná ekki sínum markmiðum“
Lið ÍA sem lék í 2. deildinni í sumar. Ljósm. kfia
Magnea Guðlaugsdóttir þjálfari ÍA.
Ljósm. vaks
Lið Kára í síðasta heimaleiknum í sumar. Ljósm. sgh
Sveinbjörn Geir Hlöðversson,
formaður Kára. Ljósm. vaks