Skessuhorn - 05.10.2022, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 202220
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
GJ málun ehf
málningarþjónusta
sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Vegleg hátíð í tilefni 45 ára afmælis
SÁÁ verður haldin í Háskólabíó í
Reykjavík í kvöld, miðvikudaginn
5. október kl. 20. Stofnfundir sam-
takanna voru haldnir fyrstu dagana
í október 1977.
45 ára afmælið verður sannkölluð
tónlistarveisla; með Emmsjé Gauta,
Katrínu Halldóru, Bubba, Eyþóri
Inga og Karlakórnum Fóstbræðrum.
Veislustjórar verða söngfuglarnir
og grínistarnir Davíð og Stefán.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir. Auk tónlistarinnar verður
sagan rifjuð upp og horft fram á
veginn ásamt því að einstaklingar
og fyrirtæki verða heiðruð fyrir
stuðninginn við SÁÁ í gegnum
tíðina.
-fréttatilkynning
SÁÁ boðar til
afmælisfagnaðar í kvöld
Sjúkrahúsið Vogur.
Vík meðferðarmiðstöð á Kjalarnesi.
Kæru Borgnesingar!
Fyrir stuttu vorum við fjölskyldan
í stuttri heimsókn á æskuslóðum
mínum. Við Emil, 18 mánaða
gamall sonur minn, stukkum út í
göngutúr og í leit að ævintýrum.
Við byrjuðum á Bjössaróló og pruf-
uðum öll tækin sem þar hafa staðið
áratugum saman. Hafandi gengið
úr skugga um að þau væru enn
jafngóð og skemmtileg og daginn
sem þau voru byggð, klifruðum við
niður stigann í átt að fótboltavell-
inum, hlupum um og spörkuðum í
alla bolta sem aðrir krakkar höfðu
skilið eftir.
Næst lá leiðin í íþróttahúsið til
að sjá hvort eitthvað væri að gerast
þar. Auðvitað var körfuboltaleikur
í gangi. Sonur minn, sem að jafn-
aði hreyfir sig hratt, og óörugglega,
setti persónulegt met er hann sat í
heilar 10 mínútur og horfði þegj-
andi á. Við gengum svo í gegnum
Skallagrímsgarð þar sem Emil
kynntist strák á svipuðum aldri og
fóru þeir yfir þessar helstu fréttir
og leystu einhver mál.
Þegar við loks skiluðum okkur
heim rann upp fyrir mér að Emil
var að taka nokkuð svipaðan hring
og faðir hans tók ítrekað sem barn.
Borgarnes var mitt eigið Dis-
neyland. Fyrir 30 árum síðan opn-
aði Borgarnes fang sitt og tók á
móti mér, foreldrum mínum og
bróður mínum og breytti lífi okkar
til hins betra. Ég var orðinn vina-
margur og búinn að læra íslensku á
innan við viku frá komu, allavega í
minningunni. Ég og félagar mínir
eyddum stórum hluta af okkar tíma
í allskonar íþróttir. Við bjuggum
til fótboltavelli á nær öllum gras-
blettum bæjarins og spiluðum
úrslitaleik HM á þeim. Sérstaklega
vorum við þó í körfubolta, enda
Borgarnes annálaður körfubolta-
bær og allir með körfu hangandi
upp á hurð í herberginu eða bíl-
skúrnum.
Alla tíð hefur karfan staðið mér
nálægt og verið minn allra besti
vinur. Körfubolti var ástæðan fyrir
því að fjölskylda mín kom til lands-
ins frá Rússlandi og hann varð
seinna meir atvinna mín í 20 frá-
bær ár. Nú er komið að því að ég
hef ákveðið að segja skilið við þessa
íþrótt sem leikmaður. Ég hef átt
nokkur rifrildi við körfuboltann í
gegnum tíðina en hann brosti alltaf
þegar ég kom skömmustulegur að
biðja hann afsökunar. Hann tók þá
bara utan um mig og bauð mér upp
á endalaus tækifæri til þess að búa
til frábærar minningar. Á þessum
tímamótum verð ég enn meðvit-
aðri um að síðustu tveir áratugir í
lífi mínu hefðu farið á allt annan
veg ef að það væri ekki fyrir Borg-
arnes og móttökurnar sem ég fékk
þar, þá 5 ára gamall.
Takk Borgarnes.
Pavel Ermolinskij
Pennagrein
Kveðja frá
Pavel Ermolinskij