Skessuhorn


Skessuhorn - 05.10.2022, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 05.10.2022, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 202220 Vörur og þjónusta H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifi bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is - Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt. Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390. Ökuskóli allra landsmanna GJ málun ehf málningarþjónusta sími 896 2356 301 Akranes gardjons@visir.is Garðar Jónsson málarameistari 1990-2020 30 ár Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Vegleg hátíð í tilefni 45 ára afmælis SÁÁ verður haldin í Háskólabíó í Reykjavík í kvöld, miðvikudaginn 5. október kl. 20. Stofnfundir sam- takanna voru haldnir fyrstu dagana í október 1977. 45 ára afmælið verður sannkölluð tónlistarveisla; með Emmsjé Gauta, Katrínu Halldóru, Bubba, Eyþóri Inga og Karlakórnum Fóstbræðrum. Veislustjórar verða söngfuglarnir og grínistarnir Davíð og Stefán. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir. Auk tónlistarinnar verður sagan rifjuð upp og horft fram á veginn ásamt því að einstaklingar og fyrirtæki verða heiðruð fyrir stuðninginn við SÁÁ í gegnum tíðina. -fréttatilkynning SÁÁ boðar til afmælisfagnaðar í kvöld Sjúkrahúsið Vogur. Vík meðferðarmiðstöð á Kjalarnesi. Kæru Borgnesingar! Fyrir stuttu vorum við fjölskyldan í stuttri heimsókn á æskuslóðum mínum. Við Emil, 18 mánaða gamall sonur minn, stukkum út í göngutúr og í leit að ævintýrum. Við byrjuðum á Bjössaróló og pruf- uðum öll tækin sem þar hafa staðið áratugum saman. Hafandi gengið úr skugga um að þau væru enn jafngóð og skemmtileg og daginn sem þau voru byggð, klifruðum við niður stigann í átt að fótboltavell- inum, hlupum um og spörkuðum í alla bolta sem aðrir krakkar höfðu skilið eftir. Næst lá leiðin í íþróttahúsið til að sjá hvort eitthvað væri að gerast þar. Auðvitað var körfuboltaleikur í gangi. Sonur minn, sem að jafn- aði hreyfir sig hratt, og óörugglega, setti persónulegt met er hann sat í heilar 10 mínútur og horfði þegj- andi á. Við gengum svo í gegnum Skallagrímsgarð þar sem Emil kynntist strák á svipuðum aldri og fóru þeir yfir þessar helstu fréttir og leystu einhver mál. Þegar við loks skiluðum okkur heim rann upp fyrir mér að Emil var að taka nokkuð svipaðan hring og faðir hans tók ítrekað sem barn. Borgarnes var mitt eigið Dis- neyland. Fyrir 30 árum síðan opn- aði Borgarnes fang sitt og tók á móti mér, foreldrum mínum og bróður mínum og breytti lífi okkar til hins betra. Ég var orðinn vina- margur og búinn að læra íslensku á innan við viku frá komu, allavega í minningunni. Ég og félagar mínir eyddum stórum hluta af okkar tíma í allskonar íþróttir. Við bjuggum til fótboltavelli á nær öllum gras- blettum bæjarins og spiluðum úrslitaleik HM á þeim. Sérstaklega vorum við þó í körfubolta, enda Borgarnes annálaður körfubolta- bær og allir með körfu hangandi upp á hurð í herberginu eða bíl- skúrnum. Alla tíð hefur karfan staðið mér nálægt og verið minn allra besti vinur. Körfubolti var ástæðan fyrir því að fjölskylda mín kom til lands- ins frá Rússlandi og hann varð seinna meir atvinna mín í 20 frá- bær ár. Nú er komið að því að ég hef ákveðið að segja skilið við þessa íþrótt sem leikmaður. Ég hef átt nokkur rifrildi við körfuboltann í gegnum tíðina en hann brosti alltaf þegar ég kom skömmustulegur að biðja hann afsökunar. Hann tók þá bara utan um mig og bauð mér upp á endalaus tækifæri til þess að búa til frábærar minningar. Á þessum tímamótum verð ég enn meðvit- aðri um að síðustu tveir áratugir í lífi mínu hefðu farið á allt annan veg ef að það væri ekki fyrir Borg- arnes og móttökurnar sem ég fékk þar, þá 5 ára gamall. Takk Borgarnes. Pavel Ermolinskij Pennagrein Kveðja frá Pavel Ermolinskij

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.